Fréttablaðið - 20.01.2011, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 20.01.2011, Blaðsíða 44
28 20. janúar 2011 FIMMTUDAGUR28 menning@frettabladid.is Ég átti notalega stund í Norræna húsinu á sunnudaginn var. Þetta voru tónleikar í 15:15 röðinni svo- kölluðu. Röðin heitir þessu nafni vegna þess að tónleikarnir hefjast klukkan 15:15. Eða eiga að gera það. Tónleikarnir sem um ræðir byrj- uðu reyndar ekki þá. Heldur all- mörgum mínútum síðar. Auðvitað er ekkert óeðlilegt við að tónleikar hefjist örlítið seinna en auglýst er. En þegar tónleikaröð dregur nafn sitt af ákveðnum tíma, þá finnst manni að þeir eigi að byrja á akk- úrat þeim tíma. Og ekki seinna. Biðin var þó þess virði. Á sviðið steig tríó sem samanstendur af Helgu Laufeyju Finnbogadóttur á píanó, Gunnari Hrafnssyni á kontrabassa og Einari Val Scheving á trommur. Á dagskránni var djass úr ýmsum áttum. Helga Laufey er ættuð úr klassík inni, hún byrjaði tónlistar- nám sitt þar en færði sig síðar yfir í djassinn. Maður heyrði það á áslættinum. Djasspíanóleikarar eru stundum óttalega harðhentir, en Helga Laufey hefur fallegan tón. Hún spilaði lungamjúkt og hlýlega; það var unaður að hlusta á hana. Gunnar var líka frábær á kontrabassann, hæfilega ágengur, hljómurinn safaríkur og syngj- andi. Einar Valur var sömuleiðis frábær á trommurnar, notalega afslappaður en hressilega áber- andi á hárréttum stöðum. Lögin voru yfirleitt skemmti- leg. Eitt það besta var frumsamið og hét Sól í janúar. Laglínan var grípandi og nokkrir skemmtileg- ir sólókaflar voru létt-súrrealískir. Það var líka gaman af ljúfri útgáfu á Maður hefur nú eftir Gunnar Reyni Sveinsson, og einnig Dolphin Dance eftir Herbie Hancock. Og djössuð útgáfa á lagi eftir Piazz- olla, Libertango, var hugguleg. Varla er hægt að hugsa sér þægi- legra sunnudagseftirmiðdegi! Jónas Sen Niðurstaða: Lög úr ýmsum áttum voru í djassbúningi í Norræna húsinu. Verulega vönduð dagskrá. Úr klassík í djass DJASSTRÍÓ Helga Laufey Finnbogadóttir, Gunnar Hrafnsson og Einar Valur Scheving. Tónlist ★★★★ 15:15 Djasstríó flutti lög úr ýmsum áttum í Norræna húsinu Vöruhönnuðirnir Aamu Song og Johan Olin halda fyrirlestur í Listasafni Reykjavíkur, Hafnar- húsinu, í kvöld klukkan átta. Í fyrir- lestrinum segja þau frá verkum sínum en þau starfa sem hönnuð- ir, framleiðendur, seljendur og versl- unareigendur. Hug- myndafræði þeirra og vörur endurspegla og hampa hefðbundnu finnsku hand- verki og hráefni. Þau Song og Olin reka fyrirtæk- ið Company í Helsinki og hafa ferð- ast með búðina sína The Secret Shop eða Salakauppa víða um heim síðastliðin fimm ár. The Secret Shop opnar í gall- eríinu Spark Design Space á Klapparstíg 33 á föstudag. Hampa finnsku hráefni Tengsl manns og umhverfis eru undir í sýningunni Án áfangastaðar, sem verður opnuð í Hafnarhúsinu í dag. Markús Þór Andrésson sýn- ingarstjóri segir sýninguna meðal annars innlegg í umræðuna um þróun ferða- þjónustu hér á landi, sem skortir að hans mati skýra stefnu. „Hugmyndin var að leiða saman listamenn og fræðimenn og sjá hvað þeir hefðu til málanna að leggja varðandi spurningar sem eru mikilvægar í sambandi við ferðaþjónustu og þróun hennar,“ segir Markús Þór Andréssonar um tilurð sýningarinnar Án áfanga- staðar. Í tengslum við hana verð- ur efnt til málþings í næsta mán- uði undir stjórn dr. Gunnþóru Ólafsdóttur landfræðings, þar sem framsögumenn á sviði lista- , fræða- og ferðamála ræða ólíkar nálganir í ferðaþjónustu. „Við Gunnþóra höfum bæði starfað sem leiðsögumenn og þekkjum fagið vel,“ segir Mark- ús. „Okkur þykir greinin hafa þró- ast ört, án þess að fólk sé vakandi fyrir því hvaða breytingar ferða- þjónustan getur haft á land og þjóð. Við viljum bara að umræð- an um ferðaþjónustu sé yfirveg- aðri, ákvarðanir séu ekki teknar í „panikk-ástandi“, eins og hefur hent, og snúist ekki aðeins um að opna flugvelli og hafnir til að hleypa sem flestum að.