Fréttablaðið - 19.01.2011, Qupperneq 1
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sími: 512 5000
Miðvikudagur
skoðun 12
19. janúar 2011 MIÐVIKUDAGUR
1
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
2
Þ að er margt undarlegt sett á diskana í Suður-Ameríku, en ég smakkaði bara bólivískan naggrís sem var hvarvetna grillaður lifandi fyrir framan mann. Reyndar náði ég ekki að skilgreina ógeðs-legt bragðið, því ég var of meðvituð um hvað í munninum var,“ segir Katrín Helga Skúladóttir, sem í vetur gerði víð-reist um Suður-Ameríku með æskuvinkonu sinni Andreu Ósk Gunnarsdóttir. Katrín Helga er flugmælt á spænsku eftir ár sem skiptinemi í Argentínu, en þær Andrea Ósk höfðu fyrir margt löngu ákveðið að leggjast í ferðalög eftir stúdentspróf. Fyrsta kastið varð Katrín Helga samt að strjúka á sér magann ef hún varð svöng þar sem mál-leysið var algert á báða bóga hjá skiptinemafjölskyldunni.„Sem skiptinemi ferðaðist ég lítið, en við veiðar á pírana-fiskum sá ég að ævintýrin biðu mín ef ég færi um Suður-Ameríku á eigin forsendum. Mannlíf og menning Búenos Aíres kveikti líka í mér, en þar gengur fólk um syngjandi og dansar tangó á götum úti,“ segir Katrín Helga.
Vinkonurnar Katrín Helga Skúladóttir og Andrea Ósk Gunnarsdóttir héldu á vit ævintýra Suður-Ameríku:Á stíg dauðans
Mercedes SL600 bifreið skreytt Swarovski-kristöllum
var á meðal þess sem fyrir augu bar á bílasýningunni
Tokyo Auto Salon um helgina. Hún fer árlega fram í
Tókýó og er stærsta bílasýning í heimi þar sem yfirleitt
eru meira en 600 breyttir og sérsmíðaðir bílar til sýnis.
DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGISÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS
· Tekur 12 Kg · Hljóðlát· Stórt op > auðvelt að hlaða· Sparneytin
12 kg
Þvottavélog þurrkari
Bonito ehf. Friendtex
Faxafen 10, 108 Reykjavík, sími: 568 2870 - www.friendtex.is
Opnunartími:mánud. - föstud. kl. 11:00 - 18:00 laugard.11:00 - 16:00
ÚTSALA
ALLT AÐ 70 % AFSLÁTTUR
Nú 3 flíkin fríBorgar 2 og 3 flíkin fylgir frítt meðódýrasta flíkin er frí.
BÍTIÐ
MEÐ HEIMI OG KOLLU ALLA VIRKA DAGA KL. 6.50
eldhúsiðMIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 2011Eldhúsiðsérblað • miðvikudagur 19. janúar 2011
Sögurna ... tölurnar... fólkið...
Sprotafyrirtæki
Sex atriði um
fjármögnun
8
Byr
Tveir bankar
bítast á
2
Hækkun olíuverðs
Þróun sem bítur í
skottið á sér 6-7
Veffang: visir.is – Sími: 512 5000
H E L S T Í Ú T L Ö N D U M
Miðvikudagur 19. janúar 2011 – 1. tölublað – 7. árgangur
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson
Öðruvísi banki bíður
eftir græna ljósinu
Unnið er að stofnun nýs banka sem á engan sinn líka hér. Stofnendur leit-uðu ráða hjá fyrrverandi forstjóra VBS og PricewaterhouseCoopers.
Aftur í veikindaleyfi
Steve Jobs, framkvæmdastjóri
Apple, er nú í veikindaleyfi í annað
sinn á tveimur
árum. Jobs er
55 ára og hefur
fengið krabba-
mein í bris og
gengist undir
lifrarígræðslu.
Jobs hefur gert
fyrirtækið að
einu því stæ t í töl i
Norska hugbúnaðar-
fy r i r t æk ið O per a
stefnir að því að þre-
falda gagnaflutning
hingað á næstu árum.
Fyrirtækið rekur net-
vafra fyrir einkatölv-
ur og farsíma og vist-
ar farsímahluta Opera-
vafrans í gagnaveri Thor
Opera þarf
meira pláss
3 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Eldhúsið
Markaðurinn
veðrið í dag
19. janúar 2011
15. tölublað 11. árgangur
Vel nýtt um allan heim
Lögfræðiaðstoð Orator er
30 ára.
tímamót 14
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
ÓDÝRT FYRIR ALLA!
Nýr tilboðsbæklingur í dag
Þær íslensku vinsælar
Yfir tvö þúsund manns hafa
séð Rokland í bíó og um tíu
þúsund Gauragang.
bíó 18
FÓLK Lagið Stick ‘Em Up með
hinni sálugu Quarashi heyrist í
myndunum Death Race 2, sem
kom út í lok árs 2010, og The
Mechanic sem er væntanleg á
árinu.
