Fréttablaðið - 20.01.2011, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 20.01.2011, Blaðsíða 46
30 20. janúar 2011 FIMMTUDAGUR Strákarnir í Diktu hafa verið á ferðalagi um Þýska- land síðustu daga. Áhorf- endur hafa látið þá vita hvernig staðan er í leikj- um íslenska landsliðsins og staðalbúnaður hótel- herbergja í Hollandi kom skemmtilega á óvart. „Stemningin er mjög góð. Ég get ekki sagt annað,“ segir Jón Þór Sigurðsson, Nonni kjuði, trommu- leikari hljómsveitarinnar Diktu. Dikta er nú á tónleikaferðalagi um Þýskaland og var í Stuttgart þegar Fréttablaðið náði í Nonna. Hann segir ferðina hafa verið góða þótt ýmislegt sé öðruvísi á meginlandi Evrópu en á Íslandi – staðal búnaðurinn í einu hótelher- berginu var til að mynda skotvopn. „Við vorum að spila í Þýskalandi, en hótelið okkar var hinu megin við landamærin, í Hollandi,“ segir Nonni. „Það var riffill við hliðina á rúminu mínu á hótelinu. Mjög eðlilegt, en heimilislegt engu að síður.“ Nonni er góð skytta, en eins og Fréttablaðið greindi frá á dögun- um lenti hann í öðru sæti á lands- mótinu í enskum riffli fyrir hönd Skotfélags Kópavogs. „Ég er annál- uð skytta, en það var svo sem ekki gert meira í því en að hafa riffilinn við hliðina á rúminu. Okkur fannst þetta mjög fyndið.“ Dikta kemur fram á 200-300 manna stöðum í Þýskalandi og hefur mætingin að sögn Nonna farið fram úr björtustu vonum. Tónleikarnir hafa farið fram á svipuðum tíma og leikir íslenska landsliðsins á HM í Svíþjóð, en áhorfendur hafa verið duglegir við að láta meðlimi hljómsveitarinn- ar vita hver staðan er í leikjunum. Þá eru hundruð platna sem teknar voru með til að selja uppseld. Hljómsveitin kom fram í Frank- furt í gær. Hún fer svo til Bret- lands og kemur fram í London í kvöld. „Við erum svo að hugsa um að kíkja á fótboltaleik í Portsmouth – kíkja á Hemma Hreiðars og félaga,“ segir Nonni. Portsmouth glímir við Leeds á laugardaginn, en Nonni er einnig með háleitar hugmyndir um að glíma við Her- mann Hreiðarsson. „Ég hef verið valinn til að taka á Hemma. Það er spurning hvernig það fer, en hann er náttúrlega orðinn gamall.“ Hefurðu eitthvað í hann? „Ég veit það ekki. Ég er mjög spenntur að sjá hvað gerist.“ atlifannar@frettabladid.is Heimilislegt að sofa með riffil við hliðina á rúminu FERÐAST UM ÞÝSKALAND Strákarnir í Diktu fylgjast með árangri íslenska landsliðsins í handbolta með aðstoð áhorfenda á tónleikum sínum. Paul Banks, söngvari bandarísku hljómsveitarinnar Interpol, kallaði Carlos Dengler, fyrrverandi bassa- leikara hljómsveitarinnar, fífl í viðtali við ástralska útvarpsstöð. Hann sagði einnig að Dengler væri snillingur. Carlos Dengler yfirgaf Interpol í maí í fyrra, skömmu eftir að hljómsveitin kláraði síðustu plötu sína. Ákvörðunin var sögð vera gerð í sátt og sam- lyndi, en David Pajo, fyrrverandi bassaleikari Slint, tók stöðu Denglers. „Ég er þannig gerður að ef mér finnst einhver vera snillingur læt ég alls konar vesen yfir mig ganga frá honum,“ sagði Paul Banks. „Ef maður er í návist snillinga finnst manni þess virði að þola fíflaganginn í þeim. Hæfileikar á borð við þá sem hann býr yfir eru sjaldgæfir.