Fréttablaðið - 18.02.2011, Qupperneq 12
12 18. febrúar 2011 FÖSTUDAGUR
F
erill Ólafs Sigurðssonar
á fjölmiðlum hófst á
Vísi árið 1963 og var
hann þar í tvö ár, en
sneri aftur í fjölmiðla-
bransann árið 1974
þegar hann byrjaði á Útvarpinu.
Þar var Ólafur fram til ársins 1980
þegar hann fór yfir á fréttastofu
Sjónvarps, þar sem hann starfaði
í aldarfjórðung allt til 2006 þegar
hann lét af störfum
Tæknibylting fjölmiðlabransans
Á löngum ferli á fjölmiðlum upplifð-
ir þú mikla þróun. Hvað finnst þér
standa helst upp úr að því leyti?
Frá því að ég hætti störfum hafa
orðið meiri breytingar á fréttum og
fréttaöflun heldur en fjörutíu árin
þar á undan. Til dæmis var inter-
netið ekki komið í almenna notk-
un fyrr en um 1995 og menn voru
ekki orðnir sérstaklega handgengn-
ir því fyrr en um og eftir aldamót.
Það flýtti ótrúlega fyrir manni í
vinnu.
Önnur stóra breytingin var far-
síminn sem gjörbreytti öllum
vinnubrögðum. Til dæmis gátu
menn sem ekki vildu láta ná í sig
ekki sagst hafa hringt, en ekki hitt
á okkur. Fréttavinna varð fljótlegri
og auðveldari.
En eftir að ég hætti störfum
varð bylting. Þá komu stórbrotn-
ar nýjungar til sögunnar, sem hafa
ekki aðeins breytt miðlun manna
á meðal, heldur þjóðfélaginu öllu.
Facebook kom til sögunnar fyrir
sex árum. Youtube ári seinna.
Twitter er fjögurra ára gamalt fyr-
irbæri og meira að segja Google er
innan við tíu ára í almennri notk-
un. Þessir miðlar og aðrir slík-
ir hafa gjörbreitt öllu upplýsinga-
flæði í heiminum. Þeir keppa við
hefðbundna fjölmiðla um tíma ein-
staklinga og hafa líka mikil áhrif á
hvernig blaðamenn afla frétta.
Meira en helmingur Íslendinga
notar Fjesbók að staðaldri og þeir
lesa ekki blöð eða horfa á sjónvarp
á meðan. Það er erfitt að skilja að
Fjesbókin var ekki til fyrir sex
árum. Það þýðir til dæmis lítið
fyrir mig og konuna mína að segja
börnunum okkar þremur, sem búa
erlendis, einhverjar fréttir frá
Íslandi, ekki einu sinni fjölskyldu-
fréttir, því að þau eru löngu búin að
frétta þær á félagslegum miðlum.
Nú hefur miðlun frétta líka breyst
töluvert. Hvernig skynjarðu þær
breytingar?
Notkun á hinum hefðbundnu
fjölmiðlum, útvarpi, sjónvarpi og
blöðum hefur minnkað á vestur-
löndum og þess gætir líka í þriðja
heiminum. Menn segja gjarnan að
fólk fái fréttir á netinu, en ég tel
að það séu aðrar fréttir en hefð-
bundnir miðlar flytja. Það hefur
gengið mjög erfiðlega að fá fólk til
að borga fyrir fréttir á netinu, en
það gæti kannski verið vonarneisti
í Kindle lestrartölvunni. Þeir sem
hafa reynt það, segja að hún henti
mjög vel til að lesa blöð, ekki síður
en bækur. Það kostar sáralítið að
kaupa blöð á þann hátt og ég vona
að það komi til með að bjarga blöð-
unum að einhverju leyti. Ef blöð-
in losna við að prenta þessi ósköp
og bera allan þennan pappír í hús,
spara þau óhemju fjármuni. Það
kostar dagblöðin mikið fé að afla
frétta og það gæti leyst þeirra
vanda ef þau þyrftu ekki að fram-
leiða allt þetta prentefni.
Leyndarhyggjan verður að víkja
Síðustu misseri hefur Wikileaks og
þess háttar starfsemi vakið mikla
athygli. Telur þú að það muni breyta
fjölmiðlaumhverfinu?
Við vorum ánægð með að fá að sjá
lánabók Kaupþings á sínum tíma.
Okkur fannst kitlandi að frétta hvað
diplomatar voru að segja um menn í
fjarlægum löndum og hvaða augum
erlendir stjórnmálamenn líta hver
annan. Við horfðum spennt á mynd-
ir af hörmungum stríðs og bíðum
eftir uppljóstrunum sem Wikileaks
hefur lofað um leyniskjöl stórra
banka. En við skulum gera okkur
grein fyrir að þetta er rétt að byrja.
