Fréttablaðið - 25.02.2011, Síða 21
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
S
tofnfundur Samtaka líf-
rænna neytenda verður
haldinn í Norræna húsinu
7. mars. Markmiðið er að
stuðla að aukinni framleiðslu og
neyslu vottaðra lífrænna vara á
Íslandi, segir Oddný Anna Björns-
dóttir, hvatamaður að stofnun
samtakanna, sem telur Íslendinga
ekki nógu meðvitaða um kosti líf-
rænna afurða. „Við erum ein af
fáum Evrópuþjóðum sem ekki
hafa mótað sér skýra stefnu um að
auka lífræna ræktun, þótt margt
hafi áunnist. Við erum fimm til
tíu árum á eftir þeim þjóðum
sem við viljum bera okkur saman
við og tilgangurinn með stofnun
samtakanna er að bæta úr því.“
Oddný flutti nýverið til lands-
ins eftir að hafa búið í nokkur ár í
Kaliforníu, þar sem hún kynntist
lífrænum lífsstíl. „Þar eignaðist
ég mitt fyrsta barn og fór að hug-
leiða hvað því væri fyrir bestu. Þá
uppgötvaði ég hvað lífræn ræktun
hefur fram yfir hefðbundna rækt-
un og mikilvægi þess að sneiða hjá
mikið unnum matvörum,“ útskýrir
Oddný, sem hefur varið síðast-
liðnu ári í að sérhæfa sig í þessum
fræðum.
„Sú upplýsingaleit varð til
Oddný Anna Björnsdóttir, hvatamaður að stofnun Samtaka lífrænna neytenda, gefur hér holla uppskrift
MYND/PÁLMI EINARSSON
Fljótlegt,
einfalt og
bragðgott
Ferskur hlýri, ósprautaður
(eða annar feitur, hvítur
fiskur með háu hlutfalli af
Omega 3 fitusýrum)
Lífræn Naturata sól-
blómaolía, sérstaklega
gerð til steikingar
Pottagaldrar: Krydd fyrir
krakka
Lífrænar sætar kartöflur
Lífrænt brokkolí
Lífrænar gulrætur
Lífrænt blómkál (eða
lífrænar gular baunir)
HP rúgbrauð (án ónátt-
úrulegra aukaefna)
Lífrænt smjör frá Bio-Bú
(nýkomið á markað)
Fiskur skor-
inn í bita og
kryddaður
með kryddi
frá Potta-
göldrum.
Fiskbitar lagð-
ir í olíuborið
eldfast mót og velt einu
sinni upp úr olíunni. Lok
set á og inn í ofn í um
30 mín. á 200°C. Græn-
meti gufusoðið í potti
(svo næringarefni fari
ekki út í vatnið) í um
20-30 mín. (ekki mauk-
sjóða). Sætar kartöflur
skornar í bita, séu þær
stórar. Rúgbrauð skorið
í sneiðar, smurt og borið
fram með mat. Krökk-
unum finnst gott að láta
stappa niður kartöflur
með smjöri og skera
fisk, brokkólí, blómkál
og gulrætur í litla bita
og hræra saman.
FISKUR, GRÆNMETI OG RÚGBRAUÐ MEÐ SMJÖRI
fyrir hressa krakka!
þess að ég afréð að helga líf mitt
þessu málefni og flutti heim, taldi
mig gera meira gagn hér sem
einstaklingur í þessu litla samfé-
lagi en úti,“ segir Oddný, sem áður
stofnaði ásamt fleirum Facebook-
síðu tileinkaða málefninu, en
áhuginn á henni var svo mikill að
hópnum þótti ástæða til að koma
samtökunum á fót. „Enda er áríð-
andi að upplýsa neytendur svo þeir
kalli eftir breytingum og stuðli
að heilbrigðum lífsstíl og heil-
næmu umhverfi,“ útskýrir Oddný,
sem gefur hér uppskrift í þeim
anda. „Þetta er fiskur og gufusoð-
ið grænmeti, ekkert ofeldað eða
ofunnið, næringarefnin á sínum
stað og vinsælt hjá krökkunum,“
segir hún og mælir með niður-
skornum lífrænum ávöxtum í
eftirmat. roald@frettabladid.is
Aðalstræti 2 | 101 Reykjavík | Sími: 517 4300
www.geysirbistro.is | Opið alla daga frá 11.30
Á GEYSI Í
HUGGULEGU
UMHVERFI
OG MEÐ
GÓÐUM MAT
Í KVÖLD SPILAR INGI GUNNAR
LJÚFA TÓNLIST FYRIR MATARGESTI
VERIÐ VELKOMIN!
Karlakórinn Heimir í Skagafirði heldur tvenna tón-
leika á suðvesturhorninu um helgina. Þeir fyrri verða í
Njarðvíkurkirkju í kvöld klukkan 20.30 og þeir síðari í
Langholtskirkju á morgun klukkan 15. Sígildar karla-
kóraperlur og mansöngvar eru á efnisskránni.