Morgunn - 01.12.1976, Blaðsíða 29
DULSKYNJANIR
127
hverri fyrir sig tvær rósir og stundum brosti liann hinu kunna
brosi sínu til sjónvarpsvélanna og blaðaljósmyndaranna.
Þessi athöfn var í tilefni þess að út voru að koma tvær síð-
ustu bækur sérkennilegasta rithöfundar í heimi. En hann hef-
ur skrifað svo að segja látlaust síðan 1932, að jafnaði fast að
þrem bókum á ári. En hundruðustu bók sína gaf hann lit árið
1969. Þetta eru Ijóð, barnabækur, sögulegar skáldsögur og nú-
timaverk, auk þess ritgerðir um vísindi, heimspeki og trúar-
brögð. Samanlagt hafa verið seldar eftir þennan höfund um
þrjár milljónir eintaka, og er hann þannig einn af vinsælustu
rithöfundum í bókmenntasögu Brasilíu.
Þessi höfundur er dáður sem hetja miljóna manna í Brasilíu,
jafnt ríkra sem fátækra. Nafri hans er jafnt þekkt og nafn
Peles knattspyrnumannsins heimsfræga og kappaksturskapp-
ans Emersons Fittibaldis. Hann er heiðursborgari flestra helztu
borga Brasilíu. Og þegar hann kom tvisvar fram í sjónvarpi
árið 1970 var talið að um tvær milljónir manna hefðu setið við
skjáinn heima hjá sér. En slíkt er óþekkt nema þegar sýndir
eru þar í landi úrslitaleikir i heimsmeistarakeppni í knatt-
spyrnu.
En þrátt fyrir þessar óhemju vinsældir og metsölur á bók-
um hans er Francisco Candido Xavier fátækur maður. Hann
hefur aldrei fengið né farið fram á eyrisvirði fyrir það sem
hann liefur skrifað. Því Chico Xavier eins og hann er kallaður,
er spiritiskur miðill, sem er sérfræðingur í ósjálfráðri skrift
eða psychography, eins og Brasilíumenn vilja lieldur kalla það.
Samkvæmt síðustu talningu hefur hann jiannig tekið við
ritverkum um 500 mismunandi látinni höfunda. Allar þessar
bókmenntir hefur hann skrifað í transi, og margt af því opin-
berlega í miðstöðvum spiritista í borgunum Pedro Leopoldo,
þar sem hann bjó þangað til 1958, og Uberaba, þar sem hann
nú býr i húsi fátæklega búnu húsgögnum á rikis-eftirlaunum
sínum, sem eru um $100 á mánuði eða um 17 þúsund krónur.
Chico er dáður og virtur af brasihskum spiritistum, sem hin
mikla fyrirmynd mannanna, sem lielgar allt lif sitt því einu
að hjálpa þeim meðbræðn.uu, sem minnst bera úr býtum og