Morgunn


Morgunn - 01.12.1976, Side 55

Morgunn - 01.12.1976, Side 55
MOKGUNN 153 um geðklofasjúklingum skammta af L.S.D. til þess að vita á hvern hátt það kynni að hafa áhrif á ofsjónir þeirra, auka þær eða minnka. Okkur til undrunar urðu engar breytingar á skynjun sjúklinganna. Ég hef þá persónulegu skoðun, að geð- klofasjúklingar þjáist af truflunum, sem eigi sér efnafræði- legar orsakir, truflunum, sem koma í ljós á svipaðan hátt og þegar L.S.D. er notað, en í þeirra tilfelli sé ástandið hins vegar sjúklegt og viðvarandi. Við sjáum, að fólk, sem notar L.S.D. i langan tima, tekur persónulegum breytingum og augnaráð þess breytist. Viljastyrkur þess hverfur og af þeirri ástæðu eru L.S.D. og marihujana hvort tveggja hættuleg efni. Þeir, sem nota hass eða marihujana í langan tima, verða aflvana, sköpunargáfa þeirra minnkar, og loks ria'r sinnuleysið alger- um tökum á þeim. Blaðam.: Þér eruð mjög á móli nolkun dáleiSslu. Hvers vegna? Ka ragulla: Vegna þess að dáleiðsla er afar hættuleg, bæði fyrir þann, sem dáleiddur er og eins fyrir dáleiðandann. Fyrir því liggja tvær ástæður. Þótt einkenni sjúkdóms hafi verið fjarlægð með dáleiðslu, er sjúklingurinn ekki orðinn heilbrigður, heldur hef- ur hann með þessu móti verið útilokaður fi'á þeirri reynslu, með eins konar staðdeyfingu. Ef við lítum á orkusviðin, sjáum við, að dáleiðandinn sarn- einar orkusvið sitt sviði sjúklingsins, og með því að sameina þau þannig gerir hann andlegt svið sjúklingsins óvirkt. Þaimig sviptir dáleiðandinn sjúklinginn frjálsum vilja sínum. Jrót.t hann í rauninni hafi ætlað að hjálpa honum. Min skoðun er sú, að hvenær sem einstaklingur er sviptur frjálsum vilja sín- um, á meðan hann er i ómeðvituðu ástandi, verði mikil trufl- un á þeim sálræna grundvelli, sem er undirstaða þess, að þættir persónuleikans virki sem samræmd heild. Með því að sameina jrannig tvo persónuleika, er einnig sú hætta fyrir hendi, að sjúkdómur hvors aðila um sig færist yfir á hinn. Ef einstaklingurinn á að geta þroskast og orðið skapandi per-

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.