Fréttablaðið - 18.02.2011, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 18.02.2011, Blaðsíða 18
18 18. febrúar 2011 FÖSTUDAGUR Undanfarið hefur verið fjallað nokkuð um aðstæður heimil- isfólks á öldrunarheimilum, þar sem við á Hrafnistuheimilunum þremur höfum komið nokkuð við sögu. Á Hrafnistu fylgjum við stíft þeirri stefnu að viðhalda eins og nokkur kostur er sjálfsákvörðun- arrétt og valfrelsi heimilismanna. Við leggjum áherslu á að hvorugt þurfi að takmarkast á efri árum þrátt fyrir heilsubrest og búsetu á öldrunarheimili. Vegna þessa höfum við, ásamt mörgum öðrum, gagnrýnt stefnu stjórnvalda í mál- efnum aldraðra fyrir þá tilhneig- ingu að flokka gamalt fólk án tillits til þeirra eigin vilja eða langana. Einn heimilismaður okkar á Hrafnistu í Hafnarfirði hefur vakið athygli á að þrátt fyrir að hafa lagt vel til hliðar á ævileið sinni, hafi hann aðeins 65.000 krónur til ráðstöfunar í hverj- um mánuði þegar ríkið hafi tekið gjöld og skatta. Tek ég heils hugar undir þessa gagnrýni. Í þessu sambandi er þó rétt að árétta að greiðslur heimilismanna til Hrafn- istu eru alfarið og einhliða ákvarð- aðar af ríkinu. Um þær hafa öldr- unarheimilin ekkert að segja, en er samt sem áður gert samkvæmt reglugerð að innheimta greiðslurn- ar fyrir Tryggingastofnun. Við þá innheimtustarfsemi erum við afar ósátt. Í fjölmiðlaumræðunni gætir þess misskilnings jafnan að öldr- unarheimili séu að soga fé af heim- ilisfólki. Þar er einfaldlega verið að hengja bakara fyrir smið. Vikulegar baðferðir Vikulegar baðferðir á öldrunar- heimilum eru ekki nýjar af nálinni. Fyrirkomulag um fasta baðdaga hefur viðgengist á flestum öldrun- arheimilum landsins, jafnvel ára- tugum saman. Það er því engin ný frétt fyrir þá sem hafa kynnt sér málin, efni þeirra og ástæður. Ein ástæðan er til að mynda sú að aldr- aðir kjósa margir mjög fastmótaða dagskrá í sínu daglega lífi. Þar er tíðni baðferða á meðal, sem erfitt getur reynst að breyta út af. Þetta vita allir sem starfa að umönn- unarmálum aldraðra. Þar með er ekki sagt að heimilisfólk njóti ekki hreinlætis og sé því ósnyrtilegt til fara eins og skilja mætti á umræð- unni. Starfsfólk á öldrunarheimil- um leggur allan sinn metnað í að aðstoða fólk með dagleg þrif kvölds og morgna og eins oft og þess ger- ist þörf. Auðvitað viljum við að heimilisfólk okkar geti baðað sig þegar það óskar þess sjálft og von- andi verður það svo í nánustu fram- tíð þegar okkur hefur verið tryggt eðlilegt rekstrarumhverfi. Hrafnistuheimilin hafa ekki átt við mannekluvanda að stríða frá vorinu 2008. Tíðni baðferða tengist því ekki slíkum vandamálum. Hins vegar er naumt skorinn stakkurinn og það fjármagn sem ætlað er til reksturs öldrunarheimila dugar ekki fyrir þeirri mönnun sem þarf til að geta veitt alla þá þjónustu sem starfsmenn og stjórnendur vildu svo gjarnan veita. Síendur- tekinn niðurskurður leiðir eðli máls samkvæmt til minni þjónustu. Allra leiða er þó ávallt leitað til að koma í veg fyrir að niðurskurður hins opinbera bitni á grunnþjónust- unni við heimilismenn. Bættur aðbúnaður Það er að sjálfsögðu sjálfsákvörð- unarréttur hvers og eins og eigið val, sem ræður á endanum hve- nær farið er í bað, sturtu eða sund. Það eru einmitt meginein- kenni stefnu Hrafnistuheimil- anna, þar sem minni einingar og stærri persónulegri einkarými gegna lykil hlutverki. Gott dæmi um þetta er Hrafnista í Kópa- vogi þar sem allir íbúar hafa rúm- góð einbýli með eigin baðher- bergi. Á Hrafnistu í Reykjavík, hefur á undanförnum árum verið unnið ötullega að uppbyggingu og endurnýjun á herbergjum heimil- ismanna í takt við kröfur nútím- ans, með dyggri aðstoð frá Happ- drætti DAS og Framkvæmdasjóði aldraðra. Markmiðið er að koma til móts við þessa nýju hugmynda- fræði með niðurlagningu tvíbýla og stækkun herbergja um helming. Framkvæmdirnar munu kosta um 1,5 milljarða króna og lýkur innan fárra ára ef allt gengur að óskum. Sífelldur niðurskurður Rekstur öldrunarheimila er erfið- ur um þessar mundir vegna mik- ils niðurskurðar á framlögum frá hinu opinbera. Á Hrafnistu er svo komið að þrátt fyrir rekstur á þúsundum fermetra húsnæðis, þar sem búa og starfa tæplega tvö þúsund manns, er launakostnaður um 80 prósent rekstrarkostnaðar. Hrafnista hefur um langt árabil kallað eftir þjónustusamningi við ríkið, þar sem skilgreint sé fyrir hvaða þjónustu ríkið vilji greiða og fyrir hvaða þjónustu ríkið telji að heimilisfólkið eigi að greiða sjálft og milliliðalaust. Þær óskir hafa enn engan árangur borið. Velmegun okkar er öldruðum að þakka Þeir sem nú eru á efri árum, ekki síst þeir sem nú eyða ævikvöld- inu á öldrunarheimilum landsins, komu Íslandi í hóp þeirra landa þar