Fréttablaðið - 25.02.2011, Qupperneq 12
25. febrúar 2011 FÖSTUDAGUR12
N
ýlega kíkti ég í
blöð frá þeim tíma
þegar aðalbygging
gamla Landspít-
alans var opnuð á
sínum tíma og þá
sagði málsmetandi fólk að húsið
væri allt of stórt og það tækist
aldrei að fylla það,“ segir Björn
Zoëga, forstjóri Landspítalans.
„En eins og þá byggir framkvæmd-
in núna á brýnni þörf. Húsnæðið
sem við rekum spítalann í í dag er
gamaldags og virkar ekki lengur í
nútíma spítalarekstri. Við munum
ná hagkvæmari rekstri og skjól-
stæðingum okkar mun líða miklu
mun betur en í dag. Gagnrýnin
hefur verið ómarkviss og þar hefur
ekki verið byggt á þeim gögnum
sem hafa legið fyrir. Þær hafa þó
verið kynntar sérstaklega.“
En er ekki eðlilegt að fólk hafi
áhyggjur af því að þetta verði dýr-
ara en fullyrt hefur verið? Sagan
segir okkur að stórar framkvæmdir
á Íslandi reynast oft dýrari en upp-
haflega var gert ráð fyrir?
„Jú, það er mjög skiljanlegt. Það
er hins vegar ekkert sem bendir
til þess að þessi framkvæmd sé á
leið úr böndunum. Það var ákveðið
fyrir tveimur vikum að fá erlend-
an aðila til að fara í gegnum kostn-
aðaráætlun verkefnisins enn og
aftur. Og við teljum, þrátt fyrir
nokkur fjárútlát, nauðsynlegt að
fá utanaðkomandi aðila til að sann-
reyna alla útreikninga núna þegar
hönnun er að ljúka.“
Sparar stórfé
Hverju skilar nýr spítali í hag-
kvæmari rekstri?
„Nýr spítali mun spara okkur um
tvo milljarða á ári en við hagrædd-
um í rekstri á síðasta ári fyrir um
3,3 milljarða. Þetta eru háar tölur
en það má líta á þessa framkvæmd
frá öðrum sjónarhóli. Þessi áfangi
sem við erum að ráðast í kostar um
fjörutíu milljarða. Það er kostnað-
urinn við rekstur Landspítalans í
eitt ár. Í því samhengi er þetta ekki
óyfirstíganlegt því í þessari tölu
er allt; steypan, tækin, hönnunin,
vegirnir. Allt.“
Hver verður munurinn á veru á
nýja spítalanum samanborið við
að liggja inni á spítalanum núna?
„Við erum með herbergi sem taka
allt upp í sex manns. Fólki líður
ekki vel undir slíkum kringum-
stæðum. Það er ónæði og fólk sefur
illa. Höfum hugfast að fólk er mjög
veikt sem liggur á spítölum í dag.
Upplifunin af nýja spítalanum
verður að þar er einbýli fyrir alla.
Ein aðalbreytingin er að við verð-
um ekki að færa sjúklinga á milli
deilda útaf breytingum á þjónustu-
stigi. Sjúklingurinn fær sitt her-
bergi og vonandi náum við að veita
alla þjónustu þar. Hugsunin er að
hver og einn geti verið nær sínum
nánustu á erfiðum tímum, sýking-
arhætta verði minnkuð verulega en
það er einn aðaláhættuþátturinn á
sjúkrahúsum í dag. Fólk heldur
sinni reisn, til dæmis verður það
úr sögunni að konur og karlar deili
stofu. Þetta snýr líka að starfsfólk-
inu því þetta mun gjörbylta vinnu-
aðstöðu. Húsið er hannað fyrir
nútíma læknisfræði. Í dag erum við
að nota sendiferðabíla til að ferja
fólk og búnað á milli húsa. Þetta er
auðvitað ekki boðlegt.“
Varðandi öryggi spítalans. Hvað
viltu segja um tortryggni í garð
upplýsingagjafar Landspítalans?
„Þar er alltaf erfitt að svara fólki
sem tortryggir okkar störf. En við
erum undir stöðugu eftirliti og
allar tölur um dauðsföll á spítalan-
um, öryggi og einstök atvik fara til
Landlæknis. Ég held að það megi
ekki gleyma því að frá því að ég tók
við höfum við lagt allt á borðið. Ég
veit ekki til þess að aðrar opinberar
stofnanir séu jafn duglegar við að
gefa slíkar upplýsingar. Það þarf
mikla tortryggni til að halda því
fram að við fölsum tölur eða upp-
lýsingar um okkar störf. Við lítum
á upplýsingagjöf sem tæki til að
þjóðfélagið geti veitt okkur aðhald.