“ Banks sagði einnig að óvíst væri hvort Pajo yrði varanlegur meðlimur hljómsveitarinnar, en ásamt honum hefur Brandon Curtis, úr hljómsveitinni Secret Machines, gengið til liðs við Interpol á tón- leikaferðalaginu sem nú stendur yfir. Carlos D er fífl og snillingur HALTU MÉR, SLEPPTU MÉR Paul Banks, söngvari Interpol, elskar bassaleikarann Carlos D eins og hann er. Grínistinn Ricky Gervais hefur tjáð sig um ástæðuna fyrir því að hann hvarf af sviðinu meðan á Golden Globe hátíðinni stóð. Eftir beinskeytta byrjun þar sem hann skaut föstum skotum að stjörnun- um sást hann ekki í tæpa klukku- stund á sviðinu. Einhverjir vildu meina að hann hefði fengið orð í eyra frá stjórnendum hátíðar- innar en svo var ekki. „Ég flutti allar þær kynningar sem ég átti að gera. Það vildi bara þannig til að þarna var langt hlé,“ sagði hann og bætti við að andrúms- loftið baksviðs og eftir hátíðina hefði verið frábært. Fékk ekki orð í eyraJosh Homme, forsprakki Queens of the Stone Age, hefur staðfest að hljómsveitin sé byrjuð að undir búa nýja plötu, tæpum fjórum árum eftir að sú síðasta, Era Vulgaris, kom út. „Ég er byrjaður að spila aftur bara til að spila aftur og er aftur orðinn heillaður af tónlist- inni. Það er langt síðan ég gat síð- ast spilað án þess að vera undir einhvers konar þrýstingi,“ sagði Homme. „Hvað mig snertir verð ég að vera hugfanginn af tónlistinni. Stundum verður að taka sér smá frí til að átta sig á því.“ Homme býst við því að aðdáendur Queens of the Stone Age geti heyrt nýtt efni með sveitinni á þessu ári en tekur fram að allt slíkt taki sinn tíma. Næst á dagskrá hjá hljóm- sveitinni er tónleikaferð um Nýja- Sjáland og Ástralíu í febrúar og mars þar sem hún ætlar að spila sína fyrstu plötu í heild sinni. Heillaður af tónlist JOSH HOMME Homme og félagar eru byrjaðir að undirbúa nýja plötu. Í 3-D OG 2-D MEÐ ÍSLENSKU TALI Í 3-D -H.S, MBL-K.G, FBL SMÁRABÍÓ Nánar á Miði.is Nánar á Miði.isBORGARBÍÓ BURLESQUE kl. 8 - 10.10 ALFA OG ÓMEGA 3D kl. 6 THE TOURIST kl. 10 GULLIVER´S TRAVELS 3D kl. 8 LITTLE FOCKERS kl. 6 L L 12 L 12 Nánar á Miði.is BURLESQUE kl. 5.20 - 8 - 10.35 BURLESQUE LÚXUS kl. 8 - 5.20 - 10.35 ALFA OG ÓMEGA 3D kl. 3.30 THE TOURIST kl. 5.40 - 8 - 10.20 GULLIVER´S TRAVELS 3D kl. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10 LITTLE FOCKERS Kl. 10.20 GAURAGANGUR KL. 5.50 MEGAMIND 3D ÍSL. TAL KL. 3.40 NARNIA 3 3D KL. 3.30 L L L 12 L 12 7 L 7 BURLESQUE kl. 10.30 THE TOURIST KL. 5.40 - 8 - 10.20 DEVIL KL. 10.20 GAURAGANGUR KL. 5.50 - 8 - 10.10 NARNIA 3 2D KL. 5.30 - 8 L 12 16 7 7 HÁSKÓLABÍÓGLERAUGU SELD SÉR - bara lúxus Sími: 553 2075 SAW 3D - ÓTEXTUÐ 8 og 10 16 ALFA OG ÓMEGA 3D - ISL TAL 6 L THE TOURIST 8 og 10.10 12 GULLIVER’S TRAVELS 3D 6 L LITTLE FOCKERS 6 og 8 L DEVIL 10 16 TRYGGIÐ YKKUR MIÐA Á WWW.SAMBIO.IS V I P 14 L L L L L L L 10 10 10 14 12 1212 12 12 14 KLOVN - THE MOVIE kl. 5:50 - 8 - 10:20 KLOVN - THE MOVIE kl. 5:50 - 8 - 10:20 ROKLAND kl. 5:40 - 8 - 10:20 YOU AGAIN kl. 5:50 - 8 - 10:20 HEREAFTER kl. 5:30 - 8 - 10:40 HARRY POTTER kl. 5:20 - 8 LIFE AS WE KNOW IT kl. 10:40 KLOVN - THE MOVIE kl. 5 - 7 - 8 - 9 - 10:20 YOU AGAIN kl. 5:50 - 8 - 10:20 MEGAMIND-3D M/ ísl. Tali kl. 5:50 ROKLAND kl. 5.30 - 8 og 10.30 KLOVN: THE MOVIE kl. 5.30 - 8 og 10.15 HEREAFTER kl. 8 og 10.40 TRON: LEGACY-3D kl. 8 og 10.40 GUILIVERS TRAVEL-3D kl. 5.30 MEGAMIND-3D M/ ísl. Tali kl. 5.30 YOU AGAIN kl. 8 ROKLAND kl. 10:10 KLOVN - THE MOVIE kl. 8 - 10:10 Nýjasta meistarverk Clint Eastwood  „þetta er einfaldlega skemmtilegasta danska kvikmyndin sem ég man eftir að hafa séð“ - Extra Bladed - H.S. MBL  - Þ.Þ FT  „hláturvöðvarnir munu halda veislu í einn og hálfan tíma“ - Politiken VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG! TRYGGIÐ YKKUR MIÐA Á WWW.SAMBIO.IS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.