“ Titill sýningarinnar vísar meðal annars til þess að ferðaþjónustu á Íslandi skortir að mati Markúsar skýr markmið, önnur en þau að fjölga ferðamönnum. „Titillinn vísar líka til Íslands sem áfangastaðar og þá ímynd sem við búum til af landinu, jafn- vel þótt það stangist á við þær væntingar sem við höfum til fags- ins. Ef við ætlum til dæmis að fá milljón ferðamenn til landsins á ári en um leið halda áfram að aug- lýsa það sem einstakt tækifæri til að upplifa sig aleinan í ósnortinni náttúru, erum við strax komin með þversögn sem við getum ekki staðið undir.“ Í kjölfarið vakni sú spurning hvort hægt sé að nálgast þetta öðruvísi. „Í stað þess að matreiða ákveðna ímynd af Íslandi sem áfangastað, sem fólk heimsækir síðan og fær staðfesta, viljum við reyna að opna fyrir tilhugsunina um að það sé heilmikið við það að bæta að kom- ast á staðinn, uppgötva hann og tengjast honum á persónu legan hátt. Mörg verkanna á sýningunni ganga út á það að sýna fram á per- sónuleg tengsl einstaklings og umhverfis og hvernig þau eiga sér stað í skapandi og óvæntu ferli. Á þriðja tug innlendra og erlendra listamanna taka þátt í sýningunni. „Þetta eru allt listamenn sem ég hef fylgst með í langan tíma og heillast af því hvernig þeir takast á við spurninguna um tengsl manns og umhverfis. Þannig fjallar sýn- ingin ekki um Ísland í sjálfu sér, heldur um okkur sjálf í umhverf- inu. Sýningarsalirnir eru í sjálfu sér staðir sem áhorfendur ganga í gegnum og sum verkin fjalla ein- faldlega um þann stað, hér og nú.“ Sýningin stendur til 10. apríl en Markús Þór verður með leiðsögn um hana á sunnudag klukkan 15. bergsteinn@frettabladid.is Tengsl manns og umhverfis MARKÚS ÞÓR ANDRÉSSON Í stað þess að matreiða ákveðna ímynd af Íslandi sem áfangastað vill Markús leggja áherslu á hið óvænta í ferðalaginu, upplifunina sem fylgir því að uppgötva framandi stað og tengjast honum á persónulegan hátt. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN FORM OG FORMLEYSI Þýski heimspekingurinn Marcus Steinweg heldur fyrirlestur í stofu 101 á Háskólatorgi HÍ klukkan 16. Fyrirlesturinn ber titilinn Milli forms og formleysis og er haldinn í samstarfi Nýlistasafnsins við Félag áhugamanna um heimspeki og Heimspekistofnun HÍ. Steinweg er hingað kominn í tengslum við yfirstandandi sýn- ingu brasilíska listamannsins Marcellvs L. í Nýlistasafninu. Fyrirlesturinn verður á ensku og er öllum opinn. 20 dagar 20.01.2011 - 9.02.2011 20% afsláttur á öllum veitingum S : 692 – 0564 Laugavegur 130 ofan við Hlemm 20 ára afmæli The Best ThaiFood 2009 2010 www.yummiyummi.net Hjá Banthai eru allir réttir matreiddir frá grunni úr ferskum hráefnum til þess að viðhalda þeim gæðum sem við viljum bjóða okkar viðskiptavinum uppá. Vegna þessa getur oft verið bið eftir matnum - en ef hópar ákveða að velja sér nokkra rétti til þess að snæða saman þá styttist sú bið verulega. Endilega hafið það í huga þegar þið pantið. 1 3 5 7 9 2 4 6 8 10 Ég man þig Yrsa Sigurðardóttir Utangarðsbörn - kilja Kristina Ohlsson Almanak Háskóla Íslands 2011 Þorsteinn Sæmundsson Konur eiga orðið 2011 Ýmsir höfundar Svar við bréfi Helgu Bergsveinn Birgisson Saumahandbókin Fríður Ólafsdóttir ritstýrði METSÖLULISTI EYMUNDSSON SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í EYMUNDSSON UM LAND ALLT 12.01.11 - 18.01.11 Furðustrandir Arnaldur Indriðason Prjónaklúbburinn - kilja Kate Jacobs Hreinsun Sofi Oksanen Candida sveppasýking Guðrún G. Bergmann
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.