„Ég vissi ekki af þessu fyrr
en ég sá þetta á Youtube, þar
eru menn greinilega fyrstir með
fréttirnar,“ segir Ómar Hauks-
son, rappari í hljómsveitinni áður
en hún hætti árið 2005. „Þetta
kemur á óvart, ég bjóst ekki við
þessu. Það er vonandi að þetta
skili sér inn á bankareikninginn
hjá manni.“
Lög Quarashi heyrðust víða
upp úr aldamótum þegar hljóm-
sveitin hafði samið við útgáfuris-
ann Sony. - afb / sjá síðu 26
Quarashi gengur aftur:
Lag í tveimur
kvikmyndum
STJÓRNSÝSLA Umboðsmaður Alþing-
is sendi borgarstjórn Reykja víkur
bréf um áramót þar sem hann
krefst svara við því „hvort teknar
hafi verið einhverjar ákvarðanir
eða gripið til einhverra viðbragða
sem eru til þess fallin að koma í
veg fyrir að sú staða sem kom upp
í [REI-málinu] endurtaki sig.“
Tryggvi Gunnarsson, umboðs-
maður Alþingis, tók REI-málið til
athugunar haustið 2007, eftir að
harðvítug átök höfðu staðið um
það í borgarstjórn. Málið snerist
um samruna félagsins Reykjavík
Energy Invest (REI), dótturfélags
Orkuveitunnar (OR), við Geysi
Green Energy, sem var í meiri-
hlutaeigu FL Group og Glitnis, og
leiddi til mesta upplausnarástands í
sögu borgarstjórnar Reykjavíkur.
Tryggvi sendi í tvígang út
spurningalista vegna málsins; tólf
spurningar til allra eigenda OR í
október 2007 og sex spurningar til
borgarstjórnar í lok febrúar 2008
sem að stórum hluta snerust um
aðkomu Vilhjálms Þ. Vilhjálms-
sonar, þá borgarstjóra, að mál-
inu. Spurningunum var svarað,
meðal annars með þeim orðum að
til stæði að endurskoða regluverk-
ið til fyrirbyggja að svona nokkuð
gæti endurtekið sig.
Í samræmi við starfsvenju ákvað
hann að bíða með að ljúka athugun-
inni til að gefa stjórnvöldum færi á
að ráðast í nauðsynlegar breyting-
ar. Í desember 2008 sendi hann svo
enn bréf á borgarstjórn og spurð-
ist fyrir um hvað málinu liði. Enn
virtist sú staða vera uppi að vafi
léki á um hvort OR starfaði á sviði
einkaréttar eða opinberrar stjórn-
sýslu. Ekkert hefði því breyst.
Því bréfi var svarað 5. mars
2009, efnislega á þann veg að vinn-
an stæði enn yfir. „Nú eru liðnir
tæplega 22 mánuðir frá bréfi
borgarstjóra Reykjavíkurborgar
til mín,“ skrifar Tryggvi í nýjasta
bréfi sínu. Á fundi sem hann átti
af öðru tilefni með borgarráði 18.
nóvember hafi aftur komið fram
að vinnan stæði enn yfir.
Nú vill umboðsmaður sem áður
segir vita hvort eitthvað hafi gerst
í málinu á þessum 22 mánuðum.
Hann óskar eftir að svar við því
berist fyrir 2. febrúar. - sh
REI-athugun tafin í tvö ár
Athugun umboðsmanns Alþingis á REI-málinu hefur verið í salti síðan Reykjavíkurborg boðaði breytingar
á regluverki sínu fyrir 22 mánuðum. Umboðsmaður hefur ekkert heyrt síðan og hefur nú misst biðlundina.
VÆTUSAMT SYÐRA Í dag verða
víða sunnan 8-13 m/s, en 10-18
SA-til. Stíf SV-átt í kvöld. Vætusamt
einkum SA-lands en úrkomulítið
NA-til. Hiti 1-8 stig.
VEÐUR 4
3
5
6
5
3
ÖRLAR AF DEGI Í REYKJAVÍK Útsýnið frá Hallgrímskirkju í gærmorgun minnir á að skammdegið getur verið ægifagurt. Ljósin lýsa upp
borgina en gufubólstrarnir frá Hellisheiði minna á hvaðan þægindi nútímamannsins eru ættuð. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Heimsmeistarakeppnin
Í HANDBOLTA 2011
Ekkert bandarískt skjól
Ekkert hefðbundið vestrænt
bandalag er í boði lengur
og ekkert bandarískt skjól
til að skríða í.
umræðan 13
Ísland er komið áfram í milli-
riðlakeppnina á HM í handbolta
eftir þriggja marka sigur á Aust-
urríki, 26-23, í gær. Sigurinn var
sérstaklega sætur í ljósi þess að
þeir strákarnir okkar voru fimm
mörkum undir í hálfleik, 16-11.
Íslendingarnir sýndu hins
vegar hvað í þeim býr með
magnaðri frammistöðu í síðari
hálfleik. Björgvin Páll Gúst-
avsson varði eins og berserkur
í markinu fyrir aftan risastóran
íslenskan varnarmúr.
„Þetta sýnir þann frábæra
karakter sem býr í þessu liði.
Ég trúi því varla sjálfur hvern-
ig þetta fór á endanum. Á tíma-
bili leið okkur Didda [Ingimundi
Ingimundarsyni] þannig að þeir
gætu ekki skorað gegn okkur,“
sagði varnarjaxlinn Sverre
Jakobsson við Fréttablaðið eftir
leik.
Ísland er nú með öruggt sæti
í milliriðlakeppninni eftir fjóra
sigra í röð. Liðið mætir Nor-
egi í lokaleik riðlakeppninnar á
fimmtudag. - esá, hbg / sjá síðu 48
Þriggja marka sigur í gær og Ísland komið áfram:
Strákarnir okkar í
heimsklassa í Svíþjóð