Morgunn


Morgunn - 01.12.1976, Side 46

Morgunn - 01.12.1976, Side 46
144 DR. MED. SHAFICA KARAGUI.LA líka orkukerfi, þótt flestir lýsi þeim ekki. Eii greinilegt er að þau eru tengd orkukerfum ljósvakasviðsins og þau tengja þannig saman tilfinninga- og ljósvakasviðið. Einnig er til geð- lægt svið, sem líka birtist i litum og gefur til kynna sálræna gerð einstaklingsins. Loks er svo fjórða sviðið, orsakasviðið, sem sameinar og umlýkur hin sviðin þrjú. Það gegnir því hlutverki að vera eins konar samantekt af öllu því, sem ein- staklingurinn er og hefur verið, á líkari hátt og litningar frumu, sem hefur að geyma alla mótun hans í framtiðinni. Þessar uppgötvanir hafa stórkostlega þýðingu fyrir mig sem geðlækni, því að með þessu móti fæst skilningur á mismun- andi og persónulegum einkennum hjá fólki. Rlaðam.: Þér minnist á liðna og ókomna tilveru. Má þá gera ráð fyrir að bér trúið á cndurholdgun? Karagulla: Já, en það er ekki aðeins trú. Þeir skyggnu skynja orku- sviðin í annarri vídd og sjá þar þróun einstaklinganna í nú- verandi tilveru þeirra sem heild, hvort sem líf þeirra er að hefjast eða kveðja. Þeir sjá einnig hvernig endurholdgunin á sér stað við það, að skyni gædd vitundin líkt og rvður sér braut út í lífið af eigin krafti. Samkvæmt skilgreiningu þeirra óskar barn í móðurkviði sjálft eftir að fæðast, og ég held, að ef fólki skildist hvað það er, sem raunverulega gerist við fóstureyð- ingar, þá mundi afstaða manna til þessara mála breytast, því að svo virðist að barn ráði sjálft vali á foreldrum sínum. Vit- undin reynir, með öðrum orðum, að mynda sér það fomi eða ytri aðstæður, sem henta henni best. Til þess verður hún að kjósa sér foreldra í samræmi við þá tiðni, er gerir henni mögu- legt að öðlast lilfinningalegt móttökutæki eða líkama, sem nauðsynlegur er vegna þess þróunarlögmáls, sem ræður orsök- um og afleiðingum og sem hún verður að gangast undir. Blaðam.: Varðandi orkusviðin, hvernig eru þau tengd sín á milli?

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.