Morgunn


Morgunn - 01.12.1976, Side 47

Morgunn - 01.12.1976, Side 47
MOROUNN 145 Karagulla: Þau hafa orkukerfi, sem eru tengd hvert öðru: Það gerist á sama hátt og taugaboð, sem berast frá heila og framkalla ákveðin viðbrögð í líkamanum. Ef einstaklingur er skoðaður með hliðsjón af þvi, hvernig ljósvakasviðið, tilfinningasviðið og huglæga sviðið starfar, er einnig hægt að sjá, hvort ósamræmi cr í starfsemi orkukerf- anna og þar ai' leiðandi hægt að vita á hvern hátt er hægt að hjálpa honum til að öðlast samræmi og heilsu á ný. Blaðam.: getiS bér sagt okkur um Kundalini, þessa orkumiÖslöS, sern sumir lwlda fram að liggi ónotuð við rætur mœnunnar? ÁHtið þér, að hœgl sé að gera hana virka og koma þannig af stað andlegri vakningu og nœmari skynjun? Karagulla: Það eru svo margir, sem vilja öðlast andlega vakningu án nokkurrar fyrirhafnar. Að „vekja upp Kundalini“ getur reynst mjög hættulegt. Ef einstaklingur safnar saman orku úr einni orkustöð, áður en samræmi liefur náðst í líkamanum í öðrum orkukerfum, getur bókstaflega orðið sprenging. Það sem gerist er það, að þegar orku er beint inn á kerfi þar sem önnur svið þess eru ekki orðin nægilega ]>roskuð og þar af leiðandi ófær um að samræmast hinni nýju orku, þá hefur hún truflandi áhrif. Þess vegna er hættulegt að fara óvarlega með þessa orku. Ef hún er leyst úr læðingi hjá einstaklingi, sem er ekki nógu þroskaður andlega til að veita henni viðtöku, verður af- leiðingin sú að hún eyðileggur allt orkukerfið eða leitar á þann stað þar sem ósamræmi er eða veik hlið. Ef t. d. kynhvöt er áberandi þáttuv hjá einstaklingi, þá leitar Kundalini-orkan þangað og orsakar sjúklegar hvatir og þjáningar. Ef einstakl- ingur er mjög lilfinninganæmur, þá beinist orkan að solar- plexus (miðorkukerfi í nánd við maga) og afleiðingin verður óhófleg græðgi og ástriður. Ef hins vegar, öll kerfi og svið lík- amans eru í jafnvægi, bæði á efnissviði og andlegu sviði og einnig á ljósvakasviðinu, þá stöðvast þessi orka ekki, heldur

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.