Morgunn - 01.12.1976, Blaðsíða 36
134
MORGUNN
framdi sjálfsmorð skömmu eftir að frændi hans hvarf úr
borginni.
Þrátt fyrir frægð og frama, þá er starfsdagur Chicos á sjö-
tugsaldri na'gilega langur til þess að mörgum ungum mann-
inum þætti nóg um. Hann sefur aldrei lengur en fjórar
klukkustundir og byrjar vinnu klukkan sjö að morgni. Á dag-
inn vélritar hann handrit sín og afgreiðir um 200 bréf, sem
berast honum daglega. Samt veitir hann sér tíma til þess að
heimsækja sjúkt fólk í nágrenni sinu og fylgist með störfum á
miðstöðinni- En þangað koma daglega hjarðir af hungruðu
fólki, sein byrja að raða sér í biðraðir milli klukkan 4^6 sið-
degis, til að fá súpuna sina sem er matreidd i feiknastóru eld-
húsi af sjálfboðaliðum, sem bera hana svo fram á löng tré-
horð. Fjögur kvöld í viku hefur hann opinberan fund í mið-
stöðinni, en á miðvikudögum eru fundir einungis fyrir miðla.
Hinum opinberu fundum likur ekki íyrr en hver einasti
fundargestur hefur fengið persónuleg skrifleg boð og allir hafa
kvatt þetta óþreytandi góðmenni með handabandi. Hann læt-
ur sig engu skipta þótt fundur standi allt til klukkan þrjú um
nóttina.
Þau kvöld sem hann er ekki á fundum vinnur hann heima
og hönd hans skrifar með ótrúlegum hraða, flýgur yfir papp-
írinn. Meðan hægri höndin skrifar, hvilir sú vinstri jafnan
yfir veikum augum hans, en hann er næstum alveg blindur á
öðru auga, og á hann því mjög illt með lestur. Minnir þetta á
það, að tæpast er h'klegt að maðurinn hafi getað lesið af bók-
um öll þau kynnstur þekkingar sem birtast á blöðum hans.
Afburðaminni bætir honum sjónarskortinn talsvert upp.
Hann fer sjaldan úr litla bænum sínum, Uberaba, enda
gerist þess ekki þörf, því að dyrum hans liggja leiðir fólks éir
öllum heimshomum. Slundum þarf hann þó að vera viðstadd-
ur opinberar athafnir þar sem hann er heiðraður, og hami
hefur tvisvar, ferðast til útlanda. 1 stuttar ferðir til Banda-
rikjanna og Evrópu 1965 og 1966, og þá fór hann pílagrímsför
að gröf Allans Kardecs, í Pére Lachaise-kirkjugarðinn í París.
Þegar minnst er á spiritisma í Brasilíu er jafnan átt við þann