Fréttablaðið - 25.02.2011, Qupperneq 29
25. febrúar föstudagur 7
marmarahöllinni, eins og sá skóli
er oft kallaður, entist hún þó ekki
nema í tvö ár.
„Þegar ég var sextán ára ætl-
aði ég að verða rík, en sautján
ára gömul var ég orðin ákveðin
í því að verða fátækur listamað-
ur,“ segir hún og hlær. „Ég var dá-
lítill uppreisnarseggur sem ung-
lingur, en vildi líka sýna fólkinu
á Grundarfirði að ég gæti samt
staðið mig í námi og þess vegna
fór ég í Versló, sem ég hélt þá að
væri besti skólinn. Það tók mig
ekki langan tíma að uppgötva
að ég passaði engan veginn inn
í Versló. Ég þarf alltaf að vera að
gera eitthvað skapandi og skipti
þess vegna yfir í MH, þar sem allt
skrýtna fólkið var.“
Eftir stúdentspróf, einn vetur
sem skiptinemi í Ekvador og ýmis
störf á Grundarfirði, meðal annars
nokkra túra á togara, hélt Dögg
svo til Barcelona í kvikmynda-
skóla. Þar dvaldi hún við nám og
störf í ein fimm ár og kynntist þar
eiginmanni sínum, Daniel Schrei-
ber, sem hún flutti með til Íslands
jólin 2007.
„Ég ætlaði að koma heim í góð-
ærið en svo bara hvarf það stuttu
síðar,“ segir Dögg, en hún lét
efnahagsvandræðin þó ekki aftra
sér frá því að ráðast í skipulagn-
ingu Northern Wave-hátíðarinnar
stuttu eftir heimkomuna.
SYSTIR ÞINGMANNS VG
Hún segir Grundarfjörð hafa verið
mikið vígi Sjálfstæðisflokksins í
uppvexti sínum. Báðir foreldr-
ar hennar eru sjálfstæðismenn,
en þeirri hollustu er ekki fyrir að
fara hjá Dögg og systur hennar
Lilju Mósesdóttur, hagfræðingi og
þingmanni Vinstri grænna.
„Mig grunar þó að mamma sé
ekki alveg jafn mikil sjálfstæðis-
manneskja eftir hrunið en pabbi,
sem er einn eigenda sjávarútvegs-
fyrirtækisins G. RUN á Grundar-
firði, er harður stuðningsmaður
flokksins. Hann styður Lilju syst-
ur þó í einu og öllu og þau ræða
stjórnmál mikið sín á milli. Pabbi
vill bara hafa gott fólk í pólitík.
Honum fannst samt erfitt að vera
staddur í svona „kommakoti“
eins og hann kallaði það þegar
Lilja stóð í sinni kosningabaráttu
og faldi sig alltaf á bak við staur
þegar myndavélar voru nálægt,“
segir Dögg og skellir upp úr.
Hún bætir við að sjálf sé hún
fremur vinstrisinnuð en geti
vel skilið hugsunarhátt foreldra
sinna. „Eigendur G. RUN byggðu
sitt fyrirtæki upp frá rótum, að
mestu leyti án hjálpar frá yfir-
völdum, og hafa staðið sig ótrú-
lega vel í því að byggja upp sam-
félagið. Þeir vilja að fólk hafi
frelsi til að skapa sér sín eigin
tækifæri, sem aftur tengir þá við
Sjálfstæðisflokkinn.“
✽
m
yn
da
al
bú
m
ið
Þarna er ég ásamt Maríu Runólfsdóttur, frænku minni,
í réttum á Grundarfirði. Mæja er ættleidd og ég gerði
heimildarmynd um hana og við ferðuðumst saman til
Grænhöfðaeyja að hitta blóðmóður hennar.
Myndin er tekin í Bandaríkjunum í fyrstu ferð
okkar eiginmannsins þangað. Mig langaði svo
að sjá dádýr og þetta var það eina sem ég sá,
uppstoppað á safni.
Þarna erum við hjónin ung og ástfang-
in í Barcelona, nýbúin að kynnast.
Þessi mynd er tekin heima hjá mér í
gottneska hverfinu í Barcelona. Svona
þakpartí eru algeng þar í borg.
V
E
L
JU
M
Í
S
L
E
N
S
K
T