Morgunn - 01.12.1976, Blaðsíða 12
11 0 MORGUNN
Mirldleton. í bréfi sem birl var í tímariti Sálarrannsóknarfé-
lagsins i Lundúnum segir Middleton frá óþægilegum draumi,
sem gerði hann dapran og jafnvel hugsjúkann. Hann kvaðst
hafa pantað far með Titanic yfir Atlantshafið til þess. að
m;i'ta á fundi um kaupsýslumál í New York. En tíu dögum
fyrir brottfarartímann dreymdi hann um skipið þar sem það
flaut á hvolfi á hafinu og farþegar og áhöfn á sundi í kring
um það. Hann dreymdi aftur sama drauminn næstu nótt á
eftir. En með þeirri breytingu ])ó, að nú virtist honum hann
svífa í loftinu rétt yfir skipsflakinu. Tveim dögum síðar fékk
hann skevti um það að fundinum hefði verið frestað, og þá
var hann fljótur að afpanta farið með skipinu. Hann var ber-
sýnilega ekki feigur.
Colin Macdonald, 34 ára gamall vélstjóiá hefði einnig getað
farist með Titanic. En hann fann sterklega á sér að skips-
ins biði einhver ógæfa. Hann neitaði þrisvar sinnunr að ráða
sig sem annan vélstjóra á Titanic. Árið 1964 var dóttir Mac-
donalds sem hefur sálræna hæfileika rannsökuð af einum af
hel/.tu sálarrannsóknarrnönnum Bandarikjanna. Stúlkan sagði
honurn þá meðal annars, að faðir hennar hefði fundið mjög
sterklega á sér að eitthvað rnundi lrenda Titanic. Enda hafði
það komið alloft fyrir að hann hafi getað skyggnst inní franr-
tíðina. Vélstjórinn sem ráðinn var í staðinn fyrir Macdonald
fórst með Titanic.
Á þeim tima, þegar TVtomc-sjóslysið varð árið 1912, var
20. aldar maðurinn rétt að byrja að efast um hina rikjandi
heimspeki efnishyggjunnar sem hafnaði hinu yfirskilvitlega.
Framtíðarskyggni — það er þekking á framtíðar-viðburðum
árr beitingar hinna fimrn skilningarvita -—■ var útskýrð sem
tilviljun eða jafnvel svikabrögð. Og skipti þá engu máli,
hvort þessi þekking á framtíðinni var fengin með lófalestri,
draumum, stjörnuspám, eða með því blátt áfram að finna
eitthvað á sér — venjulega ógnandi — sem í vændum væri.
Fræðimaður nokkur, sem vitnað er i í bókinni Nostradarnus
eftir .Tames Laver, komst þannig að orði: „Þegar dró að lok-
um 19. aldar virtist rökhyggjan og efnishyggjan liafa lilotið