Morgunn - 01.12.1976, Blaðsíða 62
ÁKNI ÓLA, rithöfundur:
FYRIRBURÐUR 1 STRANDARKIRKJU
Þriðjudaginn 16. júlí 1963 efndu safnaðarfélögin í Lang-
holtsprestakalli til skemmtiferðar fyrir aldrað fólk. Voru við-
komustaðir 1 Krýsuvik, Strandarkirkju, Eyrarhakka, Stokks-
eyri og Þingvöllum. Ég var fenginn til að vera með í þessari
för og segja ferðafólkinu eitthvað um leiðina og merka staði.
Akveðið var að dveljast ákveðinn tíma í Strandarkirkju og
hafa þar guðræknis- og fræðslustund. Fyrst skyldi sóknar-
prestur Langholtssóknar, séra Árelíus Níelsson, ávarpa söfn-
uðhin og siðan sungnir sálmar. Þá átti ég að segja ágrip af
sögu kirkjunnar og síðan skyldi séra Halldór Kolbeins flvtja
ræðu.
Veður var hið ákjósanlegasta er við komum að Strandar-
kirkju og fólkið streymdi þar inn og fyllti kirkjuna svo sem
mest mátti verða, en þó stóðu nokkrir úti fyrir kirkjudyrum.
Þegar röðin kom að mér, sagði séra Áralius mér að ganga upp
i prédikunarstólinn, því að hvergi gæti ég verið nema þar. Ég
gekk svo í stólinn og hóf að rekja sögu Strandar og kirkjunnar.
Hafði ég talað í 12-14 minútur er ég kom að helgisögnirmi um
uppruna kirkjunnar. Eg fór að segja frá timburskipinu sem
var að hrekjast þar við ströndina í stórsjó, ofsaveðri og nátt-
myrkri og að skipverjar bjuggust þá flestir við dauða sínum.
En skvndilega birtist þeim lýsandi vera á ströndinni og héldu
þeir það vera engil. Hann gaf þeim merki um að stefna á sig.
Þeir hlýddu og skipið rann úr briminu inn í sandvik og var þá
borgið bæði fé og mönnum. „Síðan heitir hér Engilvik og til
minningar um þenna atburð er engillikneskjan sem stendur