Hins vegar má líka segja að and-
inn í þjóðfélaginu einkennist af tor-
tryggni. En við tökum ekki þátt í
neinum feluleik og það er ekkert
sem við látum ekki frá okkur.“
Kallar eftir nýsköpun
Landspítalinn er vettvangur rann-
sókna og kennslu. Hvað breytist á
þeim vettvangi?
„Kennsluhlutinn er mjög stór
hér á spítalanum og ellefu hundruð
nemendur fara í gegnum spítalann
á hverju ári. Við berum ábyrgð á
því að mennta upp komandi kyn-
slóðir þeirra og sjá til þess að við-
halda heilbrigðiskerfinu. Rann-
sóknarhlutinn hefur verið mjög
sterkur. Við erum í fremstu röð
í heiminum í framleiðslu á rit-
rýndum greinum. Spítalinn á hlut
í fjörutíu prósentum af þessum
fræðaverkum. Núna er að koma út
skýrsla á vegum norræna ráðherra-
ráðsins um gæði þeirra rannsókna
sem gerðar eru á háskólasjúkrahús-
unum. Þar er skoðað hversu oft er
vitnað til fræðigreina af öðrum sér-
fræðingum. Þar er Landspítalinn í
fyrsta sæti, og það er ekki reiknað
út frá höfðatölu. Á eftir okkur koma
Karólínska sjúkrahúsið í Svíþjóð og
Rikshospitalet í Kaupmannahöfn en
Karólínska er á lista yfir fimmtíu
bestu sjúkrahús í heimi. Þetta er
auðvitað ekki allt unnið inni á spít-
alanum og má nefna samstarf við
Íslenska erfðagreiningu sem hefur
gefið okkur mikið.“
Hvaða möguleikar eru til að
auka rannsóknir?
„Þrátt fyrir margar rannsóknir
af miklum gæðum þá vantar að
mínu viti að þær gefi af sér meiri
nýsköpun. Við höfum ekki verið
nægilega vakandi fyrir að koma
okkur upp einkaleyfum, til dæmis.
Möguleikarnir felast í því að
breyta kúltúrnum. Einn af styrk-
leikum Íslands eru rannsóknir á
heilbrigðissviði og þar eru gríðar-
legir nýsköpunarmöguleikar. Þetta
er hluti af okkar framtíðarsýn um
nýja spítalann og við erum nú
þegar að þróa vinnufyrirkomulag
sem á að nýtast okkur í framtíðinni.
Það þýðir ekkert að ætla að breyta
öllu daginn sem við flytjum. Það er
útilokað og við verðum vel undirbú-
in. Ég held að við séum komin vel á
veg með að nútímavæða Landspít-
alann og nálgast þau vinnubrögð
sem viðgangast annars staðar.“
Illa farið með fjármuni
Með þessu ertu í raun að segja að
það hafi verið mikið að rekstri
spítalans lengi vel, er það ekki?
„Ég tel augljóst að við vorum
ekki á réttri leið. Það verður að
horfa á það að þessi stofnun varð
til við sameiningu tveggja spítala
fyrir rúmum áratug. Við vorum
búin að ná vissri samþættingu
en næsta skref var ekki búið að
taka.“
Kreppan hefur varpað ljósi á
nýtingu fjármuna og margt bend-
ir til að illa hafi verið farið með fé.
Hver er þín skoðun?
„Já, það hníga rök að því. Það
verður samt að halda því til haga
að kreppa gefur skilning á því að
fara út í erfiðar aðgerðir. Starfs-
fólkið tók á sig byrðar vegna þess
að það vissi að annað var ekki
hægt. Það var ekki val um annað
en að snúa dæminu við og fólkið
vann að þessum breytingum sjálft.
Kreppan hefur breytt spítalanum
þannig að við nýtum fjármagn
miklu betur. Ég held að það séu
margir hlutir sem hafa ekki batn-
að; það verður að koma í ljós hvort
þeir hafa orðið verri. Ég held að
það hafi náðst að halda í horfinu,
og það er afrek að mínu viti.“
Hvernig er fyrir menntaðan
bæklunarskurðlækni að sitja í
þessum stól og hvaða þýðingu
hefur það fyrir reksturinn að
læknir en ekki rekstrarmaður
gegni starfinu?
„Þetta er tvíþætt spurning. Á
Norðurlöndunum og víða í Banda-
ríkjunum eru menntaðir læknar
aftur að setjast í þessa stóla og
það hefur reynst vel að velja þá
sem leiðtoga. Á bestu sjúkrahús-
unum í Bandaríkjunum koma for-
stjórarnir af gólfinu og vita um
hvað þeir eru að tala og þurfa ekki
ráðgjafa til að segja þeim hvað er
að gerast á spítalanum.
