Fréttablaðið - 18.02.2011, Qupperneq 40
timamot@frettabladid.is
Þrjú hundruð ár eru liðin frá fæðingu Skúla Magnússon-
ar landfógeta. Af því tilefni heldur Félag um átjándu aldar
fræði málþing undir yfirskriftinni Skúlaþing í Þjóðarbók-
hlöðunni á morgun. Ragnhildur Bragadóttir sagnfræðing-
ur er formaður félagsins og hefur kynnt sér persónu Skúla
sem hún segir óviðjafnanlega.
„Skúli er eitt sérkennilegasta og stórbrotnasta mikil-
menni sögu okkar. Hann var afburðagreindur, vel lesinn
og lærður, en framkvæmdamaður meiri, áræðinn, fram-
farasinnaður um viðreisn landsins, hafði brennandi áhuga á
kjörum alþýðu og haldinn óbilandi viljafestu,“ segir Ragn-
hildur sem bendir á að Skúli hafi ásamt öðrum kjörkuðum
mönnum átt þátt í að viðhalda lífskjarki og framfarahug í
landsmönnum á mesta eymdartímabili sögunnar.
Skúli var sonur prestshjóna, fæddist að Garði í Keldu-
hverfi 12. desember 1711. „Hann var ódælt barn, mikill
fyrir sér og erfiður í umgengni,“ segir Ragnhildur en sem
unglingur var hann búðarsveinn á Húsavík. Þar komst hann
fyrst í kynni við verslunarháttu einokunarkaupmanna. Hann
fór síðan til náms í Kaupmannahöfn.
„Skúli varð frægur að því á sinni sýslumannstíð að vera
ekkjum hjálpsamur og munaðarleysingjum. Hann var rögg-
samt yfirvald, ekki strangur í dómum, og aðstoðaði jafnvel
sakamenn að strjúka ef honum fannst þeir mannvænleg-
ir,“ segir Ragnhildur en bætir við að ónytjungum hafi hann
verið ómildur.
„Skúli lagði hornstein að menningarlegri og atvinnulegri
framsókn þessarar þjóðar og stjórnarfarslegu fullveldi, þótt
vissulega hafi aðrir komið þar að líka,“ fullyrðir Ragnhild-
ur. Hann hafi átt í látlausum málarekstri og lagði til að ein-
okunarverslun Dana yrði afnumin. „Hann var kaupmönnum
mikill skelfir og flaugst jafnvel á við þá. Til dæmis hafði
hann forgöngu um að brjóta upp búðir og dreifa úr þeim
matvælum þegar þjóðin svalt sáru hungri.“
Skúli taldi að smátt og smátt mætti koma versluninni í
íslenskar hendur. Verslunarfrelsi varð þó ekki að raunveru-
leika fyrr en 1854, en þá var það Jón Sigurðsson sem hafði
unnið fylgi nokkurra frjálslyndra danskra áhrifamanna til
að koma verslunarmálum í viðunandi horf. „Jón hefði senni-
lega ekki náð þessu marki, án undangengis brauðryðjenda-
starfs Skúla,“ telur Ragnhildur.
Skúli dvaldi lengi í Kaupmannahöfn til að vasast í ýmsum
baráttumálum og komst aldrei fjárhagslega á kjöl eftir það.
Einnig voru margir sem unnu gegn honum hér á landi. Skúli
lét af starfi landfógeta 1793 og andaðist 9. nóvember 1794
gjörsnauður maður eftir 40 ára landfógetaþjónustu. Hann
var jarðsettur í Viðey og fer lítið fyrir steini hans.
Skúlaþing hefst í fyrirlestarsal á 2. hæð í Þjóðarbókhlöðu
á morgun klukkan 13 og lýkur klukkan 16.30. Flutt verða
fimm fræðandi erindi um Skúla. Útdrættir úr erindum
verða síðar aðgengilegir á fraedi.is/18.oldin/.
solveig@frettabladid.is
SKÚLI FÓGETI: MINNST Á SKÚLAÞINGI
Var mikilmenni
SKÚLAÞING Ragnhildur Bragadóttir, formaður Félags um átjándu aldar
fræði, hefur kynnt sér persónu Skúla fógeta. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma
Sigríður Valdís
Rögnvaldsdóttir
Álftahólum 4, Reykjavík,
sem lést á krabbameinsdeild Landspítalans,
miðviku daginn 9. febrúar sl., verður jarðsungin frá
Grafarvogskirkju í dag, föstudaginn 18. febrúar kl. 15.
