Fréttablaðið - 18.02.2011, Page 44
18. febrúar 2011 FÖSTUDAGUR
menning@frettabladid.is
Myndlist ★★★★
Sýning sýninganna
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstað-
ir. Sýningarstjóri: Laufey Helga-
dóttir
Ísland hefur tekið þátt í Feneyja-
tvíæringnum með gloppum síðan
1960. Á Kjarvalsstöðum má nú
skoða listaverkin sem hafa verið
talsmenn íslenskrar myndlistar á
alþjóðavettvangi síðustu áratugi,
frábært framtak hjá safninu.
Þátttakendur fram til dagsins
í dag hafa verið tuttugu og tveir;
nítján karlmenn og þrjár konur.
Á þessu ári verða konurnar fjór-
ar þegar þau Ólafur Ólafsson og
Libía Castro verða verðugir full-
trúar okkar í Feneyjum.
Listasagan er skrifuð á margvís-
legan máta. Stórsýningar á borð
við Tvíæringinn eru ein af þeim
skrásetningaraðferðum sem má
nota til að merkja kennileitin. Hér
má sjá eitthvað af þeim straumum
og stefnum sem sett hafa mark sitt
á íslenska og alþjóðlega samtíma-
list eftir 1960, allt frá landslags-
myndum Svavars Guðnasonar til
málverka Ragnars Kjartansson-
ar. Ekki er þó raunsætt að tala um
íslenska listasögu í hnotskurn eins
og sýningarstjórinn Laufey Helga-
dóttir gerir í viðtali. Ekki þarf
annað en að skoða kynjahlutföllin
til þess að staðfesta það. Vissulega
koma þó fram straumar og stefnur
sem einkennt hafa íslenska mynd-
listarsögu.
Það óvænta á sýningunni er
hins vegar það að hún birtir aðra
sögu. Ekki söguna sem listaverk-
in segja, heldur söguna bak við
tjöldin. Söguna um óviðunandi
starfsskilyrði íslenskra myndlist-
armanna í gegnum tíðina. Skiln-
ingsleysi stjórnvalda á mikilvægi
þess að standa sómasamlega að
kynningu íslenskrar myndlistar
á alþjóðavettvangi. Hún segir af
skipun í valnefndir og vali þeirra
á listamönnum. Ekki að svo illa
hafi endilega verið staðið að þeim
þætti, heldur er hann áminning
um að enginn algildur sannleikur
felst í valinu, ekki frekar en í skrá-
setningu listasögunnar. Það er sýn-
ingunni til hróss að á upplýsing-
um með listaverkum kemur fram
hver var í valnefnd í hvert skipti.
Þannig voru það t.d. ekki Íslending-
ar sem sendu Sigurð Guðmundsson
tvisvar til Feneyja, 1976 og 1978,
heldur Ítalir og Skandinavar. Svo
eitthvað sé nefnt. Stundum voru
margir í valnefnd, stundum bara
einn. Þannig valdi Magnús Páls-
son einn þá Jón Gunnar Árnason
og Kristján Guðmundsson til farar-
innar árið 1982, og Ólafur Kvaran
var einn um að velja Sigurð Árna
Sigurðsson árið 1999.
Á síðustu árum hefur verið unnið
að því að gera Feneyjafarana okkar
betur úr garði en enn vantar upp
á til þess að listamennirnir okkar
standi kollegum sínum frá öðrum
Evrópulöndum jafnfætis hvað það
varðar. Nú er Ísland til dæmis
aftur húsnæðislaust á sýningunni,
en í því geta þó allt eins falist tæki-
færi fyrir list samtímans.
