Fréttablaðið - 25.02.2011, Page 2
25. febrúar 2011 FÖSTUDAGUR2
LÖGREGLUMÁL „Þetta mál hefði
aldrei átt að koma til enda byggðist
það á misskilningi,“ segir Haraldur
I. Þórðarson sem íhugar nú að höfða
skaðabótamál eða krefjast rann-
sóknar á vinnubrögðum efnahags-
brotadeildar ríkislögreglustjóra.
Haraldur var ásamt Friðjóni
bróður sínum og þriðja aðila grun-
aður um auðgunarbrot og brot á
lögum um peningaþvætti. Málið
kom upp eftir að um 250 milljóna
króna millifærslur hjá Friðjóni og
vini hans vöktu grunsemdir. Frið-
jón vann þá hjá fjármálafyrirtæk-
inu Virðingu og átti einkahlutafélag
með Haraldi sem var í viðskiptum
við Virðingu.
Snemma við rannsókn málsins
kom í ljós að ekki var tilefni til lög-
reglurannsóknar.
Haraldur telur að verulega hafi
verið brotið gegn sér við meðferð
ríkislögreglustjóra en honum var
ekki gerð grein fyrir meintu sakar-
efni fyrr en á síðari stigum rann-
sóknar, sem stóð yfir í rúm tvö ár.
Embættið tilkynnti honum bréfleið-
is fyrir tæpum hálfum mánuði að
rannsókn málsins hefði verið hætt.
Það sama á við um aðra í málinu.
„Ég hef beðið mikinn skaða af
þessu ferli öllu. DV gekk mjög
langt í ósmekklegum fullyrðingum
í þessu máli og gerði sitt ýtrasta til
að draga nafn föður míns heitins inn
í málið. Ég íhuga nú að leita réttar
míns,“ segir Haraldur en hann og
Friðjón eru synir Þórðar Friðjóns-
sonar, fyrrverandi forstjóra Kaup-
hallarinnar, sem lést fyrir skömmu.
- jab
Ég hef beðið mikinn
skaða af þessu ferli öllu.
HARALDUR I. ÞÓRÐARSON
Þorsteinn, er þetta ekki allt að
fara í vaskinn hjá ykkur?
„Nei, heldur betur ekki. Við þurfum
fyrst að finna leirtauið.“
Sjónvarpsmaðurinn Þorsteinn Joð er
að gera heimildarmynd um leitina að
leirtauinu úr veitingastaðnum Iceland
Food Center sem var rekinn í London á
sjöunda áratugnum.
VÍSINDI Notkun farsíma getur
haft áhrif á heilastarfsemi, en
þó hefur ekki verið sýnt fram á
tengsl farsímanotkunar og auk-
innar hættu á heilakrabbameini.
Þetta kemur fram í nýjasta
hefti fagtímaritsins JAMA en
í bráðabirgðarannsókn banda-
rískra vísindamanna sýnir að 50
mínútna símtal í farsíma hefur í
för með sér aukna heilastarfsemi
í nánd við símtækið.
Vísindamennirnir segja að
þessar niðurstöður sanni að far-
símanotkun geti vissulega haft
áhrif á heilastarfsemi, en frek-
ari rannsókna sé þörf til að meta
hvort áhrifin séu skaðleg. - þj
Ný rannsókn á símnotkun:
Farsímar hafa
áhrif á heila
SIGURSTRANGLEGUR Enda Kenny og
flokkur hans eiga sigur vísan í þingkosn-
ingunum á Írlandi. NORDICPHOTOS/AFP
ÍRLAND Írar ganga til þingkosn-
inga í dag, þar sem nær víst er að
flokkurinn Fine Gael muni hrósa
sigri og formaðurinn Enda Kenny
verði forsætisráherra.
Brian Cowen og mið-hægri-
flokkur hans, Fianna Fail,
hrökklaðist frá völdum á dög-
unum eftir að efnahagur Írlands
hrundi, og gefa skoðanakannanir
til kynna að flokkurinn muni tapa
að minnsta kosti 40 þingsætum.
Fine Gael er ekki talinn munu
stýra af leið sem þegar hefur
verið tekin, það er að ríkið ábyrg-
ist skuldir fjármálafyrirtækja og
taki við lánum frá Alþjóðagjald-
eyrissjóðnum og ESB. - þj
Kosið á Írlandi:
Kenny líklegur
sigurvegari
VIÐURKENNING Alþjóðleg ráðstefna
hófst í gær þar sem rætt er um hvernig
reka má golfvelli út frá sjónarmiði
umhverfisverndar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
UMHVERFISMÁL Svandís Svavars-
dóttir umhverfisráðherra tók í
gær við viðurkenningarskjali
fyrir hönd Golfsambands Íslands
úr hendi Jonathans Smith, fram-
kvæmdastjóra Golf Environment
Organization þar sem kemur fram
að Ísland er fyrsta landið þar sem
allir golfklúbbar viðkomandi lands
hafa tekið þátt í umhverfisverkefni
samtakanna.