sem lífskjörin eru hvað best. Þessi kynslóð á skilið af okkur sem yngri erum að við veitum þeim þjónustu í hæsta gæðaflokki í sam- ræmi við þarfir og vilja hvers og eins. Á Hrafnistu höfum við hér eftir sem hingað til gæði og öryggi að leiðarljósi í þágu heimilisfólks. Þrátt fyrir takmarkað fjármagn til rekstrar vinnur starfsfólk heimil- anna kraftaverk á hverjum degi. Ég nýt þeirra forréttinda að starfa með því fólki. Það væri óskandi að stjórnvöld sæju sóma sinn með því að tryggja öldruðum það ævikvöld sem þeir eiga skilið. Um valfrelsi einstaklinga og aðbúnað á öldrunarheimilum Aldraðir Pétur Magnússon forstjóri Hrafnistuheimilanna Greiðslur heimilismanna til Hrafnistu eru alfarið og einhliða ákvarðaðar af ríkinu. Um þær hafa öldrunarheimilin ekkert að segja Skyldi einhver almennur kjósandi hafa borið vitni þegar Hæsti- réttur tók fyrir kærur vegna fram- kvæmda kosninga til stjórnlaga- þings? Hvað hefði ég sagt hefði ég borið vitni? Ég hefði kannske byrjað á að segja að ég hefði verið dálítið spenntur áður en ég fór að kjósa með konu minni á þessum hátíðar- degi lýðræðisins. Við höfðum búið okkur vel undir kosninguna, líklega betur en fyrir flestar aðrar kosn- ingar, reynt að setja okkur inn í yfirlýsingar sem flestra frambjóð- enda og gert lista yfir þá vænleg- ustu að okkar mati. Listarnir voru ekki alveg eins. Á kjörstað var allt rólegt, engin biðröð. Ekki varð ég var við að skil- rúm milli kjörklefa væru of lág né að neinn reyndi að kíkja á kjör- seðil minn þegar ég stakk honum ósamanbrotnum í kjörkassann, enda erfitt að lesa fjögurra stafa tölur með smáu letri úr fjarlægð. Kannske hélt ég líka kjörseðlinum að mér til öryggis. Ekki tók ég eftir því hvort kjör- kassinn væri úr pappa og þannig úr garði gerður að hægt væri að laumast í hann og stela seðlum. Það getur líka verið býsna erfitt að opna suma pappakassa eins og margir kannast sjálfsagt við, varla á færi annarra en þjálfaðra tollvarða. Ég tók heldur ekki eftir því að kjörseðlarnir væru í númeraröð, hvað þá að einhver gæti skráð númer kjörseðils míns. Í sem stystu máli þá fannst mér fram- kvæmd kosninganna hafa gengið furðu vel. Ég varð því leiður þegar ég frétti að Hæstiréttur hefði ógilt kosning- arnar, kosningar sem mér fannst sýna styrk lýðræðisins. Hefði ég borið vitni fyrir Hæsta- rétti hefði ég kannske spurt í lokin hvort ég mætti spyrja dómarana tveggja spurninga. Sú fyrri hvort þeir hefðu mætt á kjörstað, og ef svo hvort þeir hefðu fundið eitt- hvað athugavert við framkvæmd- ina. En kannske hefði ég bara þurft að spyrja einnar spurningar. Vitni fyrir Hæstarétti Stjórnlagaþing Eggert Briem stærðfræðingur Aðalfundur Bakkavör Group ehf. verður haldinn föstudaginn 25. febrúar nk. kl. 16:00 á Hótel Sögu, Hagatorgi, 107 Reykjavík. Eftirtalin mál eru á dagskrá fundarins samkvæmt samþykktum félagsins: 1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið ár. 2. Ársreikningur fyrir liðið starfsár, ásamt áritun endurskoðanda, lagður fram til samþykktar. 3. Ákvörðun um greiðslu arðs og jöfnun taps fyrir síðastliðið reikningsár. 4. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna. 5. Kosning stjórnar félagsins samkvæmt 17. gr. samþykkta félagsins. 6. Kosning endurskoðunarfélags. 7. Tillögur stjórnar um starfskjarastefnu. 8. Önnur mál. Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins munu liggja frammi á skrifstofu félagsins hluthöfum til sýnis frá 18. febrúar 2011. Tillögur frá hluthöfum sem bera á upp á aðalfundi skulu vera komnar í hendur stjórnarinnar eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund. Sérstaklega er bent á að þeir sem hyggjast gefa kost á sér til setu í stjórn félagsins skulu tilkynna það skriflega til stjórnar félagsins að minnsta kosti fimm sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar. Upplýsingar um framboð til stjórnar skulu vera aðgengilegar hluthöfum á skrifstofu félagsins eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfund. Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á aðalfundardaginn frá kl. 14:00 á fundarstað. Athygli er vakin á að atkvæðisréttur miðast við hlutaskrá að morgni 23. febrúar 2011. Fundur hluthafa í B flokki Boðað er til fundar hluthafa í B flokki hlutafjár félagsins sama dag. Fundurinn verður haldinn á Hótel Sögu við Hagatorg og hefst kl. 15. Fundarefnið er tilnefning stjórnarmanns hluthafa í B-flokki í stjórn Bakkavör Group ehf. í samræmi við 17. gr. samþykkta félagsins. Athygli er vakin á að atkvæðisréttur miðast við hlutaskrá að morgni 23. febrúar 2011. Reykjavík 17. febrúar 2011 Stjórn Bakkavör Group ehf. Aðalfundur Bakkavör Group ehf.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.