Fréttablaðið - 25.02.2011, Blaðsíða 28
6 föstudagur 25. febrúar
F
yrstu helgina í næsta
mánuði, nánar tiltekið
dagana 4. til 6. mars,
verður a lþ jóðlega
kvikmyndahátíðin
Northern Wave haldin á Grundar-
firði í fjórða sinn. Hitann og þung-
ann af skipulagningu hátíðarinn-
ar ber kvikmyndagerðarmaðurinn
Dögg Mósesdóttir, en hún setti
Northern Wave á fót í samvinnu
við Menningarsjóð Vesturlands á
sínum tíma og gegnir í senn hlut-
verki framkvæmdastjóra og tals-
manns og sér um að velja mynd-
ir á hátíðina úr fjölda umsókna.
Aðspurð viðurkennir Dögg að
töluvert álag fylgi skipulagningu
Northern Wave. Hátíðinni hefur
vaxið fiskur um hrygg ár frá ári,
nýir dagskrárliðir bæst við og
gestum fjölgað til muna, en Dögg
sinnir því starfi samhliða fullri
vinnu sem klippari á Skjá Einum
og fleiri verkefnum sem tengj-
ast kvikmyndagerð. Hún segir þó
víðsfjarri sér að kvarta yfir press-
unni sem þessu fylgir, enda fái
hún ómælda ánægju út úr því að
sjá hátíðina vaxa og dafna.
„Ég horfi á um 150 myndir á
hverju ári og af þeim vel ég svo
um sextíu sem sýndar verða á há-
tíðinni. Stundum horfi ég á allt að
tíu myndir á kvöldi eftir vinnu,
en þetta eru stuttmyndir og því
tekur það styttri tíma en ætla
mætti að renna í gegnum þenn-
an fjölda. Eina vesenið er að þurfa
að standa upp og skipta um disk í
DVD-tækinu,“ segir hún og bætir
við að eftir fjögur ár sé hún komin
í nokkuð góða þjálfun varðandi
alla skipulagningu.
„Ég fæ líka mjög mikla og góða
hjálp víða að. Judith, vinkona mín
frá Spáni, kemur á hverju ári og
aðstoðar mig og svo er líka gott
að hafa fólk á Grundarfirði til að
redda ýmsum hlutum. Starfs-
fólk bæjarskrifstofunnar er mjög
hjálplegt og svo búa foreldrar
mínir þarna líka. Pabbi er á fullu
í skipulagningunni, svo ekki sé
minnst á þau fjölmörgu fyrirtæki
og einstaklinga á Grundarfirði
sem leggja í púkkið.“
SPENNANDI
HEIÐURSGESTUR
Northern Wave verður með nokk-
uð öðru sniði nú en endranær, en
í ár verða í fyrsta sinn veitt verð-
laun fyrir bestu íslensku stutt-
myndina, auk þess að verðlauna
bestu alþjóðlegu stuttmyndina
og besta íslenska tónlistarmynd-
bandið.
Tónlistarvefsíðan Gogoyoko
sér um tilnefningar til besta tón-
listarmyndbandsins og er einnig
meðal þeirra sem gefa verðlaun-
in í þeim flokki. Dögg segir gríð-
arlega grósku hafa verið í gerð
tónlistarmyndbanda hér á landi
á síðasta árinu eða svo.
„Það voru ekki nærri svona
mörg tónlistarmyndbönd sem
kepptu á síðasta ári. Kannski er
skýringin sú að margir hafa fjár-
fest í góðum vélum sem gerir það
hægt um vik að framleiða rosa-
lega flott myndbönd. Leynt og
ljóst er eitt af markmiðum hátíð-
arinnar að koma á sambandi milli
mismunandi listageira, til dæmis
tónlistarmanna og kvikmynda-
gerðarmanna, til að þeir kynnist
sín á milli, vinni saman og við-
haldi þessari miklu grósku.“
Heiðursgestur hátíðarinnar í ár
er enginn annar en franski leik-
stjórinn Romain Garvas, sem
hefur unnið með fjöldanum
öllum af þekktum tónlistarmönn-
um og leikstýrði meðal annars
einu umdeildasta myndbandi síð-
asta árs við lagið Born Free með
söngkonunni M.I.A. Auk þess að
taka sæti í tónlistarmyndbanda-
keppninni verður brot úr nýjustu
mynd Garvas, Our Day Will Come
með franska leikaranum Vin-
cent Cassel í aðalhlutverki, sýnt
á hátíðinni. Á laugardagskvöld-
inu verður einnig sýnd heimildar-
mynd í leikstjórn Garvas um tón-
leikaferðalag hljómsveitarinnar
Justice um Bandaríkin.
Dögg er himinlifandi með
heimsókn Garvas á Northern
Wave.
„Þeir sem senda myndir inn í
keppnina frá löndum víðs vegar
um heim velja oft og tíðum Ís-
land vegna þess að þá langar til
að heimsækja einhvern framandi
og heillandi stað. Hið sama á við
um heiðursgestina, en þeir lifa sig
ávallt vel inn í stemninguna á há-
tíðinni, kíkja á tónleika, fá sér bjór
með gestunum og þar fram eftir
götunum. Kristín Jóhannesdóttir
kvikmyndagerðarkona og Sigurð-
ur Pálsson rithöfundur eru bæði
í dómnefnd og þau hafa gjarnan
tekið að sér að lóðsa heiðursgest-
ina um bæinn, sem hefur gefist
mjög vel. Garvas er ungur og upp-
rennandi leikstjóri sem mikils er
vænst af. Það er mjög mikilvægt
að hæfileikaríkt kvikmyndagerð-
arfólk myndi tengsl við landið,
sem mögulega skilar sér svo í því
að hér verði gerðar fleiri myndir
í framtíðinni. Þetta er mikil land-
kynning,“ segir Dögg.
Á SJÓINN EFTIR
STÚDENTINN
Sjálf ólst Dögg upp á Grundar-
firði fram til sextán ára aldurs,
þegar hún flutti á mölina og hóf
nám við Verslunarskóla Íslands. Í
Ég ætlaði að
koma heim í góð-
ærið en svo hvarf það
stuttu síðar.
Harðdugleg Dögg Mósesdóttir kvikmyndagerðarkona stendur að baki stuttmyndahátíðinni Northern Wave sem fram fer á Grundarfirði fyrstu helgina í mars.
Um sextíu stuttmyndir, tónleikar og fiskisúpuát er
meðal þess sem stendur gestum alþjóðlegu kvik-
myndahátíðarinnar Northern Wave á Grundarfirði til
boða um aðra helgi. Dögg Mósesdóttir, fram-
kvæmdastjóri hátíðarinnar, segir mikla landkynn-
ingu felast í hátíðinni.
Viðtal: Kjartan Guðmundsson
Ljósmyndir: Valgarður Gíslason
MYNDAR TENGSL
MILLI LISTAGEIRA
SALON REYK JAVÍK
=
VERTU VELKOMIN
SALON REYKJAVÍK
GRANDAGARÐUR 5
1 0 1 R E Y K J A V Í K
SÍMI : 56 85 305
O P N U N A R T Í M A R
VIRKA DAGA: 9 - 18
LAUGARDAGA 9 - 13
SALON REYKJAVÍK BÝÐUR UPP Á NÝJA NATURA KERATIN
SLÉTTUNARMEÐFERÐ SEM GEFUR MJÚKT, SLÉTT,
HEILBRIGÐT, FALLEGT OG GLANSANDI HÁR.