19. júní


19. júní - 19.06.1977, Side 9

19. júní - 19.06.1977, Side 9
Helst á jafnréttismálum. Daufgerða og afturhaldssama fólkið ræður þar meiru en ég hélt. Framhaldið af kvennafrídeginum glæsilega hefur verið heldur ris- lágt, finnst mér. Ég held að konur berjist innbyrðis og það er þyngra en tárum taki. Það býður upp á framhald þess að litið sé á okkur sem annars flokks starfskraft bæði heima og heiman. Við verðum að virða hver aðra þótt við förum ekki allar sömu brautir og höfum ekki sömu óskir. Og við þurfum umfram allt að hætta að vera hræddar hver við aðra, en það erum við áreiðanlega. Auðvitað er búið að segja þetta þúsund sinnum, en það verður að halda áfram að segja það. Hópur jafnréttiskvenna starfaði fyrir mig í tveim síðustu kosningum og þær konur met ég mikils. Það var mikill lærdómur og gleði að starfa í þeim fjöl- menna og góða hópi, karla og kvenna sem lagði fram tíma sinn og snilli í kosningunum. I síðustu kosningum kom meiri hluti stúlknanna í guðfræðideildinni í hópinn og nokkrir strákanna, og þetta var mér auðvitað mikil gleði. Ég hef kynnzt miklum hleypidómum í þessum kosning- um en starf og vinátta stuðnings- manna minna er mér þó miklu ofar i huga. Haft er eftir þér að mestu jafnréttiskonur, sem þú hefur kynnst séu á Súgandafirði — viltu segja okkur frá dvöl þinni þar? Mér endist nú ekki ævin til þess. Þar býr stórbrotið vestfirskt fólk. Mér finnst mega lýsa því með þeirri biblíulegu setningu að þeirra já sé já og þeirra nei sé nei. Þetta fólk tók okkur vel frá fyrstu stund og við tengdumst þvi og staðnum sterkum böndum. Hefur fólk að þínu mati áhyggjur af því að ekki sé sam- rýmanlegt að vera eiginkona, móðir og þjónandi prestur? Sumir telja það mikla kosti, aðrir hafa þungar áhyggjur. Hvert er álit þitt á að sam- ræma það? Það fer afar vel saman, það eru ekki bara hugmyndir heldur reynsla mín eftir dvölina fyrir vestan. Upplag og eiginleikar prests — hverjir þurfa þeir að vera? Prestur þarf að trúa á Drottin Jesúm Krist krossfestan og upp- risinn og eiga þá ósk heitasta að boða hann bæði í kirkju og utan. Ef hann kann þetta, sem að vísu er ævilangt nám, skiptir minna hvort hann er lipur við unglinga og bráðfyndinn í boðum. Með þessu er ég alls ekki að segja að félagslíf kirkjunnar skipti litlu, það skiptir afar miklu en kemur af sjálfu sér ef prestur og söfnuður taka Krist alvarlega. Hver er ábyrgð presta þegar í stólinn er komið? Að boða fagnaðarerindið óm- engað svo þeir, sem heyra, skilji, njóti og noti. Það krefst auðvitað líka mikillar ábyrgðar af söfnuðinum. Að lokum: Hvenær sækirðu um næst? Ég er enn fastákveðin i að halda áfram preststörfum þrátt fyrir þá andstöðu, sem ég hef mætt. Við erum öll sammála um þetta í fjölskyldunni. Þær kosningar, sem ég hef þreytt með mætri og mikilli aðstoð, hef ég fyrst og fremst þreytt vegna ein- lægrar löngunar minnar til að starfa sem prestur. Hins vegar hefur sú andstaða, sem ég hef mætt, gert þá baráttu að jafn- réttisbaráttu um leið. Það er staðreynd, hvort sem fólki líkar það betur eða verr og hvort sem Auður Eir predikar í Háteigskirkju því finnst það skynsamlegt eða ekki að hafa orð á því. Ég er fegin því að hafa getað lagt einhvern skerf til þessa starfs og vissulega hef ég notið góðs af þeim árangri, sem þar hefur náðst. Og mér finnst kirkjunni þau mál mjög viðkomandi. En prestkosningar gera ekki aðeins kröfu til sjálfrar mín heldur til allrar fjölskyldu minnar og fjölmenns hóps vina og stuðningsmanna. Og þær eru svo dýrar að óréttmætt er með öllu að leggja slíkar byrðar á eina stétt. Við munum því hugsa málin vandlega. Fólk hefur sent mér bréf og skeyti og hringt til mín til að hvetja mig til að gefast ekki upp. Lokaorð mín eru þessi: Það er einlægur vilji minn að halda preststarfinu áfram. 7

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.