Morgunn - 01.12.1976, Page 78
T ?TI ÍTTI1 MÁT T
1 k) 1 U 1 1 U 11 /1L, 1 1/ZÆÆSZSVS2S2/&
Herra Ævar R. Kvaran, rithöfundur.
Mig langar til að segja þér frá sýn minni er ég sá á meðan
þér fluttuð 6. erindið í útvarpinu um yfirnáttúrulegar lækn-
ingar. l-'.g fann þá svo mikla vellíðan og ró og frið streyma
lil mín, og fyrir mig bar framliðið fólk í hvítum kirtlum,
konur og menn, og var það starfandi við læknisaðgerðir á
sjúku fólki.
Ekki þekkti ég neitt af því er ég sá.
Mér þj’kir þetta merkilegt.
Eg hef alla tið síðan ég var unglingur séð fyrirbæri, talað
við látna vini, og aðra sem ég ekki þekki, og það hefur beðið
mig fyrir orðsendingar til vina hér á jörðu. Ég tel þetta rnikið
merkilegt fyrirbæri.
Eg bið yður blessunar.
Eg er 81 ára, og ég man allt frá liðnum timum eins og það
væri i dag.
Sigurrós Jóhannsdóttir,
Hverfisgötu 83,
Reykjavík.