Kylfingur - 01.05.2006, Side 34
WsW'fTI
svtirað
1 « ■ ilnlnW
1
■:: ‘írf iiiiij#
Hhb Nafn? -Ragnheiður •Lárusdottir'
Aldur? Á besta aldri á hverjum tíma
í GR síðan? Alltof stutt
Forgjöf? Ég finn það á mér að ég er
á hraðri niðurleið
Slæsari eða húkkari? Hvað er það?
Á ekki að slá beint á braut?
Sullari eða þrípúttari? Það er alveg
ótrúlega misjafnt
St. Andrews eða Augusta National?
Bara Grafarholtsvöllur
Erfiðasta höggið í golfi? Öll
Uppáhaldsbraut á völlum GR?
Fallegust er 7. brautin í Grafarholtí
Uppáhaldsvöllur? Grafarholtsvöllur
Skemmtilegasti kylfingurinn? Siggi Dags.
Drgumahollið? Fullt af Mafíósum
Markmið í golfinu? Alltaf að gera betur
Holl ráð fyrir golfið? Það þarf að aefa
< þessa íþrótt
Ertu í golfklíku og ef svo er, hver er hún?
MAFÍÓSUM, Bella Donna
Ég held með? Áfram VALUR!
Að vera í GR er? Forréttindi, prontó!
Félagsstarf
í Golfklúbbi Reykjavíkur
á ári. Konur halda sitt sérstaka uppskeru-
mót með öllu tilheyrandi, en það er eins
og alltaf að drífandi leiðtogar verða að
halda utan urn svona starf, því annars ger-
ist ekki neitt.
Stórglæsilegt Gala-kvennakvöld var
haldið í byrjun mars, rúmlega 100 konur
gerðu sér dagamun, mættu í síðkjólum og
slógu að sjalfsögðu allar í gegn. Ekki má
gleyma að glæsilegasta kvennamót lands-
ins hefur verið haldið í Grafarholti undan-
farin 3 ár, Opna Nancy-Lopez/Nevada
Bob og selst upp í það á nokkram klukku-
stundum.
Aðrar uppákomur eru t.d. Jónsmessan
sem hefur hingað til tekist þokkalega,
leikið golf og slett úr klaufunum, stór-
glæsileg verðlaunaafhending í lok meist-
aramóts, stiginn dans fram eftir kveldi og
að ógleymdri Bændaglímu. Það má heita
furðulegt að í 2.350 rnanna klúbbi komi
aðeins rúmlega 100 manns í Bændaglím-
una. Svo kvarta menn yfir að félagsstarf-
ið sé lélegt.
Það er alltaf þannig að maður er manns
gaman, það er erfitt fyrir stjómarmenn að
skipuleggja félagsstarf þegar mætingar
eru dræmar. Eg hef gengið með það í
maganum í mörg ár að halda árshátíð t.d.
í febrúar. Ef eitthvað hefur verið, þá draga
allir í kringum mig úr mér kjarkinn og
telja að mæting verði slæleg. Skora ég á
einhverja hressa menn/konur að leggja á
sig smá vinnu og koma á laggimar góðri
árshátíð, eins og á árum áður, konur í síð-
kjólum og herrar í smóking. Það hæfir
stærsta golfkklúbbi landsins.
Að lokum skal minnast á Greifakvöld-
ið, sem er herrakvöld GR, virðing og þátt-
taka hefur aukist með áranum, allur ágóði
rennur til unglingastarfs klúbbsins og er
það vel.
Við skulum ekki gleyma því að allur sá
fjöldi af boðsmótum og fyrirtækjamótum
sem í boði eru slær á félagslegu þörfina
hjá stórurn hópi kylfinga í GR, en það er
engin launung að betur má ef duga skal.
Skora ég á félagslega þyrsta kylfinga að
gefa sig fram og hjálpa til við að auka fél-
agslega þáttinn, því hann verður að koma
innan frá.
Jón P. Jónsson,
varaformaður GR.
Ég sé mig tilneyddan til að stinga niður
penna og fjalla lauslega um félagsstarf-
ið í GR. Komið hefur fram á spjallrás-
um netsins að margir kvarta yfír lélegu
félagsstarfi innan klúbbsins. Förum
lauslega yfir það sem er í boði.
Unglingastarfið er mjög öflugt með
allskonar uppákomum, æfingaferðum og
keppnum sem heldur okkai' yngri kylfing-
um við efnið. GR býður t.a.m. uppá
bamagolf í Básum á laugardögum í sam-
starfi við Nevada Bob, rekur golfskóla á
Korpu á sumrin í samstaifi við ITR og
býður að auki uppá æfingar fyrir alla
krakka sem eru meðlimir í klúbbnum. Þar
sem golfsumarið er alltof stutt og skólar
byrja um miðjan ágúst, þá miðast öll
vinna við sumartímann, en einungis er um
8-9 vikna tímabil að ræða. Yfir vetrartím-
ann eru æfingar haldnar innanhúss og í
Básum. Árangur síðustu sumra stendur
uppúr, GR-ingar eru margfaldir Islands-
og stigameistarar í flokkum unglinga. Það
vinna 3-6 kennarar og leiðbeinendur með
krökkunum okkar og hefur þeim tekist
mjög upp.
Kvennastarf
Sérstök kvennanefnd starfar innan
klúbbsins og tekur að sér ferðir og mót á
vegum klúbbsins. Kvennanefndin skipu-
leggur kvennagolf einu sinni í viku í sér-
stökum kvennatímum sem eru rnjög fjöl-
sóttir. Farnar era ein til tvær kvennaferðir
30 KYLFINGUR