Morgunn - 01.12.1976, Qupperneq 54
152
DR. MED. SHAFICA KARAGULI.A
liefur verið aðallega tilfinningalegs eðlis, er nú að breytast
yfir i huglæga eða andlega vitund. Þess sjást glögg merki, að
fólk er farið að liugsa meira en áður og gera sér betur grein
fyrir hlutunum og vill ekki láta segja sér fyrir verkum. Menn
spyrja fleiri spurninga on áður. Við getum sagt að við séum
að færast úr timatákni fiskanna yfir í tákn vantsberans. Merki
fiskanna er bundið dýrkun og dulrænu, en í þessu merki hafa
mörg trúarbrögð þróast. Tákn vatnsberans hefur að geyma
aukið samstarf og meira vitsmunalíf. Heimur fjórðu víddar-
innar hefur einnig færst nær efnisheiminum og af þeirri
ástæðu eykst næmi marma fyrir þessu sviði.
Blaðam.:
Hráða álit hafifí hér á stjörnuspáfrœtH, lófalestri og tölu-
spáfræÖi?
Karagulla:
Stjörnusþekina tel ég hafa lítið gildi eins og hún er stund-
uð nú á dögum. En ef við setjum þessi fræði í samband tdð
orku-segulaflið-, sem heldur plánetunum á braut umhverfis
sólu. þá eru þarna að verki ýmis segulaflsvið, sem hafa vafa-
laust sín áhrif. Það er viðurkennt, að logar sólarinnar hafa
áhrif á menn og veðurfar, og séð frá þessu sjónarmiði held ég
að stjörnuspeki hafi vissa þýðingu. Hvað viðvikur lófalestri og
töluspám vil ég lítið um segja, en tel þó mögulegt að einhver
merking liggi þar að baki. Verið getur að næmir einstaklingar
noti þessar aðferðir sem tæki til einbeitingar til þess að ná
fram upplýsingum, en um þetta veit ég lítið.
Blaðam.:
HafiS hér kynnt ySur áhrif sálarörvandi lyfja varSandi
þetta svi'S?
Karagulla:
Skömmu cftir árið 1950, áður en ég kom hingað, starfaði ég
við geðsjúkrahús, þar sem vinur minn var að rannsaka á hvern
hátt mætti draga úr áhrifum geðsjúkdóma. Hann gaf allmörg-