Fréttablaðið - 25.02.2011, Blaðsíða 24
2 föstudagur 25. febrúar
núna
✽Dekraðu þig
Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Umsjón Sara McMahon Forsíðumynd Valgarður Gíslason
Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is
Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@365.is Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
blogg vikunnar
ORKUGEFANDI GOTT RAKAKREM
frá Biotherm sem verndar húðina, veitir henni raka
og vinnur jafnframt gegn þreytumerkjum. Kremið
inniheldur náttúruleg efni og fyllir húðina af orku.
Val vikunnar
Sænska bloggsíðan Nike väljer
hefur ekkert með íþróttavörufram-
leiðandann Nike að gera heldur
velur Nike Felldin vikulega fallegar
fatasamsetningar og birtir
þær svo á netinu. Viku-
valið fylgir yfirleitt ein-
hvers konar heildar-
þema á borð við hvítan
lit, afrískt safarí og þar
fram eftir götunum.
Skemmtileg síða til
að detta inn á. Www.
rodeo.net/nikevaljer.
Danir leggja línurnar
Blogggið www.anywho.dk er stór-
skemmtilegt danskt blogg sem
haldið er úti af þremur vinkonum
sem allar eiga það sameiginlegt að
starfa innan tískubransans. Stúlk-
urnar eru Ingrid, sem starf-
ar sem fyrirsæta með-
fram námi, Elise, sem
er hönnuður, og Steph-
anie, sem vinnur sem
stílisti og hönnuður.
Skyldulesning fyrir alla
þá sem elska skandi-
navíska tísku!
S
ýning færeyska fatamerkisins bAR-
BARA í gONGINI á tískuvikunni í
Kaupmannahöfn þótti sérstaklega
flott og vel heppnuð. Merkið hefur haft
aðsetur í Kaupmannahöfn undanfarin ár
og er hönnun þess nokkuð vinsæl meðal
Dana. Flíkur bARBÖRU í gONGINI þykja
þægilegar og sérstakar enda eru snið-
in skemmtilega öðruvísi. Tískuverslunin
GK Reykjavík hefur nýverið tekið að selja
hönnun bARBÖRU í gONGINI og ætti það
að vera mikið fagnaðarefni fyrir áhuga-
fólk um skandinavíska hönnun.
Ása Ninna Pétursdóttir rekur GK
Reykjavík ásamt sambýlismanni sínum,
Guðmundi Hallgrímssyni, og segir hönn-
un bARBÖRU í gONGINI vera mjög fallega
og þægilega. „Mér finnst hönnun hennar
bæði mjög skemmtileg og svo er hún líka
sérstaklega þægileg og góð. Línan sem
við erum með til sölu hjá okkur nefn-
ist Black og hún er aðeins hefðbundnari
en önnur og dýrari lína sem hún gerir.“
Fyrstu flíkurnar voru teknar upp úr köss-
unum í byrjun vikunnar og er önnur
sending væntanleg í næstu viku. - sm
Hönnun Barböru í Gongini fæst loks á Íslandi:
Skemmtilega öðruvísi
Færeysk framúrstefna Ása Ninna Pétursdóttir, annar eigenda GK Reykja-
vík, segir hönnun Barböru í Gongini vera þægilega og skemmtilega.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Á
sgrímur Már Friðriksson
fatahönnuður er farinn
að hanna undir eigin
nafni og vinnur nú bæði
að karla- og kvenfatnaði undir
heitinu Ási of Iceland.
Ásgrímur Már hannaði lengi
fyrir E-label og sló hönnun hans
í gegn hér heima enda þóttu flík-
urnar bæði þægilegar og flottar.
Nýja línan er að hans sögn ólík
því sem hann hefur áður gert og er
bæði litaglaðari og mýkri. „Í kven-
línunni er ég að einbeita mér að
litum og handgerðum silkiblóm-
um. Ætli línan sé ekki einhvers
konar blanda af Púertó Ríkó á tí-
unda áratugnum og Maríu Anton-
íettu,“ útskýrir Ásgrímur. Hann
hyggst einnig senda frá sér kar-
lalínu innan skamms og mun hún
innihalda klassískan klæðskera-
sniðinn fatnað með nútímalegu
yfirbragði. „Mér fannst vanta meira
úrval af fatnaði fyrir stráka og mig
langar svolítið að einbeita mér að
þeirri línu og hafa hana jafnvel
stærri en kvenfatalínuna. Stráka-
fötin verða samt með svolitlu „uni-
sex“ sniði svo að bæði kynin ættu
að geta gengið í sumum flíkunum.“
Aðspurður segir Ásgrímur Már
það ekki vandræðalaust að vera
sjálfs síns herra. „Áður var ég
að hanna fyrir aðra og þurfti því
að fylgja ákveðinni stefnu en nú
getur maður gert hvað sem er og
þá getur verið erfitt að festa sig við
eitthvað heildstætt,“ segir hann og
hlær. Ásgrímur stefnir á að senda
frá sér tvær línur árlega héðan í frá
bæði í kven- og karlfatnaði. „Planið
er að koma þessu á almennilegt ról
núna og vera síðan duglegur í að
fylgja því eftir.“
Hönnun Ási of Iceland fæst í
versluninni Kiosk við Laugaveg 65.
- sm
Ásgrímur Már Friðriksson sendir frá sér eigin fatalínu:
SUÐRÆN
MARÍA ANTONÍETTA
Eigin herra
Ásgrímur Már
Friðriksson hefur
sent frá sér sína
fyrstu línu sem
hann hannar
undir eigin nafni,
Ási of Iceland.
Línan inniheldur
bæði kven-
og karlfatnað
og stefnir á að
senda frá sér
tvær línur á ári.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Vörurnar frá franska snyrtivöruframleiðandanum L‘Occitane eru hver annarri
yndislegri. Nú hefur bæst við ný plómublómalína sem inniheldur meðal ann-
ars sturtusápu, ilmvatn og rjómakenndan varagljáa með örlitlum lit. Að auki
ilma vörurnar ómótstæðilega enda innihalda þær allar plómublómaseyði.
Ný vorlína frá L‘Occitane:
Plómur og vorkoma