Fréttablaðið - 20.01.2011, Blaðsíða 27
FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2011
Hinar svokölluðu spjaldtölvur njóta í dag ört vaxandi vinsælda. Sam-
sung hefur hellt sér út á þann markað af fullum krafti og Samsung Ga-
laxy Tab er góður vitnisburður um það. Samsung Galaxy Tab hefur allt
sem slík græja þarf að hafa og rúmlega það. Hún er einstaklega nett
með 7“ snertiskjá, þráðlausri tengingu, myndavél, 3G og er auk þess
sími. Samsung Galaxy Tab keyrir á Android 2.2 stýrikerfi, er með 1
Ghz örgjörva og 16 GB minni. Með þessa græju í höndunum þarftu
heldur ekki að hafa áhyggjur af að villast þar sem hún inniheldur
Google Maps leiðsögukerfi. Frábær spjaldtölva á aðeins 149.999 kr.
Sjón er sögu ríkari í verslunum BT.
Samsung Galaxy Tab
spjaldtölva
Verslanir BT eru í Skeif-
unni 11 í Reykjavík og
í verslunarmiðstöðinni
Glerártorgi á Akureyri.
„Við bjóðum upp á mjög
gott úrval af fartölvum
og að sjálfsögðu hinum ýmsu
fylgihlutum í verslunum
okkar,“ segir Jórunn Björk
Magnúsdóttir, verslunarstjóri
BT í Skeifunni. „Hjá okkur má
meðal annars finna fartölvur
frá Acer, Asus, HP, Packard
Bell, og síðast en ekki síst Sam-
sung.“
„Fartölvurnar frá Samsung
eru að koma mjög sterkar inn hjá
okkur og viðskiptavinir okkar hafa
í auknum mæli snúið sér að þessu
virta vörumerki, enda er Samsung
þekkt fyrir gæðavörur og að sjálf-
sögðu mjög breiða vörulínu.“
Jórunn segir að nú bjóðist í
verslunum BT breið lína af Sam-
sung-fartölvum við allra hæfi, og
kosta til dæmis ódýrustu Samsung-
tölvurnar aðeins 79.999 krónur.
Mjög mikilvægt er, þegar
hugað er að kaupum á fartölvu, að
gera sér grein fyrir til hvers nota
eigi vélina. Er þetta vél sem nota
á í skóla, eða eru kannski gerð-
ar meiri kröfur til vélarinnar, til
dæmis í myndvinnslu eða til að
spila tölvuleiki, svo eitthvað sé
nefnt. Sölumenn í verslunum BT
hjálpa viðskiptavinum að finna
réttu vélina hverju sinni.
Spurð hvað sé mikilvægast að
hafa í huga við kaup á fartölvu,
segir Jórunn, að nauðsynlegt
sé að velja vél við hæfi, eins og
áður sagði, og ekki síður að velja
tölvu eða vörumerki, sem tryggir
góða endingu, gæði og þjónustu.
„Margir af okkar viðskiptavin-
um notfæra sér einnig þann val-
kost að kaupa aukatryggingu með
nýju fartölvunni sinni, en með
því bætist eitt ár við ábyrgðar-
tímann, auk þess sem tölvan er
þá tryggð fyrir óhöppum og
slysum sem auðvitað geta
alltaf komið fyrir.“
„Þess má einnig geta,“
segir Jórunn, „að margir kjósa
að koma til okkar í BT í Skeifunni
til að kaupa fartölvur og annan
tækjabúnað vegna þess að við bjóð-
um upp á mjög rúman afgreiðslu-
tíma, en við höfum opið til klukk-
an 22 alla daga vikunnar, þannig
að öll fjölskyldan getur komið til
okkar í góðu tómi til að velja sér
rétta búnaðinn. Við bjóðum einn-
ig mjög gott úrval af öllum auka-
búnaði sem tilheyrir tölvum, eins
og t.d. fartölvutöskur, flakkara,
prentara, lyklaborð, mýs, minnis-
lykla og margt margt fleira.“
Sölumenn hjálpa til
við valið á réttu vélinni
Nauðsynlegt er að velja sér vél við hæfi að sögn Jórunnar Bjarkar, verslunarstjóra BT. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Samsung RV510-A02SE
„Skóli, netið, vinna, gleði
– þessi er til í tuskið!“
• Skjár: 15,6“ LED HD
• Örgjafi: Intel Pentium T3500
• Skjástýring: Intel GMA X4500
á móðurborði
• Harður diskur: 320 GB Sata
• Vinnsluminni: 2GB
DDR3
Verð: 99.999 -
Samsung SF510-S01
„Glæsileg og kröftug – með útlitið í lagi!“
• Skjár: 15,6“ LED HD
• Örgjafi: Intel Core i3 370M
• Skjákort: Nvidia Geforce
310M
• Harður diskur: 500 GB Sata
• Vinnsluminni: 4GB DDR3
Verð: 169.999 –
Samsung R540-SO6SE
„Vinnuþjarkur – stór, öflug og kraftmikil“
• Skjár: 15,6“ LED HD
• Örgjafi: Intel Core i3 370M
• Skjákort: ATI Radeon
HD545
• Harður diskur: 500 GB Sata
• Vinnsluminni: 4GB DDR3
Verð: 139.999 -
Samsung R530-JA06SE
„Flott tölva fyrir netið, skjölin, skólann
og myndirnar“
• Skjár: 15,6“ LED HD
• Örgjafi: Intel Celeron Dual
Core T3300
• Skjárstýring: Intel GM45
• Harður diskur: 250 GB Sata
• Vinnsluminni: 2GB DDR3
Verð: 79.999 -
Breið lína af Samsung-fartölvum er í
boði í verslunum BT.