Morgunn - 01.12.1976, Síða 25
DULSKYNJANIK
123
Þannig mun þetta til da’mis hafa verið, þegar ungur 17 ára
gamall skólapiltur árið 1906 í 2. bekk Menntaskólans í Reykja-
vík tók að skrifa ævintýri og sögur ósjálfrátt. Pilturinn hafði
ekki hugmynd um það sem hann var að skrifa fyrr en hann
eða aðrir höfðu lesið það. Þó las hann stundum jafnóðum og
blýanturinn skrifaði. Þetta kom yfir hann á fjórum dögum
dagana 18., 19., 25. og 26. marz 1906 og skrifaði hann samtals
fimm sögur. I eitt skipti var gerð sú tilraun að binda fyrir
augu hans, þegar hann varð fyrir þessum dulrænu áhrifum,
en það virtist engu máli skipta. Hann skrifaði engu að síður
jafnviðstöðulaust, glöggt og linurétt-
Sögur þessar sem pilturinn skrifaði ósjálfrátt voru undir-
skrifaðar. Þannig eru nöfnin II. C. Andersen og J. Hallgríms-
son undir fyrstu sögunni. Það virðist bera skilja svo, að ævin-
týrið sé eftir Andersen en í Jiýðingu Jónasar. Næsta sagan
var einnig undirskrifuð með nafni Andersens, en hún birtist
hæði á dönsku og í íslenzkri þýðingu og undir var skrifað
J. Hallgrimsson þýddi 28/3 1906.
Það má vafalaust deila endalaust um það, hvaðan þessar
bókmenntaperlur séu komnar. Hvort sögurnar hafi átt rætur
i djúpvitund þessa 17 ára pilts, sem skrifaði þær eða séu í
rauninni verk þeirra, sem nefndir eru með undirskrift sem
höfundar. Hitt duldist engum sem sæmilega voru skynbærir
á ævintýraskáldskap, að þær hafa mjög merkilegt skáldskapai'-
gildi.
Þá er einnig athyglisvert á hve skömmum tima ævintýrin
voru skrifuð- Hið fyrsta á tveim og hálfri klukkustund og liið
siðara á sjö mínútum. Þessar sögur eða ævintöri, sem til liöfðu
orðið með svo dularfullum hætti, las ég hér í útvarpið, að mig
minnir 1973 og birti þau síðan i tímariti Sálarrannsóknarfé-
lagsins Morgni.
Pilturinn sem skrifaði sögurnar ósjálfrátt hét Guðmundur
Jónsson og var frá Bakka í Arnarfirði. Hann varð siðar þjóð-
kunnur sem rithöfundur og skáld undir nafninu Guðmundur
Kamban. ■ - ■
Mér eldri menn hafa tjáð mér að Kamban htrfi hgft Jíijtí^