Fréttablaðið - 18.02.2011, Síða 54
34 18. febrúar 2011 FÖSTUDAGUR
FÖSTUDAGSLAGIÐ
„Akkúrat núna myndi ég segja
Howlin‘ for You með The Black
Keys – en annars er það alltaf
The Cure sem ég set á fóninn ef
stuð skal verða!“
Alma Geirdal uppistandari.
„Það er freistandi að skella sér, en
ég er upptekin í skólanum,“ segir
fyrirsætan Lilja Ingibjargardóttir.
Lilju var boðið í afmælisveislu
hótelerfingjans Parísar Hilton í
New York í gær, en þar fagnaði Hilt-
on 30 ára afmæli sínu ásamt nokk-
ur hundruð nánustu vinum sínum.
Hilton lét sér ekki nægja að halda
eina veislu, en sú fyrsta var haldin
í glæsivillu hennar í Los Angeles í
vikunni. Þá hyggst hún halda þriðju
veisluna í Las Vegas.
En hvernig kom til að París Hilton
bauð Lilju í afmælið sitt?
„Mér er alltaf boðið í öll skemmti-
legustu partíin í New York,“ segir
Lilja í léttum dúr. Lilja kynntist
París Hilton í Los Angeles árið
2008 og þær hittust nokkrum sinn-
um í kjölfarið. Þá var henni meðal
annars boðið í partí heim til hennar.
„Ég held að þetta sé einhver afmælis-
vika hjá henni,“ segir Lilja. „Ef ég
ætti nógu mikið af peningum myndi
ég líka ferðast um heiminn og halda
partí í hverri einustu borg.“
Lilja fékk boð í veislurnar á
Facebook. Fái maður boð í veislu
í gegnum síðuna getur maður
stundum séð gestalistann,
sem er eflaust forvitni-
legur hjá Paris Hilton.
Lilja ákvað hins vegar
að láta gestalistann
eiga sig. „Nei, ég
var ekkert að skoða hann. En það
eru náttúrulega þessar aðalstjörnur
sem mæta.“
Lilja er þó á leiðinni til New York
í sumar að hitta vini sína, sem eru
á leiðinni í afmælisveisluna. Hvöttu
þeir Lilju til að breyta flugmiðan-
um og skella sér út, en hún tók
námið fram yfir afmælisveislu
hótelerfingjans. „Það verður nóg af
partíum í sumar,“ segir hún kímin
að lokum. - afb
Boðið í afmælisveislur Parísar Hilton
HELDUR UPP Á AFMÆLIÐ SITT Lilju
Ingibjargar var boðið í afmælis-
veislur hótelerfingjans Parísar
Hilton í New York og Los Ang-
eles. Hún tók námið fram yfir
veislurnar.
Hljómsveitin Dikta lenti í skondnu
atviki á tónlistarhátíðinni Euro-
sonic í Hollandi á dögunum. Þá var
hún kynnt upp á svið sem hljóm-
sveitin Dikita frá Írlandi.
„Við hlógum mikið að þessu,“
segir trommuleikarinn Jón Þór
Sigurðsson, eða Nonni kjuði.
Sérstaklega þótti þeim fyndið
að stúlkan sem kynnti þá hafði
skömmu áður komið til þeirra og
spurt hvernig hún ætti að kynna
þá. Þeir sögðust einfaldlega heita
Dikta og kæmu frá Íslandi og
brást hún þá við með því að segja:
„Segið mér eitthvað sem ég veit
ekki“.
„Svo klúðraði hún þessu gjör-
samlega, greyið stelpan,“ segir
Nonni og hlær. „Hún var reyndar
mjög sorrí yfir þessu eftir á. Við
gerðum mikið grín að þessu þegar
við vorum að spila og sögðumst
vera Dikita frá Írlandi.“
Nafnið Dikta hefur vafist fyrir
fleiri útlendingum og sumir rugl-
ast á hljómsveitinni og banda-
rískum ruðningsþjálfara sem
heitir Mike Ditka. „Menn hafa
stundum ruglað þessu saman en
við höfum bara húmor fyrir því,“
segir Nonni.
Fram undan hjá Diktu er spila-
mennska á tónlistarhátíðinni South
By Southwest í Texas í mars.
