Morgunn


Morgunn - 01.12.1976, Qupperneq 63

Morgunn - 01.12.1976, Qupperneq 63
MORGUNN 161 hérna á hólnum," mælti ég. Um leið varð mér litið út um kirkjuglugga hjá prédikunarstólnum, yfir Engilvik og hólinn, sem voru böðuð björtu sólarljósi. En nú brá einkennilega við. I sama vetfangi hvarf mér kirkjan og fólkið, sem þar var. Ég var staddur á víðavangi og umhverfis mig stór hópur manna og kvenna, sem ég hafði aldrei séð. Þetla fólk var að tala við mig og mér virtist erindi þess vera að fræða mig betur um sögu kirkjunnar og uppruna hennar. Mér varð þegar ljóst, að þetta fólk hafði verið uppi á annarri öld, sá það á búningum þess. Jafnframt því sem fólkið talaði við mig, var sem brugðið væri upp fyrir sjónum mér svipmyndum úr sögu kirkjunnar. Þessar myndir voru einna hkastar skuggamyndum, eða jafnvel kvikmyndum, en voru þó hvorugt. Það var eins og þær svifu í glóbjörtu loftinu yfir höfðum múgsins og liver mynd væri einhver atburður úr sögu kirkjunnar. En ég fann ekki samhengi í þeim. Þá var sem fólkið. er næst mér stóð, hyrfi til hliðar og annað kæmi i stað- inn, eldri kvnslóð. sem átti að vita betur. Þetta gerðist mörg- um sinnum. Þarna kom hver kynslóðin af annarri og gat ég séð það á búnirigum fólksins, því að þeir brevttust stöðugt. Hef ég hvorki fyrr né siðan séð svo forneskjulegan klæðaburð, og sérslaklega þóttu mér búningar kvenna furðulegir og marg- litir. Alltaf fjölgaði fólkinu og var hópurinn orðinn svo stór, að vel mátti skipta þúsundum. Ég vissi að ég var kominn langt aftur í aldir, og stöðugt var verið að sýna mér fleiri myndir og útskýra ])ær fvrir mér. Eg lieyrði glöggt það sem fólkið sagði við mig, en allan timann hevrði ég tika hjáróma rödd. Það var rödd sjálfs min og mér fannst sem hún kæmi ofan úr lausu lofti. Eg lagði þó okki eyra við henni, þvi að mér þótti það allt merkilegra, sem fólkið var að segja mér. Nú ber þess að gæta, að þennan tima allan stóð líkami minn í prédikunarstólnum í Strandarkirkju og hélt áfram að tala við ferðafólkið i kirkjunni. Það var rödd mín þar, sem ég hévrði koma utan úr lausu lofti, meðan ég var að tala við fólksfjöldann mikla úti á víðavangi og virða fyrir mér myndir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.