Fréttablaðið - 18.02.2011, Blaðsíða 32
12 föstudagur 18. febrúar
✽ Lifið lífinu
útlit
Gossip Girl-stjarnan Blake Lively
er mikill aðdáandi Louboutin-
skónna og sést iðulega klæð-
ast slíkum skóm á rauða
dreglinum. Hönnuðurinn
Christian Louboutin ákvað
að heiðra Lively og hanna
skó sem bera nafn henn-
ar og eru þeir nú komn-
ir á markað. Skórn-
ir kallast The Blake
og eru litríkir
hælaskór
sem Lively mun án efa bera með
sóma.
Önnur leikkona sem hefur
hlotið þennan heiður er
gamla „it“-stúlk-
an, Jane Birkin, en
tískuhúsið Her-
mès framleiðir enn
hinar geysivinsælu
Birkin-töskur. - sm
Louboutin hannar skó sem nefnist The Blake:
Lively heiðruð
The Blake Skórinn
sem Louboutin hannaði
handa Lively.
Heiðruð Hönnuðurinn Christi-
an Louboutin hefur hann-
að skó sem bera nafnið The
Blake, í höfuðið á leikkonunni
Blake Lively.
NORDICPHOTOS/GETTY
Serbneska fyrirsætan Andrej Pejic
hefur heillað tískuheiminn und-
anfarna mánuði en hann vakti
fyrst athygli er hann sýndi fötin
hjá hönnuðinum Jean Paul Gault-
ier í desember síðastliðinn. Síðan
þá hefur stjarna hans risið hratt.
Pejic er aðeins nítján ára gam-
all og flúði föðurland sitt, Bosníu-
Hersegóvínu, á tíunda áratugnum
og hefur síðan þá búið í Ástralíu.
Hann hefur verið ráðinn af hönn-
uðum til að sýna bæði herra- og
kvenfatnað og situr meðal ann-
ars fyrir í nýrri auglýsingaherferð
fyrir vorlínu Marcs Jacobs. Útlit
hans þykir sérstaklega kvenlegt
og vöxturinn sömuleiðis og er
hann orðinn andlit þess sem kall-
að hefur verið „kynlausrar tísku“,
það er að segja tísku sem hentar
báðum kynjum.
Pejic segist ekki eiga í vand-
ræðum með að sýna kvenmanns-
föt og viðurkennir að honum þyki
gaman að láta dekra við sig bak-
sviðs af förðunarfræðingum og
hárgreiðslufólki. - sm
Fyrirsætan Andrej Pejic slær í gegn innan tískuheimsins:
Andlit kynlausrar tísku
Í flíkum frá Jean-Paul Gaultier
Pejic sýnir nýja kvenlínu hönnuð-
arins Jean-Paul Gaultier. Þess má
geta að söngkonan Rihanna klædd-
ist þessum kjól á Grammy-verð-
launahátíðinni. NORDICPHOTOS/GETTY
Fríður sýnum Andrej Pejic baksviðs á sýningu Custo
Barcelona á tískuvikunni í New York nú í febrúar. Pejic
hefur verið vinsæll á tískupöllunum í ár.
Á tískuvikunni Pejic
sýnir fatnað hönnuðarins
Yoana Baraschi á tísku-
vikunni í New York.
Baksviðs Pejic myndaður
baksviðs á sýningu Odyn
Vovk á tískuvikunni í New
York sem fram fór í byrjun
febrúar.
NÁTTÚRULEGUR FARÐI Teint Miracle-andlitsfarðinn frá LancÔme
er áferðarfallegur og gefur húðinni náttúrulegt útlit. Éclat Miracle er ljóma-
serum sem hægt er að nota eitt og sér eða sem undirfarða. Það jafnar
litarháttinn og gefur húðinni fallegan ljóma.
ÞÆGILEGAR ABC aðhalds-
sokkabuxur frá Oroblu
fyrir árshátíðir og ferminga-
veislur.
Konur þurfa ekki endilega að vera
með aukakíló sem þær vilja fela,
til að þurfa á aðhaldssokkabuxum að
halda. Margar sem eru búnar að eiga börn eru með slappari húð en áður, burtséð
frá fituhlutfalli og aukakílóum. ABC sokkabuxur eru draumur hverrar konu, “bumba yfir streng”
hverfur, sokkabuxurnar rúlla ekki niður og konur verða allar stinnari og sléttari, passa betur í fötin og líður
einfaldlega betur í fötunum sínum. ABC buxurnar eru einnig með þannig áferð að sokkabuxurnar loða ekki við fatnað,
fatnaðurinn situr því á glæsilegri máta. ABC sokkabuxurnar slétta magasvæðið, lyfta upp og undirstrika rassinn ásamt því að
styðja við mjaðmir og hliðar, til bæði með og án stuðnings niður á læri. ABC sokkabuxurnar eru til bæði í 40 og 20 denum
í svörtum og sun lit, ráðleggjum eindregið 40 den fyrir konur sem eru þéttvaxnar því þær eru hærri upp og rúlla því síður
niður. Báðar týpur er hægt að nota við opna skó.