Blöð eins og Guardian, New York
Times og margir aðrir, eins og til
dæmis blaðamannaskólar, hafa nú
opnað síður, þar sem fólk getur sent
inn leynilegt efni. Ef leyniskjöl fara
að flæða til þeirra veit enginn hvar
það endar.
Það skapar erfiðleika að efni sem
dreift er af Wikileaks og öðrum
slíkum, er yfirleitt aflað þannig,
að álitamál er hvort það sé löglegt.
Stjórnvöld, fjölmiðlar og ekki síður
almenningur verða að gera það
upp við sig hvort upplýsa megi öll
leyndarmál. Sumir ganga svo langt
að segja að engin leyndarmál eigi
að vera til. Engin þörf sé á launung
nema menn hafi illt í huga.
Ýmsir líkja birtingum Wiki-
leaks við Pentagon Papers, um
stríðsreksturinn í Vietnam. Það
voru leyniskjöl um stríð, sem enn
stóð yfir 1971. New York Times og
Washington Post voru kærð af rík-
inu fyrir að birta þau en sýknuð í
hæstarétti. Daniel Ellsberg fékk
hinsvegar dóm fyrir að hafa tekið
gögnin ófrjálsri hendi. Þannig
stöndum við frammi fyrir þeirri
mótsögn að það geti verið ólög-
legt að afla upplýsinga, en löglegt
að birta þær. Einhverja niðurstöðu
þarf að fá í því máli.
En getum við sætt okkur við
það að bókstaflega allt verði opið?
Ég hallast að því að hér á Íslandi
eigi allt að vera opið. Við komumst
aldrei út úr þessari kreppu á meðan
að leyndarhyggjan er eins og hún er.
Kannski ættum við að fá menn frá
Wikileaks hingað til Íslands til að
ljóstra upp um hvað er í gangi. Mér
finnst að almenningur ætti að fá
að sitja ríkisstjórnarfundi, banka-
stjórnarfundi og fá aðgang að því
sem embættismenn og viðskipta-
menn eru að gera. Það er engin
önnur leið fyrir okkur.
Að mínu mati verður leyndar-
hyggjan að víkja. Ég sé ekki að
heimurinn yrði verri ef allir mættu
fylgjast með öllu. Trúlega mætti
þannig koma í veg fyrir ýmis
myrkraverk.
Samkeppnin frískandi
Hvernig breyttist ljósvakamark-
aðurinn hér á landi eftir að fleiri
miðlar bættust við á árunum eftir
1986?
Að sjálfsögðu var okkur órótt
þegar Stöð 2 byrjaði og sjálfsagt
höfum verið betur á verðbergi en
áður. Þetta var ekki sérlega dram-
atískur atburður en hefur trúlega
hresst okkur við. Ein breytingin
fyrir okkur á Sjónvarpinu var sú að
það var ekki lengur hægt að fresta
því að senda út frétt, ef erfitt var að
ljúka vinnslu hennar. Allar fréttir
urðu fara í loftið samdægurs. Ég hef
heyrt þá kenningu að áður höfum
við getað ákveðið hvað yrði í frétt-
um, en við vorum ekki ein í heim-
inum. Aðrir fjölmiðlar veitu okkur
aðhald. Við vissum að samkeppn-
in myndi koma og það var aldrei
nein óvild í gangi. Meirihlutinn af
starfsfólkinu hjá samkeppnisaðil-
unum kom frá okkur á RÚV, enda
var þar eini staðurinn til að finna
fólk með reynslu. Ég kom til dæmis
einu sinni upp á kaffistofuna á Stöð
2, um einu ári eftir að þeir byrjuðu,
og þá þekkti ég fleiri þar en á kaffi-
stofunni hjá okkur.
Hvernig sérðu fyrir þér framtíð
blaða- og fréttamennsku?
Það er eitt sem verður sífellt ljós-
ara og það er að í framtíðinni verða
fjölmiðlastörf láglaunastörf. Og
því fylgir mikil hreyfing á vinnu-
afli. Ég hefði til dæmis ekki getað
séð fyrir mér og mínum eingöngu á
þeim launum sem voru í boði þá og
það mun örugglega ekki breytast.
Það er slæmt því að launin draga úr
áhuga fólks á að sækja í þessi störf.
Erlendis er það algengt að byrjend-
ur í fréttum vinni ókeypis í eitt eða
tvö ár og kallast internship eða
starfsþjálfun. Allt eins mætti kalla
það þrælahald. Eitt er þó víst að ein-
ungis fæst fólk á þeim kjörum, sem
á foreldra sem halda því uppi.