Helga Ámundadóttir Ari Ólafsson
Brynjar Ágústsson Steinunn Inga Óttarsdóttir
Heiðar Ingi Ágústsson Signe Viðarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Viggó Tryggvason
lögfræðingur,
lést á Skjóli þriðjudaginn 15. febrúar. Útförin verður
auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hrafnhildur G. Thoroddsen
Tryggvi Viggósson Snjólaug Anna Sigurjónsdóttir
Guðmundur Viggósson Líney Þórðardóttir
Regína Viggósdóttir
Gunndóra Viggósdóttir Ásgeir Arnoldsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir minn, tengdafaðir, afi
og langafi,
Ragnar Jóhann
Guðjónsson
varð bráðkvaddur á heimili sínu miðvikudaginn
2. febrúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Hjartans
þakkir öllum þeim sem sýnt hafa okkur samúð, hlýhug
og aðstoðað okkur á þessum erfiðu tímum.
Gugga (Guðbjörg Ragnarsdóttir) Holli (Holgeir Jónsson)
Ragnar Jóhann Holgeirsson
Berglind Anna Holgeirsdóttir
og Jenný Klara Jónsdóttir
Ástkær eiginkona mín, dóttir, móðir,
tengdamóðir og amma,
Ingibjörg „Ía“
Jóhannsdóttir
lést á Líknardeild Landspítalans í Kópavogi föstudaginn
11. febrúar. Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju í
dag, föstudaginn 18. febrúar kl. 15. Blóm og kransar
vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hennar er bent á Líknardeild Landspítalans.
Þórir Gunnarsson
Soffía Bjarnadóttir
Gunnar Egill Þórisson Bríet Þorsteinsdóttir
Soffía Rut Þórisdóttir Þorsteinn Már Þorsteinsson
Þórir Ingi Þorsteinsson og Elma Lind Egilsdóttir
Móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Bára Marsveinsdóttir
lést á Landspítalanum sunnudaginn 13. febrúar.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
mánudaginn 21. febrúar kl. 15.00.
Sólveig Magnúsdóttir Erling Sigurðsson
Birna Lúðvíksdóttir
Marsveinn Lúðvíksson
Erna Lúðvíksdóttir Einar Jónsson
Erla Lúðvíksdóttir Kristján Magnússon
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
Ingi Hjörleifsson
Austurgötu 23, Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þriðjudaginn
15. febrúar. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju
fimmtudaginn 3. mars kl. 13.
Hjörleifur Ingason
Þorbjörg Sóley Ingadóttir Nikulás Úlfar Másson
Guðný Lára Ingadóttir Haukur Holm
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær sonur okkar, bróðir, mágur
og frændi,
Sigurbjörn Þorgrímsson
(Bjössi Biogen)
raftónlistarmaður,
lést mánudaginn 7. febrúar. Útförin fer fram frá
Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 18. febrúar
kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á
líknarstofnanir.
Þorgrímur Baldursson Jenný Sigurbjörnsdóttir
Atli Már Þorgrímsson Kristín Björk Einarsdóttir
Hekla Atladóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Kristján Ágúst Flygenring
verkfræðingur,
Reykjavíkurvegi 39 (Tungu),
Hafnarfirði,
lést á St. Jósefsspítalanum í Hafnarfirði þriðjudaginn
15. febrúar síðastliðinn. Jarðarförin verður auglýst
síðar.
Margrét D. Bjarnadóttir
Birna G. Flygenring Albert Baldursson
Garðar Flygenring
Erna Flygenring Pétur Þór Gunnarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir sendum við öllum
sem sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför okkar ástkæru,
Klöru Þorleifsdóttur
Teigaseli 9, Reykjavík.
Þorleifur Jónsson Halldóra Andrésdóttir
Andrés Þorleifsson
Hjalti Þorleifsson.
Útför ástkærs eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður og afa,
Þórðar Friðjónssonar
fer fram frá Hallgrímskirkju mánudaginn 21. febrúar
kl. 13.00.
Ragnheiður Dögg Agnarsdóttir
Sigríður Þórðardóttir Sævar Birgisson
Steinunn Kristín Þórðardóttir Antonios Koumouridis
Friðjón Þórðarson Hrefna L. Heimisdóttir
Haraldur I. Þórðarson Ragnhildur Þ. Ágústsdóttir
Óliver Dagur Thorlacius
Auður Ólöf Þórðardóttir
Barnabörn