Morgunn


Morgunn - 01.12.1976, Side 73

Morgunn - 01.12.1976, Side 73
TIL LESENDA MORGUNS Eins og ykkúr mun kunnugt lauk ritstjóri MORGUNS ný- loga erindaflokki sjö erinda um dulskynjanir í rikisútvarpi. í siðasta erindi var skorað á hlustednur að senda timaritinu dulrænar frásagnir úr eigin lífi, því öll höfum við frá ein- hverju að segja i þeim efnum ef við hugsum okkur um. Það er mjög mikilvægt að slikar frásagnir glatast ekki, þvi þær gela orðið rannsóknarefni síðar. Þessari áskorun vill MORG- UNN nú sérstaklega beina til lesenda sinna. Þessar frásagnir þurfa að sjálfsögðu að vera athyglisverðar með einhverjum hætti, Það er ljóst að sumar slíkar frásagnir eru að sjálfsögðu oft mjög persónulegs eðlis og verður því tekið fullt tillit til nafnleyndar, ef þess er óskað. Sem betur fer hefui' komið út allmikið af bókum með dulrænum frá- sögnum islenzks fólks. En þó býr fólk yfir mikilli óskráðri reynslu í þessum efnum. Má jafnvel segja að vart finnist sá Jslendingur, sem ekki telji sig hafa orðið fyrir reynslu, sem ekki verður útskýrð með venjulegum hætti. MORGIJNN vill vinna að því að bjarga sem mestu af slíkum frásögnum frá glötun. Þær eiga einmitt heima í MORGNI. Sendið þær því ritstjóranum hið fyrsta. Þá vill MORGUNN einnig með öðrum hætti auka sem mest sambandið við lesendur á öðrum sviðum. Útvarpsenndaflokk- uririn um dulskjmjanir hefur vafalaust vakið hjá hlustendum ótal spurningar, sem þeim kynni að leika nokkur forvitni á að fá svör við. Sama má reyndar segja um ýmislegt af efni því, sem birst hefur í MORGNI á undanfömum árum. Ég vil því eindregið hvetja lesendur til þess að senda spurningar til min og mun ég leysa úr þeim eftir beztu getu. Með þessum hætti fá lesendur ekki einungis svör við spurningum, sem þeim eru

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.