Morgunn - 01.12.1976, Síða 56
154
DU. jVIED. SHAFICA KARAGULI.A
sóna, verður hann að varðveita persónuleika sinn sem heild,
óháðan öllum áhrifum þessa heims eða annars. Þroski hans
verður að koma innan frá.
Blaðam.:
IIvaö viljiS þér segja um sjálfssefjun?
Karagulla:
Um það er öðru máli að gegna. Einstaklingurinn er þá með
fulla meðvitund og hefur sjálfur vald á viðfangsefninu. Hann
notar ef til vill kerfi ITatha-yoga, og fæst við að ná valdi á
likama sínum með fullri meðvitund.
Annars eru þessi hugareinbeitingar- og alkerfi, sem eru
nú svo vinsæl vegna þess, að lofað er skjótum árangri, að-
ferðir til hópsefjunar, að mínu áliti. Þarna er einnig um hættu
að ræða vegna þess, að við þetta getur skapast misræmi í
orkukerfum líkamans. Leiðin verður greiðfær að fylgsnum
sálarlífsins og kann að verða misnotuð af öðrum vitsmuna-
verum, sem sumar eru máttugri en maðurinn. I svona mót-
tökuástandi geta annarleg utanaðkomandi öfl náð tökum á
manneskjunni.
Blaðam.:
TeljiS bér, aS átt geti sér staS, aS önnur vitundarvera taki
sér bólstáS í vitund einstaklings?
Itaragulla:
.Tá, ég held að ]iað geti átt sér stað, þótt sálrænar truflanir
verði einnig af líffræðilegum orsökum eingöngu. En ef raskað
er við þessum þrem orkusviðum, sem ég hef áður fjallað um,
og þeim er sundrað með óeðlilegu athæfi, þá skapast misræmi
milli þeirra þannig, að önnur vera getur komist þama að og
tekið yfirhöndina. Stundum á sér stað ásókn. Það gerist, þegar
vera fær, að nokkru, en ekki öllu leyti, vald yfir einstaklingn-
um. 1 einu slíku tilfelli voru náttúruandar, ómennskar vemr
að áreita manninn og það hafði í för með sér ákveðin sjúk-
dómseinkenni, sem ekki tókst að skilgreina á venjulegan hátt.
Aðeins skyggn aðili gat séð, hvað hafði komið fyrir.