Morgunn - 01.12.1976, Blaðsíða 60
158
DH. MED. SHAFICA KAHAGUIXA
um leiðum í leit að tilgangi lífsins. Auðvitað eru margir ráð-
villtir og margir taka ranga stefnu í leit sinni vegna vanþekk-
ingarinnar. Þó miða tilraunir þeirra að sjálfsþekkingu og ég
held að þetta sé byrjunin á öðru meira.
Blaðam.:
Hver eru markmiS ySar og vonir varSandi starfsemi Rann-
sóknarstofnunar SkyneSlisvísinda í framtiSinrá?
Karagulla:
Ef við fáum nægan fjárstyrk, er það okkar von, að hægt
verði að koma á fót slíkri stofnun, þar sem látin yrði í té
ókeypis aðstoð. Við mundum fá fólk með skyggnihæfileika til
að starfa með okkur við ítarlega rannsókn á sjúklingum. Þann-
ig gætum við gert nákvæmar skýrslur um það, sem raunveru-
lega skeður, án almennrar ihlutunar.
Margt fólk kýs fremur að fá meðhöndlun hjá huglækni en
að taka inn lyf, og rétt er að það fái tækifæri til þess. Allt
mundi fara fram undir ströngu eftirliti og í samræmi við
kristileg lög. Af þessu kynni að leiða, að nýjar uppgötvanir
yrðu gerðar í leit að lækningaaðferðum, t. d. við rannsóknir
á krabbameini og í líffræði. Einnig mundi skyggnt fólk látið
athuga áhrif ýmissa lyfja á líkamsstarfsemina og sjúkir lík-
amshlutir skoðaðir við breytilegar aðstæður. Við myndum
líka leggja áherslu á að rannsaka áhrif ýmissa rafeindatækja
og reyna að endurbæta þau í þeim tilgangi að gera þau ná-
kvæmari til mælinga á viðbrögðum líkamans. Einnig mynd-
um við mennta starfsfólk á þessu sviði og þróa nýja tækni,
sem mundi leiða í ljós eiginleika mannsins og margvislega
liæfileika þ.á.m. hina stórfenglegu sköpunargáfu hans og fleira,
sem varla er enn komið í ljós.
Margir af þeim mönnum, sem almennt kallast vísindamenn
í dag, eru í rauninni aðeins tæknifræðingar. Þeir hafa þekk-
ingu, vinna samkvæmt kennisetningum vísinda, en vantar
sköpunargáfu. Að sjálfsögðu eru einnig til margir sannir vís-
indamenn, sem beita innri sköpunargáfu sinni, og það eru
þessir menn, sem skapa nýjar hugmyndir og nýjar framfarir.