Fréttablaðið - 25.02.2011, Page 6
25. febrúar 2011 FÖSTUDAGUR6
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja-
víkur hefur dæmt Andra Vilhelm
Guðmundsson, 24 ára, í þriggja og
hálfs árs fangelsi fyrir lífshættu-
lega líkamsárás í Hafnarstræti að
morgni nýársdags. Andri er fund-
inn sekur um að hafa sparkað í
mann svo hann féll niður stein-
tröppur og síðan ítrekað traðkað á
og sparkað í höfuð hans.
Andri og þolandinn sögðust hvor-
ugur muna atburði morgunsins að
neinu ráði við skýrslutökur. Niður-
staðan byggir því fyrst og fremst
á samhljóða framburði þriggja
hlutlausra vitna að árásinni.
Þrjú vitni til viðbótar sögðu
fórnarlambið einfaldlega hafa
fallið niður tröppurnar og slasast.
Þau voru öll tengd Andra og fram-
burðurinn auk þess reikull og ólík-
ur. Því var lítið sem ekkert mark
tekið á þeim.
Andri er dæmdur til að greiða
fórnarlambi sínu eina milljón í
skaðabætur.
Andri Vilhelm hlaut í nóvem-
ber síðastliðnum tveggja og hálfs
árs fangelsisdóm fyrir tvær alvar-
legar líkamsárásir, rán og frelsis-
sviptingu. Hann hafði ekki hafið
afplánun þess dóms á nýársnótt. - sh
LÍBÍA, AP Múammar Gaddafí segir
að Osama bin Laden standi á bak
við uppreisnina gegn sér í Líbíu.
Ungt fólk sé platað með vímuefn-
um til þess að taka þátt í „eyðilegg-
ingu og skemmdarverkum“.
Megnið af Líbíu virtist í gær
komið í hendur stjórnarandstæð-
inga, sem fögnuðu ákaft þrátt
fyrir harða bardaga í grennd við
höfuðborgina Trípólí. Höfuðborgin
sjálf var enn undir stjórn Gaddafís
og liðsmanna hans.
Hersveitir Gaddafís beittu fullu
afli gegn uppreisnarmönnum í
gær, réðust meðal annars á mosku
þar sem hópur fólks var í setu-
verkfalli gegn stjórn Gaddafís.
Einnig urðu átök á flugvelli sem
stjórnarandstæðingar höfðu náð á
sitt vald. Fullyrt var að fimmtán
manns hefðu látið lífið í þessum
átökum.
Alls er talið að hundruð manna
hafi fallið í átökunum undanfarna
daga, en utanríkisráðherra Ítalíu
hefur sagst halda að fjöldi látinna
sé kominn yfir þúsund.
Í höfuðborginni hafa borist
fregnir af því að hersveitir, skipað-
ar bæði heimamönnum og erlend-
um málamiðlum, fari með vopnum
um götur og skjóti handahófskennt
út í loftið. Tugir manna eru sagðir
hafa látið lífið þar fyrr í vikunni
þegar skotið var á mótmælendur.
Herinn er einnig sagður hafa
gert árásir á íbúðarhús víðs vegar
um borgina og tekið fólk höndum.
Stjórnarandstæðingar eru sagðir
hafa lokað einhverjum hverfum
borgarinnar með götuvígjum, en
hafi hægt um sig innan hverfanna.
„Nú er tími leynilegra ógnar-
verka og leynilegra handtaka. Þeir
fara hús úr húsi og útrýma and-
stæðingum stjórnarinnar þannig,“
sagði einn íbúi í borginni.
Mannréttindasamtökin Amnesty
International hafa gagnrýnt hæg
og dræm viðbrögð Sameinuðu þjóð-
anna og annarra alþjóðastofnana.
„Amnesty International telur
að Öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna verði tafarlaust að koma á
vopnasölubanni til Líbíu sem og
að frysta eignir Gaddafís og helstu
ráðgjafa hans innan hers og örygg-
issveita,“ segir í yfirlýsingu frá
Amnesty.
Svissnesk stjórnvöld skýrðu frá
því í gær að þau hefðu fryst allar
eigur sem Gaddafí og félagar hans
kunni að eiga í svissneskum fjár-
málafyrirtækjum.
Öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna kom einnig saman í gær til
að ræða refsiaðgerðir.
gudsteinn@frettabladid.is
Amnesty International
telur að Öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna verði
tafarlaust að koma á vopna-
sölubanni til Libíu.
ÚR YFIRLÝSINGU AMNESTY
sex saman í p
akka
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
M
S
A
4
58
61
0
4
/0
9
STJÓRNSÝSLA Fjármálaráðuneytið
hefur lagt fram á vef sínum svo-
kallaðar örkynningar á meginhug-
tökum, stærðum og spám í efna-
hagsmálum.
Er markmiðið að veita almenn-
ingi kost á aðgengilegu efni um
helstu atriði sem varða efnahags-
líf þjóðarinnar og þróun efnahags-
mála í kjölfar setningu neyðar-
laganna í október 2008.
