Morgunn - 01.12.1976, Qupperneq 43
MORGUNN
141
niðurstöður samkvæmt þvi. Athuganir þessar sýndu meðal
annars, að skynjun fólksins var jafnan háttbundin jafnframt
því að ýmis tilbrigði komu í ljós. Breytingar á þessu lögmáls-
bundna ástandi hafði þá í för með sér i líkamanum, sem sá
skyggni gat greint, jafnvægisleysi og óreglu.
Raunar er þetta eins og hvert armað eðlisfræðilegt lögmál.
Ef fólk með þessa tegund skyggnihæfileika gerir sér grein f\æir
þvi, væri hægt að fá að vita um eðli ákveðinnar orkustöðvar
og hvernig hi'rn er tengd ákveðnum kirtli, og útfrá þeirri at-
hugun væri mögulegt að gera sér grein fyrir starfsemi kirt-
ilsins.
Blaðam.:
Þér eruÖ þá eiginlega aS snúa yÖur aÖ þeim þœtti læknis-
/ræÖinnar, sem fjallar urn aÖ koma í veg fyrir sjúkdóma?
Karagulla:
Vitanlega. Við erum að byrja að sjá manneskjuna í nýju
ljósi, ekki aðeins sem þétt líkamlegt form, heldur fyrst og
fremst sem veru, sem er mynduð úr ýmsum tegundum orku.
Líkami mannsins er aðeins ein tegund þessarar orku — hún
birtist þannig í sínu þéttasta formi sem líkami okkar — líkam-
inn sjálfur er þannig aðeins eins konar mynd eða sýnishom
þessarar orku, en ekki sjálf undirslaða tilveru okkar. Þetta er
mjög ólikt þeirri mynd af manninum, sem við höfum gert
okkur fram að þessu, þar sem hann er álitinn vera þétt form
eða efni.
Eftir 1920 var þó farið að viðujkenna möguleika á því, að
heili mannsins sendi frá sér rafmagnsbylgjur og var það stórt
spor í framfaraátt. Nú á dögum getum við mælt rafbylgjur
heilans á heilarafrita.
Blaðam.:
AlítiÖ þér, aÖ eitthvert orkusviÖ sé grundvöllur efmsheims-
ins?
Karagulla:
Já. Ég fann staðfestingu á þessu í rannsóknum hins látna
drs. Harolds Burrs, sem kenndi taugalíffræði við Yale-háskól-