Morgunn


Morgunn - 01.12.1976, Page 27

Morgunn - 01.12.1976, Page 27
DIJI .SK.YMJAIN'IR 125 fram skyggnilýsingar á hverjum degi, hugleiðsla, og fundir hjá einstökum miðlum. Tónlist er þar mjög notuð við hug- leiðslu og sýna sérfræðingar táknrænt gildi lita og mismun- andi áhrif þeirra á sálarlifið. Þar fara einnig fram í sérstakri kapellu guðsþjónustur að sið spiritismans. Gegna miðlar þar prestshlutverki og sýna fram á tengsl spiritiskrar lífsskoðunar og samræmi við kenningar Krists. 1 Englandi hafa spiritistar fengið að reisa sínar eigin kirkjur og skipta þær hundruðum í landinu. Hafa kennimenn þeirra, sem kallaðir eru „ministers“ löglega heimild til þess að annast útfarir, hjónavígslur o- þ. h. Á fyrrgreindu landssetri sem heitir Stanstead Hall er viku- lega tekin fyrir sérstaklega ákveðin hlið dulskynjana og fengin til þess sérfræðingur, oftast einhver kunnur miðill, að skipu- leggja og stjórna verkefnum þeirrar viku. Þannig að skipt er um verkefni vikulega. Hver sem vill getur fengið að biia þarna i góðu herbergi og neytt einfaldrar en hollrar fæðu. Dagur- inn hefst með morgunverði kl. 8,30. Þarna er miklu ódýrara að búa heldur en í London og náttúrufegurð dásamleg. En það sem þó er athyglisverðast á þessum stað er það andrúms- loft samúðar og kærleika sem þar ríkir. Þarna fara einnig fram huglækningar á hverjum degi, því þarna eru jafnan einhverjir kunnir huglæknar sem sinna hverjum sem þiggja vill og allt öldungis ókeypis, því öll vinna þarna er sjálfboða- liðastarf þeirra sem vilja fara að kenningum spiritismans um mikilvægi þjónustu við meðbræðurna. Þar kynntist ég ungum, feimnislegum englendingi með barnsleg blá augu, Guy Lyon Playfair, að nafni. Hann fædd- ist á Indlandi en hlaut menntun sína í Englandi. Hann hefur ferðast víða um heim, en átt heima í Brasilíu síðan 1961, þar hefur hann unnið fyrir sér sem rithöfundur, blaðamaður og þýðandi úr portngölsku á ensku og öfugt fyrir ýmis kunn útgáfufyrirtæki og tímarit í Brasilíu, Bandarikjunum og Bret- landi. Playfair sagði mér að Brasilía væri sálrænasta land veraidar- Meirihluti ibúanna eru að nafni til kaþólskir, en hhis vegar trúa Brasilíumenn af öllum kynflokkum og stétt- um tilveru annars heims, sem í þeirra augum er heimur and-

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.