Viðurkenningin undirstrikar
mikilvægi þess að umhverfismál
og sjálfbærni séu forgangsmál
við uppbyggingu sem og rekstur
íþróttamannvirkja á Íslandi. - shá
GSÍ fær viðurkenningu:
Íslenskir vellir
í fremstu röð
DÓMSMÁL Hæstiréttur ógilti í gær
sýknudóm yfir Hauki Haralds-
syni, fyrrverandi starfsmanni
Landsbankans, sem ákærður var
fyrir að hafa dregið sér 118 millj-
ónir í starfi sem framkvæmda-
stjóri hjá Landsbankanum.
Haukur hafði verið sakaður
um að hafa fært 118 milljón-
ir yfir á eigin reikning daginn
sem skilanefnd tók Landsbank-
ann yfir. 21. apríl í fyrra sýknaði
Héraðsdómur Reykjavikur Hauk
af ákæru um fjárdrátt. Ríkis-
saksóknari áfrýjaði málinu til
Hæstaréttar. Hæstiréttur komst
svo að þeirri niðurstöðu í gær að
héraðsdómur hefði ekki fellt dóm
á málið með tilliti til allra gagna
sem fyrir honum lágu.
Fyrir rétti bar
Haukur meðal ann-
ars að hann hefði
millifært féð til
að tryggja að það
g l at að i s t ek k i
eftir að ljóst varð
að Landsbankinn
stefndi í gjaldþrot.
Hann hafi ekki reynt
að gera það með leynd.
Hæstiréttur
seg i r að
héraðs-
dómur
hafi ekki
getað
dreg-
ið einhlítar ályktanir um sak-
leysi Hauks af þeirri staðreynd
að hann hefði ekki reynt að
millifæra féð með leynd, enda
hefði verið óhjákvæmilegt
fyrir hann að fá atbeina ann-
ars innan Landsbankans til
að millifæra féð. Þá telur
Hæstiréttur að óþarfi hafi
verið að millifæra féð til að
bjarga því eftir að neyðar-
lögin voru sett 6. október
síðastliðinn.
Hæstirétt-
ur ómerkti
því dóminn
og vísaði
málinu til
meðferð-
ar í hér-
aðsdómi
á ný.
- jhh
Ógilti sýknu héraðsdóms yfir fyrrverandi framkvæmdastjóra Landsbankans:
Tók ekki tillit til allra gagna
BESSASTAÐIR Forseti Íslands mun
afhenda Benedikt páfa sextánda
styttu af Guðríði Þorbjarnardóttur
í Vatíkaninu í næstu viku. Þetta
er afsteypa af verki Ásmundar
Sveinssonar af Guðríði og syni
hennar, Snorra Þorfinnssyni, sem
talinn er fyrsta barnið sem kristin
kona fæddi í Ameríku.
Forsetinn segir að ákvörðun
páfans að þiggja styttuna sé sögu-
leg tímamót. Þar með viðurkenni
páfagarður formlega að Kristófer
Kólumbus hafi ekki verið fyrsti
kristni maðurinn í Ameríku.
Gefur styttu af Guðríði:
Söguleg viður-
kenning páfa
BRETLAND, AP „Þetta kemur ekki á
óvart, en er rangt engu að síður,“
sagði Julian Assange, stofnandi
Wikileaks, eftir að dómari í Lond-
on hafði fallist á framsalsbeiðni
Svía, þar sem lögreglan vill yfir-
heyra hann vegna ásakana um
kynferðisbrot.
Breski dómarinn sagði litla
hættu á að Assange yrði framseld-
ur frá Svíþjóð til Bandaríkjanna,
en samþykki breskra dómstóla
þyrfti áður en af því yrði.
Assange ætlar að áfrýja dómn-
um, en Björn Hurtig, lögmaður
hans í Svíþjóð, sagðist sannfærður
um að Assange eigi góða mögu-
leika á að verða laus alla mála. - gb
Framsal samþykkt:
Assange ósáttur
við úrskurðinn
STJÓRNMÁL Fulltrúar allra þing-
flokka nema Sjálfstæðisflokks-
ins í starfshópi forsætisráðherra
leggja til að ekki verði kosið til
stjórnlagaþings að nýju heldur
verði 25 efstu mönnum í ógildu
kosningunni á dögunum boðið að
taka sæti í stjórnlagaráði.