Skömmu áður spilar sveitin í Los
Angeles á nokkrum tónleikum.
Í maí fer Dikta síðan á tónleika-
ferð um Þýskaland, Austurríki,
Sviss og Danmörku. Þar verð-
ur platan Get it Together kynnt,
sem kemur út á vegum fyrirtækj-
anna Smarten-Up og Rough Trade
í Evrópu 11. mars. - fb
Kynntir sem Dikita frá Írlandi
Á FERÐALAGI Hljómsveitin Dikta var
kölluð Dikita og sögð vera frá Írlandi á
tónlistarhátíðinni Eurosonic.
Söngkonan Jóhanna Guðrún Jóns-
dóttir og kærastinn hennar, gítar-
leikarinn Davíð Sigurgeirsson,
hafa sett stefnuna á að flytja til
Svíþjóðar í sumar.
„Ég held að það sé ekki svo vit-
laust, bara vinnunnar vegna. Það
er svo margt sem er í boði þar,“
segir Jóhanna Guðrún, sem hefur
notið mikilla vinsælda í Svíþjóð
að undanförnu. Hún segir það
einnig vel koma til greina að hún
skrái sig í tónlistarskóla þar í
landi enda er gott úrval af þeim í
Svíþjóð. „Þetta yrði bara fjör. Við
erum enn þá ung og höfum tæki-
færi til að gera þetta núna,“ segir
hún.
Lagið hennar Nótt, sem tók
þátt í úrslitum Eurovision síðasta
laugardag, kemur í næstu viku
út í enskri útgáfu í Svíþjóð undir
nafninu Slow Down. Jóhanna tók
það upp á milli jóla og nýárs, á
sama tíma og íslenska útgáfan var
hljóðrituð. „Það var alltaf mein-
ingin að þetta ætti að koma út á
ensku, sama hvernig færi í keppn-
inni. Enska útgáfan er aðalútgáfan
ef svo má segja.“
Jóhanna hefur eignast stór-
an aðdáendahóp í Svíþjóð eftir
vinsældir Is it True? þar í landi.
Lagið sat til að mynda í 26 vikur
samfleytt á lista yfir vinsæl-
ustu lögin og er enn mikið spil-
að í útvarpinu. Til að fylgja eftir
nýja laginu, Slow Down, verður
Jóhanna mikið í Svíþjóð í næsta
mánuði og hefur þegar bókað sig
á nokkra tónleika. Slow Down
er nýkomið út á iTunes í Evrópu
og sat í gær í 36. sæti á sænska
iTunes-listanum.
Spurð út í vinsældir sínar í Sví-
þjóð segir Jóhanna: „Menningin
þar er rosalega poppuð og svona
lög passa vel inn þar,“ segir hún.
„Það er bara yndislegt og ég er
mjög þakklát fyrir það.“
Söngkonan var gagnrýnd fyrir
að hafa tekið því illa að vinna ekki
Eurovision-keppnina um síðustu
helgi. Hún segir svo alls ekki
vera. „Mér finnst mjög leiðin-
legt ef fólk misskildi tveggja sek-
úndna viðbrögð hjá mér. Þetta er
bara þegar heilinn er að meðtaka
upplýsingarnar sem maður er að
fá. Þetta tengist því ekkert að ég
hafi verið óánægð með úrslitin
eða neitt svoleiðis. Að sjálfsögðu
er ég bara mjög sátt með þau
enda eru þessir menn allir vinir
mínir. Ég samgleðst þeim innilega
og veit að þeir eiga eftir að gera
mjög flotta hluti úti. Það er mjög
leiðinlegt ef fólk leggur manni
svona orð í munn,“ segir hún.
