Fréttablaðið - 18.02.2011, Blaðsíða 50
18. febrúar 2011 FÖSTUDAGUR30
sport@frettabladid.is
JÓHANNES VALGEIRSSON tilkynnti óvænt í gær að hann væri hættur
að dæma. Þetta kom fram á fótbolti.net. Jóhannes hefur verið einn besti dómari
landsins um árabil og afar reynslumikill enda dæmt mikið erlendis sem hér á landi.
N1-deild karla:
Akureyri-FH 25-24
Mörk Akureyrar (skot): Bjarni Fritzson 9/3 (16),
Guðmundur Hólmar Helgason 4 (12), Oddur
Gretarsson 4 (5), Hörður Fannar Sigþórsson 3
(6), Daníel Einarsson 2 (4), Guðlaugur Arnarsson
1 (1), Bergvin Gíslason 1 (2), Heimir Örn Árnason
1 (3).
Varin skot: Sveinbjörn Pétursson 20 (37) 54%,
Stefán U. Guðnason 4 (10) 40%.
Hraðaupphlaup: 7 (Oddur 3, Guðmundur 2,
Guðlaugur, Bjarni).
Fiskuð víti: 3 (Oddur, Daníel, Guðmundur).
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk FH (skot): Ásbjörn Friðriksson 7/4 (9),
Ólafur Guðmundsson 5 (15), Örn Ingi Bjarkason
4 (14), Baldvin Þorsteinsson 3 (4), Atli Stein-
þórsson 2 (5), Ólafur Gústafsson 2 (8), Ari
Þorgeirsson 1 (2).
Varin skot: Pálmar Pétursson 16 (40) 40%,
Daníel Andrésson 0 (1) %.
Hraðaupphlaup: 3 (Ólafur Guðmundsson 3)
Fiskuð víti: 4 (Baldvin, Örn, Atli, Ásbjörn).
Utan vallar: 10 mínútur.
Fram-Haukar 28-33 (13-18)
Mörk Fram (Skot): Einar Rafn Eiðsson 7/1 (13/2),
Andri Berg Haraldsson 6 ( 12)
Matthías Daðason 3 (3), Magnús Stefánsson 3
(4), Róbert Aron Hostert 3 (7), Jóhann Gunnar
Einarsson 3 (7), Jóhann Karl Reynisson 2 (3),
Halldór Jóhann Sigfússon 1 /1 (2/1), Haraldur
Þorvarðarson (3).
Varin skot: Magnús Gunnar Erlendsson 6 (19/2,
32%), Björn Viðar Björnsson 16/2 (36/5, 44%).
Hraðaupphlaupsmörk: 7 (Jóhann Karl 2, Einar
Rafn 2, Magnús, Andri Berg, Matthías)
Fiskuð víti: 3 (Haraldur 2, Róbert Aron)
Brottvísanir: 14 mínútur
Mörk Hauka (Skot): Guðmundur Árni Ólafsson
11/5 (14/7), Björgvin Þór Hólmgeirsson 11 (15),
Tjörvi Þorgeirsson 3 (12), Freyr Brynjarsson 2
(3), Einar Örn Jónsson 2 (4), Sveinn Þorgeirsson
2 (5), Heimir Óli Heimisson 2 (5), Þórður Rafn
Guðmundsson (2).
Varin skot: Birkir Ívar Guðmundsson 9/1 (26/2,
35%), Aron Rafn Eðvarðsson 5 (16/1, 31%)
Hraðaupphlaupsmörk: 6 (Guðmundur Árni 2,
Björgvin Þór 2, Freyr 1, Heimir Óli)
Fiskuð víti: 7 (Freyr 2, Þórður Rafn, Sveinn, Heimir
Óli, Einar Örn, Björgvin Þór)
Brottvísanir: 16 mínútur
HK-Selfoss 35-28
HK: Ólafur Bjarki Ragnarsson 11, Atli Ævar
Ingólfsson 7, Hörður Másson 5, Bjarki Már Elísson
4, Bjarki Gunnarsson 2, Sigurjón Björnsson 2,
Vilhelm Gauti Bergsveinsson 2, Leó Pétursson 2.
Selfoss: Atli Kristinsson 10, Ragnar Jóhannsson 6,
Einar Héðinsson 4, Guðjón Drengsson 3, Andrius
Zigelis 2, Helgi Héðinsson 2, Milan Ivancev 1.
Valur-Afturelding 29-25
Valur: Heiðar Þór Aðalsteinsson 6, Jón Björgvin
Pétursson 5, Ernir Hrafn Arnarson 5, Valdimar
Þórsson 3, Fannar Þorbjörnsson 3, Hjálmar
Arnarson 2.