Kynningarnar eru þrjár. Kynn-
ingarefnin eru hagvöxtur og lands-
framleiðsla, verðbólga og vextir og
viðskipti við útlönd. - bþs
Helstu hugtök efnahagsmála:
Örkynningar
fyrir almenning
Harðir bardagar í
grennd við Trípolí
Gaddafí og liðsmenn hans höfðu höfuðborgina Trípolí enn á valdi sínu í gær,
en harðir bardagar voru í grennd við höfuðborgina. Gaddafí kennir Osama bin
Laden um uppreisnina. Amnesty International gagnrýnir alþjóðasamfélagið.
YFIRGEFIÐ FLUGSKEYTI Geitur í grennd við Tobruk láta sér fátt um flugskeytið finnast,
sem hefur staðið þarna án eftirlits síðan uppreisnarmenn réðust á herstöðina fyrr í
vikunni. NORDICPHOTOS/AFP
Olíuverð í nýjar hæðir
Olíuverð hefur hækkað hratt vegna
ólgunnar í Líbíu. Þrjú olíufélög, Total,
Repsol og ENI, hafa að hluta hætt
fram leiðslu í Líbíu.
120
100
80
60
40
20
0
F M A M J J A S O N D J F
2010 2011
24. feb. 2011: 116$
Feb 2010: 74,31$
Brent-hráolía
Verð á tunnu
Heimild: Digital Look © Graphic News
Dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að sparka ítrekað í höfuð manns:
Þungur dómur fyrir árás á nýársdag
Á að taka málskotsréttinn af
forseta Íslands?
JÁ 24,7%
NEI 75,3%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Nægir að láta stjórnlagaráð
koma í stað stjórnlagaþings?
Segðu skoðun þína á visir.is
DÓMSMÁL Pálmi Haraldsson hefur
skilað yfirlýsingu til dómstóls-
ins í New York í máli slitastjórn-
ar Glitnis gegn sjö fyrrverandi
stjórnendum bankans. Sjömenn-
ingarnir hafa allir skilað inn yfir-
lýsingum og því uppfyllt þær
kröfur sem dómstóllinn setti.
Dómarinn í Glitnis-málinu í
New York vísaði málinu upphaf-
lega frá á þeirri forsendu að þeir
hinir stefndu gæfu yfirlýsingar
um að dómur í málinu á Íslandi
væri aðfararhæfur í New York.
Skilyrðið var að allir hinna stefndu
myndu skila slíkum yfirlýsingum.
Haft var eftir Steinunni Guð-
bjartsdóttur, formanni slitastjórn-
ar Glitnis, í Fréttablaðinu í gær
að málið hefði verið tekið upp að
nýju þar sem Hannes Smárason og
Pálmi höfðu ekki skilað inn yfir-
lýsingunum í tíma. Í fyrrakvöld
var yfirlýsingu Hannesar þó að
finna á heimasíðu dómstólsins.
Fram kom í fréttum Stöðvar 2 í
gær að reiði og gremju gætti í garð
Pálma og Hannesar meðal annarra
stefndu í málinu þar sem þeir skil-
uðu ekki yfirlýsingunum á réttum
tíma. Litið væri svo á að allir hinir
stefndu væri dregnir inn í málið á
ný vegna klúðurs þeirra tveggja.
Steinunn Guðbjartsdóttir vildi
ekki tjá sig við fréttastofu Stöðv-
ar 2 í gær um það hvort frávísunin
stæði. Hún hefði ekki séð yfirlýs-
ingar þeirra Pálma og Hannesar
og að slitastjórnin þyrfti að ráð-
færa sig við lögmenn sína í Banda-
ríkjunum um næstu skref.
Hinir stefndu, auk Hannesar og
Pálma, eru Jón Ásgeir Jóhannes-
son, Ingibjörg S. Pálmadóttir, Jón
Sigurðsson, Þorsteinn M. Jónsson
og Lárus Welding. - kh, þþ
Óvíst hver næstu skref í máli gegn fyrrverandi stjórnendum Glitnis verða:
Pálmi og Hannes búnir að skila
Þolandinn hlaut mikinn skaða af
árásinni. Fyrir dómi lýsti hann því að
hann hefði átt erfitt með að hreyfa
hendur og fætur, minni hans væri
lélegt og hann talaði bjagað. Hann
sagðist einungis vera með hálfa sjón
á öðru auga, stöðugan höfuðverk
og ætti erfitt með svefn. Hann hefur
verið í endurhæfingu á Grensás-
deild Landspítalans en í niðurstöðu
dómsins segir að líklega hafi hann
orðið fyrir varanlegum skaða.
Varanlegur skaði
PÁLMI HARALDSSON Hann skilaði í gær
yfirlýsingu, sem slitastjórn Glitnis hefur
beðið eftir, til dómstólsins í New York.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
KJÖRKASSINN