Á Kjarvalsstöðum má sjá fjölda
úrvalsverka eftir frábæra lista-
menn sem allir hafa sett mark sitt á
íslenska myndlistarsögu. Þau gera
sýninguna áhugaverða og gæða
hana lífi. Þegar kemur að framlagi
síðustu ára lendir safnið þó í vanda,
engin leið er að setja upp innsetn-
ingu Gabríelu, hvað þá gjörning
Ragnars Kjartanssonar. Fram-
lag Íslands frá aldamótum birt-
ist því í mýflugumynd. Eins kom-
ast staðhættir í Feneyjum illa til
skila, ég hefði viljað sjá ljósmynd-
ir af öllum verkunum á staðnum á
hverjum tíma og fleira í þeim dúr.
Ekki má gleyma því að Feneyjatví-
æringurinn er risastórt listapartí
sem stendur í marga mánuði, eins
konar uppskeruhátíð, og heimsókn
á hann er mikil upplifun, en þetta
kemur ekki vel fram hér. Kannski
hefði verið hægt að nálgast alla
þessa þætti með meira afgerandi
hætti. Engu að síður mæli ég ein-
dregið með heimsókn á sýninguna
og framtakið er lofsvert.
Ragna Sigurðardóttir
Niðurstaða: Metnaðarfullt framtak
sem heppnast þó ekki fullkomlega.
Ómögulegt er í framkvæmd að sýna
verk síðustu ára. Engu að síður er
hér fjöldi úrvals verka sem fengur er
að því að skoða. Óvænt birtist sagan
bak við tjöldin, áhugaverð saga af
starfsumhverfi íslenskra myndlist-
armanna. Sýning sem vekur upp
margar spurningar.
Sagan bak við tjöldin
Bjarni Thor Kristinsson bassi
og Ástríður Alda Sigurðardóttir
píanóleikari flytja Vetrarferðina
eftir Franz Schubert á Tíbrártón-
leikum í Salnum á laugardag.
Vetrarferðin er meðal þekkt-
ustu verka tónskáldsins, samið við
ljóð Wilhelms Müller, og er talið í
fremstu röð ljóðatónlistar. Ljóða-
flokkurinn fjallar um sögu ungs
manns, óendurgoldna ást hans
og örlagaríkt ferðalag hans um
vetur. Í tónverkinu er sagan túlk-
uð af söngvara og píanóleikara.
Bjarni Thor Kristinsson hefur
sungið ýmis hlutverk í óperum
um allan heim og kemur til með
að syngja í 9. Sinfóníu Beethovens
með Sinfóníuhljómsveit Íslands í
maí næstkomandi.
Ástríður Alda Sigurðardóttir
hefur komið víða fram á tónleik-
um, ýmist sem einleikari eða með
öðrum tónlistarmönnum, þar á
meðal á Listahátíð í Reykjavík,
auk þess sem hún er meðlimur í
kammerhópnum Electra Ensemb-
le og tangósveitinni Fimm í tangó.
Tónleikarnir í Salnum á laugar-
dag hefjast klukkan 17.
Schubert í
Salnum
ÚR SÝNINGU SÝNINGANNA Steingrímur Eyfjörð er í hópi fulltrúa Íslands á Feneyjatví-
æringnum og setti meðal annars upp verkið The Sheep Pen.
ÁSTRÍÐUR ALDA
SIGURÐARDÓTTIR
BJARNI THOR
KRISTINSSON
*Aðalvinningar dregnir úr öllum
innsendum skeytum 14. mars.
Vinningar verða afhentir í ELKO Lindum,
Kópavogi. Með því að taka þátt ertu
kominn í SMS klúbb. 149 kr./SMS-ið.
Þú færð 5 mínútur til að svara spurningu.
Leik lýkur 13. mars 2011
T.
d.
þ
es
sa
r
9. HVER
VINNUR!
Allir félagsmenn eru
hvattir til að mæta.
Aðalfundur Hins íslenska Biblíufélags
20. mars 2011
Aðalfundur Hins íslenska biblíufélags fer
fram sunnudaginn 20. mars* kl. 15:00
í safnaðarheimili Seljakirkju.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf,
sbr. 10. gr. laga félagsins
Stjórnin
*Ath. breyttur fundartími