Afturelding: Hilmar Stefánsson 5, Þrándur
Gíslason 5, Haukur Sigurvinsson 3, Sverrir
Hermannsson 3, Jón Andri Helgason 2, Bjarni
Aron Þórðarson 2, Jóhann Jóhannsson 2, Hrafn
Ingvarsson 2, Ásgeir Jónsson 1.
STAÐAN:
Akureyri 14 12 1 1 415-363 25
Fram 14 9 1 4 454-402 19
HK 14 9 0 5 425-427 18
FH 14 8 1 5 400-372 17
Haukar 14 7 2 5 361-354 16
Valur 14 5 0 9 361-399 10
Afturelding 14 2 0 12 349-393 4
Selfoss 14 1 1 12 391-450 3
ÚRSLIT
HANDBOLTI Handknattleiksdeild
Fram ákvað frekar óvænt í gær
að draga kæru sína í tengslum við
undanúrslitaleik Fram og Vals til
baka.
Fram kærði leikinn þar sem
félagið taldi Markús Mána
Michaelsson ekki hafa verið lög-
legan í liði Vals. Fram sagði að
hann hefði ekki verið með leik-
heimild og þar af leiðandi ekki
löglegur.
Staðfest hefur verið að Valur
sendi fax um klukkutíma fyrir leik
liðanna en starfsmenn HSÍ sáu
það ekki fyrr en degi síðar enda
var leikið á sunnudegi þegar skrif-
stofunni var lokað. Þess vegna var
ekki búið að staðfesta leikheimild-
ina fyrr en mánudegi. Hann var
því ekki með staðfesta leikheimild
þegar leikurinn fór fram.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins hefur hingað til dugað að
senda föx með leikmannasamn-
ingi fyrir leiki til HSÍ svo leik-
menn séu löglegir. Það hafa verið
vinnureglurnar en lögin segja að
samþykkja þurfi leikheimild svo
leikmaður sé löglegur.
HSÍ sendi frá sér yfirlýsingu í
gær þar sem fram kemur að vafi
sé á því hvort sú framkvæmd sem
verið hefur á móttöku leikmanna-
samninga standist ákvæði reglu-
gerðar HSÍ. Stjórn HSÍ mun taka
umrædda framkvæmd til endur-
skoðunar.
Í kjölfarið féll Fram frá sinni
kæru þó svo félagið sagðist vera
pottþétt á að hafa rétt fyrr sér í
málinu. Þó svo Fram hafi sótt
málið stíft á síðustu dögum og
ekki gefið tommu eftir segir í yfir-
lýsingu félagsins að því hugnist
ekki sú tilhugsun að vinna til verð-
launa fyrir tilstuðlan dómara.
- hbg
Valur mun leika í úrslitum bikarsins eftir að Fram dró kæru sína til baka:
Vilja ekki vinna verðlaun fyrir dómi
MARKÚS MÁNI Þátttaka hans í undanúr-
slitaleik Fram og Vals hefur dregið dilk á
eftir sér. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
HANDBOLTI 20 sekúndur eftir. Stað-
an 25-24. FH í banastuði eftir að
hafa unnið upp sex marka forskot
og er með boltann. Enginn er heit-
ari en Ólafur Guðmundsson sem
hefur skorað þrjú mörk í röð.
Snörp sókn, gabbhreyfing sem
sendi vörn Akureyrar upp í Hlíð-
arfjall og allt opið fyrir Ólaf. Skot-
ið er gott, en á einhvern ótrúlegan
hátt stekkur Sveinbjörn Péturs-
son fyrir og nær að verja. Fögn-
uður Akureyrar var á við sigur í
bikarúrslitunum.
Liðið mátti enda við því, komið
með sex stiga forystu eftir leiki
gærdagsins og FH í tómu tjóni
mestan hluta leiksins. Með frá-
bærri vörn byggði Akureyri upp
gott forskot og FH var sem skugg-
inn af sjálfum sér lengst af.
Bæði lið voru lengi að koma sér í
gang, en FH mun lengur. Reyndar
heilar 40 mínútur því liðið fór ekki
að spila almennilega fyrr en það
var lent sex mörkum undir í upp-
hafi seinni hálfleiks, 16-10.
Þá loksins fór liðið að finna gluf-
ur á vörn Akureyringa og Ólafur
að hitta á markið. Að sama skapi
var Akureyri kærulaust auk þess
sem Oddur Gretarsson meiddist og
spilaði lítið í seinni hálfleik. FH
saxaði á forskotið jafnt og þétt,
Pálmar varði ágætlega og spennan
var gríðarleg undir lokin.
Akureyringar hrósuðu sigri og
geta þakkað Sveinbirni kærlega
fyrir. Hann varði á ögurstundu
en viðurkennir að hafa ekki hug-
mynd um hvernig hann varði.
