Fréttablaðið - 18.02.2011, Qupperneq 28
8 föstudagur 18. febrúar
Helga Margrét
Reykdal segist upp-
alin á fjölmiðlum og hóf
sjálf störf innan þess
geira aðeins fimmtán
ára gömul. Hún er nú
framkvæmdastjóri
kvikmynda- og viðburða-
fyrirtækisins Truenorth.
Viðtal: Sara McMahon
Ljósmyndir: Arnþór Birkisson
F
aðir Helgu Margrétar
Reykdal starfaði lengi
h j á h i nu m ý m s u
prentmiðlum og segist
Helga því hafa kynnst
heimi fjölmiðlanna ung að árum.
„Pabbi hefur starfað hjá hinum
ýmsu fjölmiðlum alveg frá því
að ég fæddist og ég hef því alltaf
verið mikið í kringum fjölmiðla,“
útskýrir Helga Margrét.
Í stóra verkfallinu sem átti sér
stað árið 1984, þegar allir meðlimir
stéttarfélagsins BRSB lögðu niður
störf, var faðir Helgu Margrétar í
hópi manna sem ráku ólöglega
útvarpsstöð og var Helga Margrét
meðal annars fengin til að setja
saman popplög þegar prófa átti
útvarpssendinn í fyrsta sinn og
þannig hófst ferill hennar innan
fjölmiðla. „Starfsfólk á ritstjórn
DV rak á þessum tíma ólöglega
útvarpsstöð, Fréttaútvarpið, og var
pabbi þar á meðal. Í upphafi var
sendirinn í gömlum Land Rover
sem ekið var um bæinn svo ekki
væri hægt að rekja sendinguna, en
síðar var sent frá ritstjórn DV. Ég
var auðvitað ekki í skóla á þessum
tíma, þar sem það var verkfall, og
gat því tekið þátt í þessu ævintýri
með pabba,“ segir Helga Margrét
og bætir við: „Ég leiðist því tiltölu-
lega snemma inn á þessa braut.“
TÓK SKÓLA MEÐ VINNU
Hún hélt áfram að vera viðloð-
andi fjölmiðla eftir Fréttaútvarps-
ævintýrið og vann til dæmis sem
blaðamaður hjá DV með skóla
þar sem hún fjallaði helst um
lífið og tilveruna. Hún gerðist
síðar aðstoðarmanneskja Ingólfs
Margeirssonar og Völu Matt sem
voru þá umsjónarmenn viðtals-
þáttarins Í sannleika sagt. Þátt-
urinn var framleiddur af Saga
Film og segist Helga Margrét hafa
ílengst hjá því fyrirtæki þegar
framleiðslu þáttanna lauk. „Fyrst
vann ég í fjölmiðlum með skóla
en undir lokin var ég farin að taka
skólann með vinnu,“ segir hún létt
í bragði. Helga Margrét stundaði
nám í stjórnmála- og fjölmiðla-
fræði við Háskóla Íslands en vann
meðfram náminu hjá Saga Film
allt þar til hún stofnaði, ásamt
Leifi B. Dagfinnssyni og Árna Páli
Hanssyni, sumarið 2003 fyrirtæk-
ið Truenorth, sem sérhæfði sig í
að þjónusta erlenda aðila sem
hingað koma til að kvikmynda.
„Okkur fannst þetta rétta skref-
ið til að taka á þessum tíma. Við
höfum alltaf haft mjög litla yfir-
byggingu í kringum okkur, það
eru fáir fastráðnir en þess í stað
stækkum við og minnkum eins
og harmóníka eftir því sem þarf.
Árið 2005 hófum við að sinna við-
burðum og á þessu ári komu til
liðs við okkur tveir íslenskir aug-
lýsingaleikstjórar, þeir Samúel og
Gunnar Páll, og ætlum við að fara
að sinna þeim markaði líka. Við
tökum þetta sem sagt í litlum en
ákveðnum skrefum.“
ENGIN FEIMNI
Helga Margrét segir helsta galla
starfsins vera þann að lítið sé
hægt að skipuleggja fram í tím-
ann en segir að upp á móti vegi
að hún hafi kynnst mörgu áhuga-
verðu fólki í gegnum vinnu sína.
True north hefur unnið að ýmsum
stórum verkefnum um árin og má
þar helst nefna stórmyndirnar
Flags Of Our Fathers og Stardust.
Innt eftir því hvort hún verði aldrei
feimin þegar hún hittir stórstjörn-
ur í fyrsta sinn svarar Helga Mar-
grét því neitandi. „Það er mesta
furða hvað maður verður lítið
FIMMTÁN ÁRA Í
FJÖLMIÐLA
Helga Margrét Reykdal
Hefur verið viðloðandi fjölmiðla allt
frá því að hún var fimmtán ára.
„Það er mesta
furða hvað maður
verður lítið feiminn.“
hollur kostur á 5 mín.
Gríms fiskibollur
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
S
F
G
4
20
40
0
4.
20
08