Morgunn


Morgunn - 01.12.1976, Page 76

Morgunn - 01.12.1976, Page 76
174 IIITST J ÓRARABB lvathleen St. George í haust dvaldist hjá S.R.F.I. merkilegur mið- ill, Kathleen St. George, frá The Great Spiri- tualist Association of Great Britain í Lundún- um. Hún hefur starfað sem miðill frá 1947. Hún hefur stundað starf sitt um allt Bretland, Ameriku, í Sviss og hér á íslandi. En hún er mjög hrifin af landinu okkar og þykir sérstaklega gott að starfa hér. Þær hliðar hæfileika hennar, sem hafa vakið mesta athygli hér á landi eru blómalestrar hennar og hlutskyggni. Blómalestur fer fram með þeim hætti, að sá sem vill fá lestur kaupir sér eitt hlóm af handahófi, kemur með það á fundinn og fær miðlinum það. En hann les með ein- hverjum hætti úr blóminu ýmislegt um sálrænan þroska við- komandi í fortíð og nútíð, og rifjar oft upp ýmislegt úr lifi viðkomandi, sem sköpum hefur skipt og bendir á ókomna mögu- leika. Er nokkuð erfitt að átta sig á þvi, hvernig hún getur lesið slíkt úr blómi, sem hlutaðeigandi færir henni. Virðist lestrarbeiðandi hér með einhverjum hætti yfirfæra á blómið, sem hann kaupir, andlegar sveiflur, sem miðillinn getur svo lesið úr. En hvernig sem þessu er nú varið, þá er ekki hægt að neita þvi, að þessir blómalestrar liafa þótt mjög merkilegir að sögn þeirra sem reynt hafa, bæði hér og erlendis. Sennilega er þessi hæfileiki skyldur hlutskyggninni sem nú er orðin alkunn og jafnvel hörðustu efasemdarmen hafa ekki getað neitað. Hlutskyggni getur t. d. farið fram með þeim hætti, að á fjölmennum fundi sé safnað saman á bakka ýms- um persónulegum eignarmunum, svo sem úrum, hringum, festum og svo frv. Þessir munir eru svo lagðir á borð fyrir framan miðilinn og hann velur úr þeim einstaka muni, heldur á hlutnum i lófa sér um stund, oft með lokuðum augum, og tekur svo að lýsa mvndum og táknum, sem birtast miðlinum við það að halda á hlutnum og miðillinn les svo úr táknunum og skýrir þau. Með þessum hætti getur miðillinn komist í sam- band við þann eða þá, sem áður hafa gripinn borið, ef um það er að ræða, og gefið um þetta fólk ýmsar upplýsingar. Fer sjaldnast hjá þvi, að eigandi hlutarins kannist við sitt af hverju sein fram kemur með þessum hætti. Á slikum fundum i haust

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.