Morgunn - 01.12.1976, Síða 76
174
IIITST J ÓRARABB
lvathleen
St. George
í haust dvaldist hjá S.R.F.I. merkilegur mið-
ill, Kathleen St. George, frá The Great Spiri-
tualist Association of Great Britain í Lundún-
um. Hún hefur starfað sem miðill frá 1947. Hún hefur stundað
starf sitt um allt Bretland, Ameriku, í Sviss og hér á íslandi.
En hún er mjög hrifin af landinu okkar og þykir sérstaklega
gott að starfa hér. Þær hliðar hæfileika hennar, sem hafa
vakið mesta athygli hér á landi eru blómalestrar hennar og
hlutskyggni. Blómalestur fer fram með þeim hætti, að sá sem
vill fá lestur kaupir sér eitt hlóm af handahófi, kemur með
það á fundinn og fær miðlinum það. En hann les með ein-
hverjum hætti úr blóminu ýmislegt um sálrænan þroska við-
komandi í fortíð og nútíð, og rifjar oft upp ýmislegt úr lifi
viðkomandi, sem sköpum hefur skipt og bendir á ókomna mögu-
leika. Er nokkuð erfitt að átta sig á þvi, hvernig hún getur
lesið slíkt úr blómi, sem hlutaðeigandi færir henni. Virðist
lestrarbeiðandi hér með einhverjum hætti yfirfæra á blómið,
sem hann kaupir, andlegar sveiflur, sem miðillinn getur svo
lesið úr. En hvernig sem þessu er nú varið, þá er ekki hægt
að neita þvi, að þessir blómalestrar liafa þótt mjög merkilegir
að sögn þeirra sem reynt hafa, bæði hér og erlendis.
Sennilega er þessi hæfileiki skyldur hlutskyggninni sem nú
er orðin alkunn og jafnvel hörðustu efasemdarmen hafa ekki
getað neitað. Hlutskyggni getur t. d. farið fram með þeim
hætti, að á fjölmennum fundi sé safnað saman á bakka ýms-
um persónulegum eignarmunum, svo sem úrum, hringum,
festum og svo frv. Þessir munir eru svo lagðir á borð fyrir
framan miðilinn og hann velur úr þeim einstaka muni, heldur
á hlutnum i lófa sér um stund, oft með lokuðum augum, og
tekur svo að lýsa mvndum og táknum, sem birtast miðlinum
við það að halda á hlutnum og miðillinn les svo úr táknunum
og skýrir þau. Með þessum hætti getur miðillinn komist í sam-
band við þann eða þá, sem áður hafa gripinn borið, ef um það
er að ræða, og gefið um þetta fólk ýmsar upplýsingar. Fer
sjaldnast hjá þvi, að eigandi hlutarins kannist við sitt af hverju
sein fram kemur með þessum hætti. Á slikum fundum i haust