Morgunn - 01.12.1976, Blaðsíða 69
MORGTJNN
167
keniiir viðstöddum fyrst að slaka á hverjum vöðva líkamans
uns öll spenna er horfin. Hami kennir fólkinu að hverfa inn
á við að innsta sjálfi sínu, hinum eiginlega kjarna mannsins.
Hann talar hljóðlátlega um hina innstu verund og leiðir oft
hugi áheyrenda að guðdómnum og kærleikanum. Iðulega er
Kristur kjami málsins. En annars getur tal stjórnanda verið
með ýmsum hætti eftir því hvaða leiðir hann telur árangurs-
ríkastar hverju sinni. Aðalatriðið er að leiða áheyrendur fyrstu
sporiir inn á við til þess bezta í eðli þeirra sjálfra.
Að sjálfsögðu er hverjum og einum algjörlega frjálst. hvort
hann tekur þátt í hugleiðslum eða öðru sem þarna er boðið.
En reynslan hefur orðið sú, að langflestir vilja ekki missa af
þessunr lmgleiðingastundum sökum þess, hve góð áhrif þær
hafa. Það er ekki óalgengt að allir dvalargestir mæti á slíkuin
stundum og börnum er að sjálfsögðu leyfilegt að vera viðstödd.
En það er sérstaklega athyglisvert í því sambandi, að þau
sitja jafnan prúð og hljóð þessa klukkustund. Semiilega vegna
þeirra róandi áhrifa sem myndast í salnum. Það má með
sanni segja að þessar stundir séu guðsþjónustur. Þar skapast
mikil kærleiksrík stemming, senr fólki finnur að það býr að
áfram.
Ýmsir ágætir og þjóðkunnir tónlistarmenn hafa lagt þessari
tilraun lið með list sinni. Má þar nefna: Sigríði Magmisdóttur,
óperusöngkonu, Carl Billich, pianista, Þorvald Sleingrimsson,
fiðluleikara, Halldór Haraldsson, píanóleikara, Gunnar Egils-
son, klarinettuleikara, önnu Guðmundsdóttur, leikkonu og
skáldið Kristján frá Djúpalæk.
Huglækningar haf stundað mæðgurnar Eileen og Lilanthea
Hambling, en þær eru kunnar viða um hehn fyrir læknmgar
sínar og munu koma aftur næsta ár. Hugleiðslustundum hafa
stjórnað þeir Úlfur Ragnarsson, .Tón Sigurgeirsson, og Hjálmar
Jóhannesson. Ásta Guðvarðardóttir hefur stjómað daglegri
voga-leikfimi og Elma Björk Guðjónsdóttir annast nudd fyrir
]>á sem hafa þess óskað. Þá hafa margir aðrir lagt hér af mörk-
um mikilvægt sjálfboðaliðastarf. Með hjálp þessa góða fólks
hefur þessi merkilega tilraun tekist svo vel, að útlit er fyrir