Morgunn


Morgunn - 01.12.1976, Page 69

Morgunn - 01.12.1976, Page 69
MORGTJNN 167 keniiir viðstöddum fyrst að slaka á hverjum vöðva líkamans uns öll spenna er horfin. Hami kennir fólkinu að hverfa inn á við að innsta sjálfi sínu, hinum eiginlega kjarna mannsins. Hann talar hljóðlátlega um hina innstu verund og leiðir oft hugi áheyrenda að guðdómnum og kærleikanum. Iðulega er Kristur kjami málsins. En annars getur tal stjórnanda verið með ýmsum hætti eftir því hvaða leiðir hann telur árangurs- ríkastar hverju sinni. Aðalatriðið er að leiða áheyrendur fyrstu sporiir inn á við til þess bezta í eðli þeirra sjálfra. Að sjálfsögðu er hverjum og einum algjörlega frjálst. hvort hann tekur þátt í hugleiðslum eða öðru sem þarna er boðið. En reynslan hefur orðið sú, að langflestir vilja ekki missa af þessunr lmgleiðingastundum sökum þess, hve góð áhrif þær hafa. Það er ekki óalgengt að allir dvalargestir mæti á slíkuin stundum og börnum er að sjálfsögðu leyfilegt að vera viðstödd. En það er sérstaklega athyglisvert í því sambandi, að þau sitja jafnan prúð og hljóð þessa klukkustund. Semiilega vegna þeirra róandi áhrifa sem myndast í salnum. Það má með sanni segja að þessar stundir séu guðsþjónustur. Þar skapast mikil kærleiksrík stemming, senr fólki finnur að það býr að áfram. Ýmsir ágætir og þjóðkunnir tónlistarmenn hafa lagt þessari tilraun lið með list sinni. Má þar nefna: Sigríði Magmisdóttur, óperusöngkonu, Carl Billich, pianista, Þorvald Sleingrimsson, fiðluleikara, Halldór Haraldsson, píanóleikara, Gunnar Egils- son, klarinettuleikara, önnu Guðmundsdóttur, leikkonu og skáldið Kristján frá Djúpalæk. Huglækningar haf stundað mæðgurnar Eileen og Lilanthea Hambling, en þær eru kunnar viða um hehn fyrir læknmgar sínar og munu koma aftur næsta ár. Hugleiðslustundum hafa stjórnað þeir Úlfur Ragnarsson, .Tón Sigurgeirsson, og Hjálmar Jóhannesson. Ásta Guðvarðardóttir hefur stjómað daglegri voga-leikfimi og Elma Björk Guðjónsdóttir annast nudd fyrir ]>á sem hafa þess óskað. Þá hafa margir aðrir lagt hér af mörk- um mikilvægt sjálfboðaliðastarf. Með hjálp þessa góða fólks hefur þessi merkilega tilraun tekist svo vel, að útlit er fyrir

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.