Fréttablaðið - 19.01.2011, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 19.01.2011, Blaðsíða 24
 4 HANNYRÐIR Margir eru sjálfsagt með hugann við skírnarkjóla en þá er hægt að kaupa, leigja eða gera sjálfur. Víða á netinu er að finna upp- skriftir að skírnarkjólum og eins eru í boði ýmis námskeið þar sem kennt er að búa þá til. „Ég er uppalin á Egilsstöðum og hef því haft hreindýrin fyrir augum frá unga aldri,“ segir Jóna Björt Friðriksdóttir klæðskeri, sem hóf að nýta hreindýraleður í flíkur fyrir um fjórum árum. „Mér fannst líka svo mikil synd hve mörgum skinnum er hent en 1.300 hreindýr eru veidd á ári og ég myndi halda að um þúsund af þeim skinnum fari í súginn,“ segir Jóna Björt, sem kaupir skinnin sín beint af veiðimönnunum. „Ég reyni að fá þau eins fljótt og unnt er en það mega ekki líða margir klukku- tíma frá því dýrið er fláð og þar til skinnið fer í salt svo það fari ekki að úldna,“ útskýrir Jóna Björt, sem geymir skinnin í salti fram í september þegar hún sendir þau í sútun á Sauðárkrók með leiðbein- ingum um liti og áferð. Jóna Björt segir nokkra sér- hæfingu þurfa til að vinna með hreindýraskinnið. „Ég hef prófað mig áfram til að finna út hvernig best sé að vinna með efnið. Ann- ars er það mjög mjúkt og skemmti- legt hráefni og alveg æðislegt að klæðast því, enda er það ótrúlega þunnt og lipurt, næstum eins og silki“ segir hún. Jóna Björt segir áferð leðursins mjög sérstaka. „Ég fæ þetta líka svo skemmtilega sútað. Til dæmis er holdrosinn, hliðin sem snýr að dýrinu, þannig að æðarnar sjást, og er næstum eins og endurprent- un af dýrinu sjálfu,“ segir hún og bætir við að hvert skinn hafi mjög sterkan karakter. „Stundum get ég ekki hugsað hvernig flíkin eigi að vera fyrr en ég hef séð skinnið og velt því á alla kanta. Leðrið stjórn- ar í raun útkomunni á flíkinni.“ Jóna saumar mest kjóla úr skinn- inu en einnig toppa, pils og buxur. Nýlega fór hún að búa til reiðfatn- að úr skinninu, bæði reiðskálmar og reiðbuxur. „Reiðskálmar eru oft úr þykku leðri sem getur verið hamlandi en skálmar úr hrein- dýraleðri eru liprar og góðar,“ segir Jóna, sem gerir bæði skálm- ar og reiðbuxur eftir máli fyrir hvern og einn. Nánari upplýsinga má leita á vefsíðunni www.klaedskerinn.is og í síma 867-1441 en Jóna er með vinnustofu bæði í Reykjavík og á Egilsstöðum. solveig@frettabladid.is Leðrið stjórnar flíkinni Jóna Björt Friðriksdóttir klæðskeri hefur síðastliðin ár hannað og saumað flíkur úr íslensku hreindýra- skinni. Hún segir leðrið mjúkt og létt og henta vel í kjóla, töskur, slár og reiðfatnað. Jóna Björt við vinnu sína. Reiðskálmar úr hreindýraskinni. Æðar dýrsins sjást í leðrinu. Reiðbuxur sem voru hannaðar í því augnamiði að hægt væri að nota þær líka á veiðum. MYND/KOX Heimilisiðnaðarfélagið stendur fyrir fjölmörgum áhuga- verðum námskeiðum á vorönn. Þar má nefna rússneskt lopapeysuhekl, sem er glænýtt nám- skeið. Kennari verður Patrick Hassel Zein en uppskriftir verða sóttar í nýútkomna bók sem Patrick gaf út sumarið 2010, Rússneskt hekl. Meðal annarra námskeiða sem eru á boð- stólum hjá Heimilisiðnaðarfélaginu eru: Prjón fyrir byrjendur, þjóðbúningur kvenna – upp- hlutur eða peysuföt, þjóðbúningur karla, barnabúningur, víravirki, spuni og svuntuvefn- aður og er þá fátt eitt talið til. Nánari upplýsingar er að finna á www.heimilis- idnadur.is Hekl, prjón og þjóðbúningar ARAGRÚA ÁHUGAVERÐRA NÁMSKEIÐA ER AÐ FINNA Á VEFSÍÐU HEIMILISIÐNAÐARFÉLAGSINS. www.istex.is Spurðu um sápuna þar sem lopinn fæst. Fékkstu lopapeysu í jólagjöf? Farðu vel með hana og notaðu Lopa ullarsápu við þvottinn. FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN MEIRA SKÚBB Meiri Vísir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.