Fréttablaðið - 30.11.2010, Blaðsíða 18
Hjálmar eru mikilvægir við skíðaiðkun enda eru höfuðmeiðsl meginorsök dauðaslysa og
alvarlegs líkamstjóns á skíðasvæðum. Snjóbrekkuíþróttum fylgir töluverð slysahætta. Börnum og
ungmennum er hættara við slysum en þeim sem eldri eru.
Á jólahlaðborð með góðri sam-
visku heitir nýr fyrirlestur sem
einkaþjálfarinn Sölvi Fannar
Viðarsson heldur í fyrirtækjum
fyrir jólin. „Þetta er hluti af
fyrirlestraröð sem ég kalla Ein-
falt en virkar! en fyrirlestrarnir
eiga það sameiginlegt að vera
stuttir en kraft miklir og fræð-
andi. Nýi fyrirlesturinn fjallar
um það hvernig við getum notið
lífsins betur, orðið kynþokka-
fyllri, aukið aðdráttarafl okkar,
orðið betri elskhugar, aukið sjálfs-
traustið og farið á jólahlaðborð
með góðri samvisku svo dæmi séu
nefnd. Efnið er sett fram á gaman-
saman hátt með það að markmiði
að áhorfandinn nái að drekka í sig
boðskapinn en sé ekki að berjast
við að halda meðvitund.“
Sölvi segir viðfangsefnin flókin
en að það sem fólk læri á námskeið-
inu sé hins vegar ekki flókið.
„Eitt af því sem ég tek sérstak-
lega fyrir er mataræðið en það að
nærast er að miklu leyti félags-
leg og tilfinningaleg athöfn og þá
sérstaklega um hátíðarnar. Ef við
hugsum okkur fyrstu kynni okkar
af mat snúast þau um að njóta
algerrar verndar í faðmi móður á
sama tíma og einni af grunnþörf-
unum er fullnægt. Næring og til-
finningar eru því nátengd fyrir-
bæri strax frá upphafi og kannski
ekki svo skrítið að fólk leiti hugg-
unar í mat eins og algengt er, svo
ekki sé nú talað um alls kyns fíkni-
hegðun.“
Sölvi fléttar inn í fyrirlestur-
inn alls konar fróðleik sem hann
hefur viðað að sér í gegnum árin.
„Á hverri sekúndu er til dæmis
áætlað að eigi sér stað milljarður
aðgerða í líkamanum, sem jafn-
ast á við það að sautján prósent
af öllum jarðarbúum væru að tala
saman í einu. Sem betur fer er
þetta að mestu ósjálfráð starfsemi.
Þetta er hins vegar flókin mynd og
ef við ætlum einhverju að breyta
er svo margt sem þarf að taka inn
í myndina. Af því er ljóst að mörg
ráð sem eru á sveimi eru í besta
falli óraunhæf.“
Sölvi segist byggja efni fyrir-
lestrarins á viðurkenndum rann-
sóknum og efni sem hann hefur
viðað að sér á löngum starfs-
ferli sem einkaþjálfari og fram-
kvæmdastjóri heilsuradgjof.is
„Besta hrósið fékk ég um daginn
þegar maður hringdi til mín og
spurði hvernig ég hefði farið að
því að kenna honum svona mikið
um sjálfan sig á hálftíma.“ Nánar
á www.heilsuradgjof.is.
vera@frettabladid.is
Hálftíma sjálfsskoðun
Einkaþjálfarinn Sölvi Fannar Viðarsson fór nýverið af stað með fyrirlestur sem hann nefnir Á jólahlað-
borð með góðri samvisku. Þar fjallar hann meðal annars um mataræði, aðdráttarafl og kynþokka.
Fyrirlesturinn er hluti af fyrirlestraröð sem Sölvi Fannar kallar Einfalt en virkar!
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Boðið er upp á hálftíma hugleiðslu-
bænastundir í Ástjarnarkirkju í
Hafnar firði í vetur. Þær eru á mið-
vikudögum klukkan 16.30. Um er
að ræða svokallaða Centering
prayer bæn. Aðferðin er mjög
lík austrænni íhugun en þetta
er hin kristna leið til að kyrra
hugann. Hún er ekki slökunar-
æfing en er endurnærandi á
sama tíma og fullri árvekni er haldið.
astjarnarkirkja.is
©
20
10
O
tic
on
In
c.
A
ll
Ri
gh
ts
R
es
er
ve
d.
Pantaðu tíma í
heyrnarmælingu í síma
568 6880
og prófaðu Agil
G l æ s i b æ | Á l f h e i m u m 7 4 | 1 0 4 R e y k j a v í k | Þ j ó n u s t a á l a n d s b y g g ð i n n i | S í m i 5 6 8 6 8 8 0 | w w w . h e y r n a r t æ k n i . i s
Áttu í erfiðleikum með að heyra í fjölmenni eða klið? Finnst þér aðrir tala lágt eða óskýrt?
Tekur þú sjaldnar þátt í hópumræðum en áður? Allt þetta getur verið merki þess að heyrn
þín sé farin að versna.
Agil eru byltingarkennd ný heyrnartæki sem hjálpa þér að heyra betur með minni áreynslu.
Tölvuörflagan í Agil er helmingi öflugri en áður hefur þekkst en tækin eru samt um helmingi
minni en hefðbundin heyrnartæki og búa þar að auki yfir þráðlausri tækni.
Ekki láta heyrnarskerðingu halda aftur af þér og verða til þess að þú missir úr í samskiptum
við aðra. Upplifðu nýja og betri hljóðveröld með Agil heyrnartækjum.
Upplifðu nýja hljóðveröld...
...og njóttu þess besta með Agil heyrnartækjum
„Að geta heyrt tónlistina sína aftur eins
og hún á að hljóma er lítið kraftaverk
- ég heyri aftur söng fuglanna“
Bubbi Morthens
Borgartúni 24
105 Reykjavík
Hæðasmára 6
201 Kópavogi
Hafnarborg
220 Hafnarfjörður
Sími: 585 8700
www.madurlifandi.is
Lærðu að baka hollar
og ljúffengar jólakökur
Verð aðeins: kr. 3.900.-
Meistarakokkurinn Sigurrós Pálsdóttir kennir
hvernig hægt er að búa til hollar og ljúffengar
jólakökur úr lífrænu hráefni. Kynntar verða nýjar
uppskriftir ásamt ráðleggingum um innkaup og
notkun á heilnæmu hráefni fyrir jólin.
Dagsetning: 2. desember frá kl. 18:00 til 20:00
Staður: Maður lifandi • Borgartúni 24
Skráning: gg@madurlifandi.is
Sigurrós Pálsdóttir
Forstöðumaður veitingasviðs
hjá Maður lifandi
Sími 551 2070.
Opið mán.-fös. 10-18.
Laug. 10-14.
Góð þjónusta - fagleg
ráðgjöf.
www.misty.is
Teg: K 37126
Litur: grátt Stærðir: 36 - 40
Verð: 18.650.-
Full búð af
nýjum vörum.
Komdu og líttu á
úrvalið!
Teg:K 36984
Litir: rauðir og svartir
Stærðir: 36 - 40
Verð: 18.650.-