Blaðamennska komst í tísku
eftir að þeir Woodward og Bern-
stein urðu að stjörnum á Waterga-
temálinu 1971 og alltaf er til fólk,
sem langar til að láta sjá sig í sjón-
varpi. Þó að margir trúi því enn, er
blaðamennska eða fréttamennska
ekki lengur heppilegur stökkpallur
til æðri tilverustiga í stjórnmálum
eða viðskiptalífi.
Hvernig kom til að þú fórst út í
fjölmiðlabransann?.
Eins og flest allt í mínu lífi
var það giftursamleg tilviljun.
Ég er heppinn maður og hef lifað
skemmtilegu lífi og vinna í fjöl-
miðlum er mjög skemmtilegt starf.
Það væri líka eflaust enn skemmti-
legri vinna ef fjölmiðlar hér á landi
væru betur reknir en þeir eru. Það
hefur yfirleitt verið óstand á því og
það hefur ekkert batnað á síðustu
árum.
Hefur þú ennþá jafn mikinn
áhuga á fjölmiðlum?
Já, að sjálfsögðu. Ég hef mikinn
áhuga á mínu þjóðfélagi og sam-
tíð, en ég er að reyna að venja mig
af því að byrja að hlusta á fréttir
á mrgnanna og lesa blöðin, hlusta
á eftirmiðdagsþætti, fréttir klukk-
an sex og aftur klukkan hálfsjö, svo
klukkan sjö og loks Kastjós á eftir
og vera ekki búinn að þessu fyrr en
um áttaleytið. Það er fullt dagsverk
og ég vil eyða tíma í fleira.
FÖSTUDAGSVIÐTALIÐföstudagu
r Ólafur Sigurðsson fréttamaður um fjölmiðlun í fortíð og framtíð
Eftir að ég hætti störfum varð bylting. Þá komu
stórbrotnar nýjungar til sögunnar, sem hafa ekki aðeins
breytt miðlun manna á meðal, heldur þjóðfélaginu öllu.“
FRAMFARIR Í FJÖLMIÐLUM Ólafur upplifði miklar breytingar á árum sínum í fjölmiðlabransanum, en segir byltingu hafa orðið á
allra síðustu árum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Leyndarhyggjan verður að víkja
Í dag kl. 13-16 verður haldin ráðstefna í Salnum í
Kópavogi um samskipti menningar og viðskipta, til
heiðurs Ágústi Einarssyni, fyrrverandi rektor skólans.
Aðalfyrirlesari er dr. David Throsby, prófessor við
Macquarie háskólann í Sydney, en hann er einn
þekktasti menningarhagfræðingur heims.
Allir velkomnir!
Culture & Business
Ráðstefna í Salnum í Kópavogi
HÁSKÓLINN Á BIFRÖST
DAGSKRÁ
WWW.BIFROST.IS
13.00 Bryndís Hlöðversdóttir,
rektor Háskólans á Bifröst, setur
ráðstefnuna
13.05 Kolbrún Halldórsdóttir,
forseti Bandalags íslenskra
listamanna
13.15 Hanna Þóra Guðbrands-
dóttir, sópran og Antonía
Hervesi, píanó
13.30 Dr. David Throsby, prófessor
við Macquarie háskólann í Sydney:
„The Value of Culture
How Should We Interpret It for
Cultural Policy?"
14.10 Hanna Þóra Guðbrands-
dóttir, sópran og Antonía
Hervesi, píanó
14.20 Kaffi
14.30 Dr. Ágúst Einarsson,
prófessor við Háskólann á Bifröst:
„The Extraordinary Extent of
Cultural Consumption in Iceland“
15.00 Dr. Njörður Sigurjónsson,
lektor við Háskólann á Bifröst:
„Culture, Business and the End
of Cultural Policy“
15.30 Katrín Júlíusdóttir
iðnaðarráðherra flytur ávarp
Nánar um ráðstefnuna og
þátttakendur á bifrost.is.
Menningarráð Vesturlands er
stuðningsaðili tónlistarflutnings
á ráðstefnunni.
Fréttamaðurinn Ólafur Sigurðsson er flestum
landsmönnum að góðu kunnur eftir að hafa verið
nær daglegur gestur á heimilum landsins í frétta-
tíma Sjónvarpsins um árabil. Hann settist í helg-
an stein fyrir fáum árum, en hefur enn brenn-
andi áhuga og sterkar skoðanir á fjölmiðlum og
samfélagsmálum eins og Þorgils Jónsson komst að.