Morgunn


Morgunn - 01.12.1976, Side 72

Morgunn - 01.12.1976, Side 72
170 KYNI.KG FYRIRBÆKI inn í stofu til þess að aðgæta, hvort ég sæi þessum amrarlega gesti bregða fyrir. En svo reyndist ekki. Hefi ég hvorki séð lrann fyrr né síðar. Líða nú allmörg ár. Þá bar svo til, að staddir eru hjá mér nokkrir gestir. Sitjum við öll inni í vestari stofunni. Talið harst að ýmsum dulrænum fyrirhærum. Meðal annars sagði ég gestum minum frá fyrrgreindum dulargesti. Virtist þeim misjafnt til þeirrar fivisögu koma. Hafði einn á orði, að slíkir hlutir væru annaðhvort ímyndun ein, skrök eða draumur. En varla hafði liann sleppt orðinu, er margt óvænt bar við nær- fellt samtimis- Það kólnaði skyndilega i stofunni. Þá var likt og einhver frussaði, og barst fínger'Öur úÖi yfir viÖstadda. Brá mönnum mjög. Andartaki síðar heyrðust dynkir og skruðn- ingar frá stofunni fyrir innan. Spruttu allir upp úr sætum sinum, felmtri slegnir, til þess að athuga, hverju þetta sætti. Þá kom í ljós, að allstórt málverk, sem hafði hangið á veggn- um fyrir ofan píanóið, hafði fallið á það ofan og um leið fellt um ýmislegt lauslegt, er þar var. Þá hafði önnur minni mynd dottið niður af veggnum andspænis og lá á gólfinu. Báðar voru myndirnar óskemmdar með öllu. Voru þær nú athugaðar nánar. Málverkið hafði verið hengt upp með þeim hætti, að fii'gerðum virspotta, sem festur var sitt hvoru megin á hak- hlið þess, var brugðið vfir nagla i veggnum. A svipaðan hátt: hafði minni nryndin einnig verið hengd upp. Báðir þessir hankar voru óslitnir, og sáust engin ummerki á þeim. Nagl- arnir voru einnig óhreyfðir á sínum stað í veggjunum- Ein- hver dularkraftur eða vera hafði þvi hafið bæði málverkið og myndina upp af nöglunum samtímis, og hvorttveggja síðan fallið niður nreð ]reim afleiðingum er fyrr segir. Ósjálfrátt setlu viðstaddir ]rað i samhand við þann annarfega gest, er hafði sótt mig heim þessa sumarnótt mörgum árum fyrr, og ég var að enda við að segja þeim frá. Hefur hann trúlega viljað með þessum eftirminnilega hætti sanna tilvist sína og árétta, að fyrri heimsókn hans var hvorki imyndun, skrök né draumur. F.ða hvaða skýringu aðra vilja menn gefa á þessu undarlega fyrirhæri, sem svo margir voru vitni að?

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.