Hvað mig varðar persónulega þá
datt ég inn í þetta vegna áhuga á
stjórnunarstörfum og fékk þjálf-
un í Svíþjóð. Þar þurfti ég að taka
ákvörðun um það hvort ég ætlaði
að einbeita mér að rannsóknum
eða einbeita mér að stjórnun. Mér
finnst gaman að laga það sem ég
sé að ekki virkar. Kannski kemur
eitthvað af minni menntun sem
skurðlæknir inn í það.“
Þú hefur töluverð samskipti
við þann heilbrigðisráðherra sem
situr á hverjum tíma. Hvað getur
þú sagt um þau samskipti?
„Það sem skiptir mestu máli er
að stjórnvöld komi sér upp heild-
stæðri stefnu og láti stjórnendur
síðan um að útfæra þær hugmynd-
ir. Ef ráðherra ætlar að setja eigin
fingraför á reksturinn þá er auðvi-
tað ekki gott að þeir komi og fari
með fárra mánaða millibili eins og
raunin hefur orðið. Ég hef reynslu
af fjórum ráðherrum. Þeirra
afskipti, og ég nefni ekki nöfn,
hafa verið frá því að hafa sama og
engin afskipti í það að hafa áhuga á
því hvar vaskar eru staðsettir inni
á spítalanum.“
Framtíðarsýn
Hvað getur þú sagt um þennan
tíma sem liðinn er og hver er þín
framtíðarsýn fyrir spítalann?
„Ég viðurkenni það fúslega að
þegar ég tók við þessu starfi þá
bjóst ég við hinu versta. Sá ótti var
ástæðulaus. Það er vonandi merki
um að ég hafi náð árangri. Það
dettur engum í hug að fullyrða að
ekki megi gagnrýna mín verk. Það
er ekki hægt á tímum sem þessum
að komast hjá því að taka rangar
ákvarðanir og aðrar erfiðar sem
eru gagnrýniverðar. En ég vona
svo sannarlega að það erfiðasta sé
að baki. Ég vil ekki standa í þeim
sporum að taka ákvarðanir um
hvaða þjónustu við getum veitt og
hvað þarf að leggja af. Framtíðar-
sýnin er að aðlagast nýjum vinnu-
aðferðum sem henta glæsilegum
nýjum spítala, og verða betri.
Þannig getum við aukið við okkar
þjónustu og gefið fagfólkinu hér
tækifæri til að vaxa.“
Föstudagsviðtaliðföstuda
gur Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, um gagnrýni á uppbyggingu við Hringbraut og erfi ðan niðurskurð
Vonar að tími niðurskurðar sé að baki
Björn Zoëga hefur axlað þá ábyrgð að skera niður í rekstri Landspítalans með eftirtektarverðum árangri. Hann undrast
gagnrýni á byggingu nýs spítala og kallar eftir því að menn kynni sér fyrirliggjandi gögn, eins og Svavar Hávarðsson komst að.
FRAMTÍÐIN Björn hefur þurft að taka margar óvinsælar og erfiðar ákvarðanir á stuttum tíma. Hann bindur miklar vonir við nýjan
spítala sem senn rís á Hringbrautarreitnum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
- fæddur í Reykjavík 26. apríl 1964
Fjölskylda
Kvæntur Hörpu Árnadóttur, starfandi myndlistarmanni. Börn: Árni Bergur,
Jón Gunnar, Guðrún Lilja, Una Sigrún og Sigurbjörn.
Menntun
Háskóli Íslands 1984-1990, MD. Sérfræðimenntun í bæklunarskurðlækn-
ingum, Borgarspítala 1991-1993 og við Sahlgrenska háskólasjúkrahúsið í
Gautaborg 1993-1996. Med.dr. (PhD) frá Gautaborgarháskóla 1998.
Starfsferill
Yfirlæknir við hryggjarskurðdeild Sahlgrenska háskólasjúkrahússins í
Gautaborg, 1999 til 2002.
Settur yfirlæknir bæklunarskurðlækningadeildar LSH, 2003 til 2005.
Sviðsstjóri lækninga Skurðlækningasviðs LSH, 2005 til 2007.
Starfandi framkvæmdastjóri lækninga á Landspítala, 2007 til 2008.
Starfandi forstjóri Landspítala ásamt Önnu Stefánsdóttur, 2008 til 2009.
Framkvæmdastjóri lækninga á Landspítala, 2009.
Starfandi forstjóri Landspítalans, 2009.
Skipaður forstjóri Landspítalans 9.september 2010.
Björn Zoëga – stiklað á stóru