„Maður ver bara einn af hverjum
tíu í svona færum. En hann gabb-
aði vörnina okkar upp úr skónum
og þá þarf maður að redda rass-
gatinu á þeim,“ sagði Sveinbjörn
brosmildur en hann hvíldi sig í
nokkrar mínútur í seinni hálfleik
en kom sjóðheitur aftur inn.
„Ég var pirraður, það er fínt
að vera ákveðið reiður, en ég var
kominn yfir það. Það var gott að
setjast og Stebbi [Stefán „Uxi“
Guðnason] kom inn og varði vel.
Hann hefur hjálpað mér gríðarlega
mikið í allan vetur og ég á honum
mikið að þakka, það er gott að setj-
ast aðeins og pæla í hvað er að,“
sagði Sveinbjörn.
Atli Hilmarsson þjálfari segir
karakter liðsins hafa skipt öllu
máli. „Það er oft þannig að þegar
lið mætast í bæði bikar og deild
að þá er seinni leikurinn erfiðari
fyrir sigurliðið. Ég bjóst við því.
Ég vildi ná stærra forskoti, við
vorum kærulausir, en að ná sex
marka forystu var frábært og ég
er mjög ánægður. Við vorum að
spila við frábært lið. Auðvitað
komu þeir til baka og það er gott
fyrir þá að eiga mann eins og Ólaf
inni. Sveinbjörn varði vel undir
restina og reddaði þessu en ég er
ánægðastur með að vera áfram á
beinu brautinni,“ sagði Atli.
„Við vorum alltof hikandi og
skutum illa,“ sagði Kristján Ara-
son, þjálfari FH. „Forskotið var of
mikið og við gerðum of mörg mis-
tök. Við hefðum átt eitt stig skil-
ið og það er svekkjandi að ná því
ekki. Sóknin okkar var ekki verri
en hjá Akureyri.
Það var allt annað að sjá Ólaf
eftir að hann kom aftur inn, hann
hafði valdið okkur miklum von-
brigðum. En svona er þetta, það
er stutt á milli í þessu og síðasta
skotið var gott en vel varið líka,“
sagði Kristján súr í broti. - hþh
Veit ekki hvernig ég varði
Sveinbjörn Pétursson varði á ótrúlegan hátt lokaskot FH á síðustu sekúndu
leiks liðanna í gær. Hann tryggði Akureyri eins marks sigur með mark-
vörslunni. Akureyri er með sex stiga forskot á toppi N1-deildar karla.
MAGNAÐUR Sveinbjörn Pétursson hefur farið á kostum með Akureyri í vetur og átti
enn einn stórleikinn í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HANDBOLTI Haukar ætla ekki að
gefa eftir í baráttunni um sæti í
úrslitakeppninni þvi liðið vann
öruggan fimm marka sigur á
Fram, 33-28, í Safamýrinni í N1-
deild karla í gærkvöldi.
Haukar voru með frumkvæð-
ið eftir að hafa skorað átta mörk
gegn einu á ellefu mínútna kafla
í fyrri hálfeik og þó að Framarar
hafi bitið frá sér í upphafi seinni
hálfleiks og minnkað muninn
niður í eitt mark, þá var sigur
Hauka eiginlega aldrei í hættu.
Þeir nýttu sér agaleysi og
klaufagang Framara og voru
óhræddir að keyra upp hraðann,
eitthvað sem þeir hafa ekki
verið þekktir fyrir í vetur.
Björgvin Þór Hólmgeirsson og
Guðmundur Árni Ólafsson fóru
á kostum í Haukaliðinu og skor-
uðu báðir ellefu mörk í leiknum.
„Þetta var mjög gott hjá
okkur og fór nákvæmlega eins
og við lögðum upp með. Við ætl-
uðum að keyra í bakið á þeim
og keyra upp hraðann sem við
höfum ekki verið að gera undan-
farið. Það virkaði bara ágæt-
lega og við skoruðum 33 mörk
sem við höfum ekki séð lengi.
Ef við spilum svona þá hef ég
ekki áhyggjur af þessu því við
munum þá koma okkur í úrslita-
keppnina. Ég vona hraðinn sé
kominn í Haukaliðið aftur,“
sagði Björgvin.
Reynir Þór Reynisson,
þjálfari Fram, var skiljanlega
óhress með sína menn.
„Þetta var mjög lélegt í alla
staði hjá okkur og það er ekkert
flóknara en það. Það var flest
að hjá okkur í dag, við vorum
andlausir, vörnin var léleg og
allt eftir því. því miður fór þetta
svona fyrir okkur. Ég held að
kærumálið sem slíkt hafi ekki
haft áhrif hjá okkur en kannski
sat bikarleikurinn eitthvað í
okkur. Við vorum bara ólíkir
sjálfum okkur í dag,“ sagði
Reynir Þór. - óój
Haukasigur í Safamýrinni:
Fóru létt með
lélega Framara
HARKA Framarinn Jóhann Gunnar Ein-
arsson er hér rifinn niður.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM