Morgunn - 01.12.1976, Síða 32
130
MORGUNN
Fast miðilsstarf byrjaði hann árið 1927. Ein systir hans
virðist hafa orðið geðveik og var mjög illa haldin. Huglækn-
ingamiðill i nágrenninu skoðaði hana, komst að þeirri niður-
stöðu að hér væri um andsetni að ræða og læknaði hana þegar
í stað. Þetta hafði svo djúp áhrif á Xavier-fjölskylduna, að
hún varpaði kaþólskunni fyrir borð og þau gerðust öll spiri-
tistar. Kona lækningamiðilsins, Carmen Perácio, varð svo hrif-
in af lækningunni á systur Chicos, að hún ákvað að stofna
litinn spiritisma-hring. Og ekki stóð á Chico að vera með, þvi
hann hafði orðið djúpt snortinn af lækningu systur sinnar.
Þann 8. júlí það ár skrifaði hann dálítið ósjálfrátt- Frú
Perácio heyrði rödd sem sagði henni að fá Chico blað og blý-
ant, hvað hún og gerði. Það sem hann skrifaði svo var andleg
leiðsögn á seytján blaðsíðum. Á öðrum fundi skömmu síðar sá
frú Perácio í sýn manna í prestsklæðum sem var umvafinn
geislandi bliki, sem aftur sagði henni að fá Chico blöð og blý-
ant. Chico sem þá var seytján ára gamall skrifaði svo nákvæm-
ar leiðbeiningar um meðferð á systur sinni, sem svo nýlega
virtist hafa verið læknuð af hættulegum geðsjúkdómi. Þessi
andi kynnti sig fyrir frú Perácio sem „Emmanuel1', og kvaðst
vera vinur Chicos í andaheimi, þótt það yrði ekki fyrr en árið
1931, sem Chico sjálfur varð var við þennan aðalstjónianda
sinn, sem hefur fylgt honum alla tíð síðan.
Á öðrum af fyrri fundum í Pedro Leopoldo-hringnum, sá
frú Perácio í sýn það sem hún lýsti sem bókaregni, sem félli
allt í kring um höfuð Chicos. Túlkaði hún þetta sem merki
köllunar, sem hann ætti að fylgja. Það er því óhætt að segja,
að bókmenntastaríinu hafi bókstaflega verið þröngvað uppá
Chico. Síðan 1927 hefur hann eytt að meðaltali fimm klukku-
stundum á degi hverjum í beinu sambandi við anda-stjóm-
endur sína. Ævivinur hans, rithöfundurinn og skáldið, Elias
Barbosa hefur reiknað það út, að Chico liafi eytt samtals
73,000 vinnustundum sem miðill, en það samsvarar rúmum
átta árum á fvrstu fjörutíu árum starfsemi hans, og allt er
þetta unnið utan venjulegs vinnutíma.
Það kom fljótt í ljós, að Chico var ótrúlega afkastamikill við