19. júní

Ataaseq assigiiaat ilaat

19. júní - 19.06.1977, Qupperneq 5

19. júní - 19.06.1977, Qupperneq 5
Auður Eir og eiginmaður hennar Þórður örn Sigurðsson. Séra Auður Eir Athygli manna hefur að undanförnu af gefnu tilefni beinst mjög að prestskosningum. Fyrsta og eina konan, sem tekið hefur prestsvígslu hér á landi, hefur tvívegis á sama misseri leitað eítir því, að komast að sem þjónandi prestur. Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir hefur ótrauð lagt út á nýjar brautir í krafti menntunar sinnar og starfslöngunar og með lögin frá 1911 um jafnan rétt karla og kvenna til allra embætta að bakhjarli. Að henni hefur ekki tekist að brjóta ísinn túlka margir svo, að hefðir og fordómar séu ennþá ríkjandi að þessu leyti og hér sé um raunverulega jafnréttisbaráttu að ræða fremur en að söfnuðirnir hafi hafnað henni sem kenni- manni. Þessi umræða varð um skeið mjög víðfeðm og fáir komust hjá að verða hennar varir. Einn aðili hefur þó lítið látið til sín heyra um þetta mál, en það er séra Auður Eir sjálf. Stjórn K.R.F.I. og ritnefnd „19. júní“ urðu sammála um að helga henni og baráttu hennar til jafnrar stöðu á við karla á sínu sviði rúm 1 blaðinu að þessu sinni. Séra Auði, sem nú dvelur að heimili sínu í Frakklandi, voru sendar spurningar og hún beðin að tjá sig um reynslu sína í prestskosningunum og annað það í því sambandi, er hana fýsti að koma á framfæri. Hún varð góðfúslega við. Ritnefndin sneri sér einnig til nokkurra ann- arra aðila og bað þá svara í fáum orðum spurningum varðandi þetta mál. BjE. 3

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.