19. júní


19. júní - 19.06.1977, Blaðsíða 7

19. júní - 19.06.1977, Blaðsíða 7
presta var sem hann hefði sjaldan heyrt svo óþarfa spurningu. Þriðji sóknarnefndarmaðurinn, Guð- björn Björnsson, var ekki í bænum en hann reyndist sam- þykkur því að fá mig vestur til prestsstarfsins. Við komum líka við hjá séra Sigurði Kristjánssyni prófasti á ísafirði, sem fagnaði jsvi að fá prest í Súgandafjörð og ræddi málið eins og það væri daglegur viðburður að konur kæmu og vildu verða prestar í prófastdæminu. Þegar við kom- um til Reykjavíkur ræddi ég málið við biskup, sem vígði mig til Súgandafjarðar 29. september, en þetta var þjóðhátiðarárið 1974. Stundum sagði ég við fólkið mitt fyrir vestan: Kannski myndi kona ekki hafa fengið prestvígslu á Islandi fyrr en eftir fjölmörg ár ef þið hefðuð ekki tekið á móti mér. En fólk mitt hló og taldi þetta mestu fjarstæöu. En það er ekki fjarstæða. Eg haföi þá þegar sótt um prestakall einu sinni og síðan hef ég sótt þrisvar, alltaf sunnanlands af því í fjölskyldu- hættir okkar eru þeir að við verðum að geta sameinast sem næst einhverjum stað, þar sem við getum öll starfað og stundað nám. En ég féll í öll skiptin, naumlega að visu í eitt skiptið, í Háteigssókn í Reykjavík. Farðu nú varlega í að auglýsa það að þú hefir fallið í fjórum prest- kosningum, segja vinir mínir, en mér þykja þetta hins vegar staö- reyndir, sem ég tel að eigi að halda á lofti af því að þær segi sína sögu um ástandið í kirkjunni og í jafnréttismálum á öllum sviðum. Um ástandið í kirkjunni? Þetta sýnir með svo mörgu ööru að söfnuðirnir liugsa svo niiklu meira um formið en hinn raunverulega sannleika. Það er andstætt sannleika kristninnar aö aftra því að konur séu prestar. Konur hafa verið jafningjar karla í frumsöfnuðinum, líka í guð- þjónustunni. Fólk vitnar í orð Páls postula um að konur eigi að þegja á safnaðarsamkomum, ým- ist til að vera valdsamlegt eða sniðugt. En það gleymir þeirri miklu sprengju, sem Páll varpaði með þvi að segja að i kristinni kirkju væru karlar og konur jafn- ingjar. Og það var ekki í deilum og átökum heldur á svo sjálf- sagðan hátt að ekki þurfti um að ræða. Stéttarbræður þínir — veittu þeir þér viðtöku í sinn hóp? Já, það held ég nú aldeilis. Ég hef ekki mætt neinu nema góðu frá þeim, nema frá örfáum ein- staklingum nú nýlega. Prestarnir fyrir vestan voru einstakir í sam- starfi, þar var engin undan- tekning. Tveir prestar hafa stutt mig opinberlega, þeir séra Grímur Grímsson og séra Páll Þórðarson. Alítur þú að það sé vegna þess að þú ert kona, sem þú hefur enn ekki náð kosningu? Ég er ekki i nokkrum vafa um það, þótt auðvitað komi fleira til eins og um alla umsækjendur. En það, sem var sagt í fyrstu kosnin- gunum, sem ég tók þátt í, er sagt í þeim öllum: Æ, ég get nú ómögulega hugsað mér kven- prest. Nú þekki ég auðvitað ekki allt, sem fólk hugsar sér þvi til stuðnings, en ég þekki sumt. Ég get ekki hugsað mér að láta konu jarða manninn minn. Eg vil ekki láta konu gifta mig. Kvenprestar gætu farið að gráta við jarðar- farir. Það er ábyggilega svo skrítið að sjá konu skíra barn. Við höfum bara aldrei séð konu i hempu. Presturinn á að vera karlmaður, sem tekur ofan fyrir manni á götu en er annars ekkert að skipta sér af manni. Þetta er of fljótt — eftir 15 ár . . . En, væna min, hver á að hugsa um kven- félagið, þú átt enga konu. Eg er þess fullviss að ég hef ekki notið jafnréttis i neinni þeirra kosninga, sem ég hef tekið þátt í. Þeir, sem sækja á móti mér, fá fyrirhafnarlaust fjölmarga kjósendur, sem ekki vilja kjósa konu. Við þann hóp bætast þeir, sem telja sig styðja jafnréttis- baráttuna með því að kjósa ekki konu — þeir segjast ekki vilja Auður Eir með fermingarbörnum við Súgandafjörð. 5
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.