Aðdáendur Jóhönnu geta fylgst
betur með henni á nýrri heima-
síðu, Yohannamusic.com, sem var
nýlega sett í loftið.
freyr@frettabladid.is
JÓHANNA GUÐRÚN: NÚ ER TÆKIFÆRIÐ TIL AÐ PRÓFA EITTHVAÐ NÝTT
Svíþjóð kallar á Jóhönnu
HORFA TIL SVÍÞJÓÐAR Jóhanna Guðrún og kærastinn hennar, Davíð Sigurgeirsson,
hafa sett stefnuna á að flytja til Svíþjóðar í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Tæpar tvær vikur eru nú í að
Mottumars 2011 hefjist. Fjölmargir
karlmenn skörtuðu yfirvaraskeggi í
marsmánuði í fyrra af þessu tilefni
og þó nokkur stemning virðist
einnig nú. Þannig
heyrist af þjóðþekkt-
um mönnum sem
þegar eru farnir að
safna mottu. Þar má
nefna tónlistarmenn-
ina Krumma
í Mínus og
Sigurð Guð-
mundsson
auk Ómars
Ragnars-
sonar. - hdm
FRÉTTIR AF FÓLKI
Erum með öll flottustu merkin í
sport- og tískufatnaði á einum stað.
Kíktu við í Gallerí Ozone, Akranesi og Selfossi og gerðu
dúndurkaup á allra síðustu dögum útsölunnar
50-80% afsláttur
opið laugardag og sunnnudag.
Hefur þú komið á
alvöru útsölu?
Aðeins þessa helgi
20% afsláttur af
nýjum vörum frá
Fös 18.2. Kl. 19:00
Lau 19.2. Kl. 19:00
Lau 26.2. Kl. 19:00 Aukas.
Mið 2.3. Kl. 19:00
Mið 9.3. Kl. 19:00
Lau 12.3. Kl. 19:00
Mið 16.3. Kl. 19:00 Aukas.
Fim 17.3. Kl. 19:00
Lau 26.3. Kl. 19:00
Íslandsklukkan (Stóra sviðið)
Ö
Sun 6.3. Kl. 13:30
Sun 6.3. Kl. 15:00
Sun 13.3. Kl. 13:30
Sun 13.3. Kl. 15:00
Sun 20.3. Kl. 13:30
Sun 20.3. Kl. 15:00
Sun 27.3. Kl. 13:30
Sun 27.3. Kl. 15:00
Sindri silfurfiskur (Kúlan)
Allir synir mínir (Stóra sviðið)
Sun 20.2. Kl. 14:00
Sun 20.2. Kl. 17:00
Sun 27.2. Kl. 14:00
Sun 27.2. Kl. 17:00
Sun 6.3. Kl. 14:00
Sun 6.3. Kl. 17:00
Sun 13.3. Kl. 14:00
Sun 13.3. Kl. 17:00
Sun 20.3. Kl. 14:00
Sun 20.3. Kl. 17:00
Sun 3.4. Kl. 14:00
Sun 3.4. Kl. 17:00
Sun 10.4. Kl. 14:00
Sun 10.4. Kl. 17:00
Sun 17.4. Kl. 14:00
Sun 17.4. Kl. 17:00
Ballið á Bessastöðum (Stóra sviðið)
Ö
Fös 4.3. Kl. 20:00 Frums.
Lau 5.3. Kl. 20:00 2. sýn
Fös 11.3. Kl. 20:00 3. sýn
Fös 18.3. Kl. 20:00 4. sýn
Lau 19.3. Kl. 20:00 5. sýn
Fim 24.3. Kl. 20:00 6. sýn
Fös 25.3. Kl. 20:00 7. sýn
Fös 1.4. Kl. 20:00 Ö
Brák (Kúlan)
Sun 20.2. Kl. 20:00
Fös 25.2. Kl. 20:00 Aukas.
Sun 27.2. Kl. 20:00
Ö
Ö
Ö U
U
Ö
Ö
Ö
Ö
U
Lér konungur (Stóra sviðið)
Fös 25.2. Kl. 20:00 Ö
U
Ö
Ö
Ö
Ö
U
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Fim 10.3. Kl. 20:00 Frums.
Fös 11.3. Kl. 20:00
Sun 13.3. Kl. 20:00
Lau 19.3. Kl. 20:00
Sun 20.3. Kl. 20:00
Fös 25.3. Kl. 20:00
Sun 27.3. Kl. 20:00
Mið 30.3. Kl. 20:00
Hedda Gabler (Kassinn)
Ö
U
Ö
Ö
Ö
Ö
U
Ö
Ö
Ö
Ö
Meiri Vísir.