Meirihluti starfshópsins segir
að sú leið að Alþingi skipi þá 25
einstaklinga sem hlutu kosn-
ingu til stjórnlagaþings til setu í
stjórnlagaráði með áþekkt hlut-
verk og stjórnlagaþing sé einföld
og kosti minnst miðað við aðra
möguleika.
„Forsenda þessarar leiðar er
það mat að þrátt fyrir þá ann-
marka sem Hæstiréttur telur að
hafi verið á framkvæmd kosning-
anna þá verði lýðræðislegt umboð
þeirra fulltrúa sem náðu kjöri í
kosningunum í reynd ekki dregið
í efa með gildum rökum enda lúti
annmarkarnir sem Hæstiréttur
bendir á að formgöllum við fram-
kvæmd kosningarinnar sem hafi
einungis fræðilega geta valdið því
að unnt hefði verið að rjúfa leynd
yfir því hvernig einstakir kjós-
endur vörðu atkvæði sínu,“ segir
meirihluti starfshópsins. Hann
mynduðu Álfheiður Ingadóttir frá
VG, Birgitta Jónsdóttir úr Hreyf-
ingunni, Höskuldur Þórhallsson
úr Framsóknarflokki og Valgerð-
ur Bjarnadóttir frá Samfylking-
unni auk formannsins Ágústs
Geirs Ágústssonar sem skipaður
var af forsætisráðherra.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins ætla flestir hinna 25
sem efstir urðu að þiggja skipan
í stjórnlagaráð. Hópurinn hittist á
fundi í dag. Gísli Tryggvason segir
mikilvægt að óvissunni sé aflétt.
„Mín áhersla er og hefur verið
sú að þjóðin fái að segja sitt álit
á væntanlegri niðurstöðu stjórn-
lagaráðsins áður en Alþingi fær
hana til afgreiðslu,“ segir Gísli.
Í minnihlutaál it i Birgis
Ármannssonar, fulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins, segir að eftir
klúður við framkvæmd kosninga
til stjórnlagaþings eigi ekki að
halda áfram með hugmyndir um
ráðgefandi stjórnlagaþing. Vinna
eigi að endurskoðun stjórnar-
skrárinnar undir forræði Alþing-
is. „Sá kostur að berja í bresti
þess ferlis, sem þegar hefur að
verulegu leyti runnið út í sandinn
með óafturkræfum hætti, er hins
vegar ekki tækur,“ segir Birgir
sem kveður skipun stjórnlagaráðs
með áðurnefndum 25 einstakling-
um vera „tilraun til að víkja sér
undan niðurstöðu Hæstaréttar og
því ekki tæk leið í stöðunni“.
Þá ítrekar Birgir að samkvæmt
gildandi stjórnlögum Íslands sé
það hlutverk Alþingis að fjalla
um og taka afstöðu til breytinga
á stjórnarskrá. „Undan þeirri
ábyrgð má Alþingi ekki að víkja
sér,“ segir í greinargerð Birgis
Ármannssonar. gar@frettabladid.is
Þau sem voru kosin
sitji í stjórnlagaráði
Starfshópur alþingismanna vill skipa 25 efstu menn í ógildum kosningum til
stjórnlagaþings í ráðgefandi stjórnlagaráð. Þeir ætla langflestir að þiggja skipun
í ráðið. Sjálfstæðismenn vilja að Alþingi sjálft endurskoði stjórnarskrána.
Í RÁÐ EN EKKI Á ÞING Þeir sem voru efstir í ógildum kosningum til stjórnlagaþings fá
nú tækifæri til að setjast í stjórnlagaráð í staðinn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
BIRGIR
ÁRMANNSSON
VALGERÐUR
BJARNADÓTTIR
ÁLFHEIÐUR
INGADÓTTIR
HÖSKULDUR
ÞÓRHALLSSON
BIRGITTA
JÓNSDÓTTIR
Sonur fyrrverandi forstjóra Kauphallarinnar íhugar málssókn vegna skrifa DV:
Lágu undir grun í rúm tvö ár
HAUKUR HARALDSSON Er sakaður um að hafa
fært 118 milljónir yfir á eigin reikning daginn
sem skilanefnd Landsbankans tók bankann yfir.
SPURNING DAGSINS
ms.is
Ostur
eins og
krakkar
vilja hafa
hann