Morgunn - 01.12.1976, Page 33
DUIISKYNJANIH
131
ósjálfráðu skriJtina Og það leið ekki á löngu áður en hann
hafði skrifað ljóðaflokk, sem hafði djúp áhrif á félaga hans í
hringnum, sem frú Perácio stjórnaði. Og ljóðaflóðið hélt stöð-
ugt áfram með undirskriftum ýmissa mestu ljóðskálda Bras-
iliu, þeirra sem látin eru. Árið 1932 gaf Spiritistasamband
Brasilíu út úrval þessara ljóða í 421 blaðsíðu bindi, sem 40,000
eintök hafa selst af.
Bókin sem hlaut nafnið Parnassus handan grafar varð met-
sölubók þegar i stað og leiddi til deilna, sem enn eru ekki með
öllu úr sögunni. Enginn bar brigður á að stíll og sérkenni þess-
ara frægu skálda kæmi þarna ljóslega fram. Satt að segja var
eitt ljóðanna framhald kunnrar sonettu eftir dos Anjos, sem
talinn hefur verið torræðastur brasilískra skálda og því ekki
heiglum hent: að stæla hann.
Það fór bersýnilega í taugarnar á ýmsum gagnrýnendum að
víða brá fyrir í ljóðum þessum spiritiskum kenningum og þótti
þeim lítið til koma af þeim ástæðum. En einn maður varð þó
stórhrifinn af þessari bók og skipti það ekki litlu máli því það
var þjóðskáldið Humberto de Camos, meðlimur brasilísku aka-
demiunnar og virtasti bókmenntamaður samtíma síns í land-
inu. Eftir nákvæma rannsókn á þessum ljóðum handan grafar.
lýsti hann því yfir opinberlega, að höfundar þeirra sýndu hér
sömu eðliseinkenni innblásturs og túlkunar, sem hefði ein-
kennt verk þeirra meðan jieir dvöldust á jörðinni. Og hann
sýndi fram á það með dæmum, hvernig þessi Ijóðskáld hvert
fyrir sig veltu tnn fyrir sér sömu viðfangsefnum og áður og
hvernig stílsmáti þeirra og persónueinkenni aðgreindu þessi
verk þeirra á alveg sama hátt og meðan þeir voru á jörðinni.
Vinsælasti barnabókahöfundur i Brasiliu, Monteiro Lobato.
bætti þessu við athugasemdir Humbertos de Campos: „Ef
maðurinn hefur samið þetta allt sjálfur, þá standa honum
opin eins mörg sæti i Akademíunni og horium þóknast.“
Nú vildi svo til, að Humberto de Carnpos lézt skömmu eftir
litkomu Parnassusar og það var ekki að sökum að spyrja. hanii
fyllti þegar llokk hinna látnu skálda, sem skrifuðu með hendi
Chicos, og á árunum 1937—1942 komu frá hendi Chicos fimm