19. júní


19. júní - 19.06.1977, Síða 12

19. júní - 19.06.1977, Síða 12
því hafa þær orðið farvegur fyrir köllun Guðs, sem beinist jafnt að konum sem körlum til prests- þjónustu og biskupsstarfs. Við beinum þeirri ósk til þeirra kirkna í Lútherska heimssam- bandinu, sem ekki veita konum prestsvígslu, að gera nú þegar ráðstafanir til þess að bæta úr því“. Þessi ályktun hefur verið send öllum kirkjum í Lútherska heimssambandinu. A Norðurlöndum munu allar kirkjur nema sú finnska vígja konur til prestsþjónustu. Sú mikla andstaða, sem var gegn kvenprestum t. d. í Svíþjóð, hefur nú svo til horfið, enda þótt enn finnist biskupar, sem færast und- an því að veita konu vígslu. I Finnlandi eru konur með guð- fræðimenntun kallaðar til þjón- ustu í söfnuðum, þar sem þær sinna fræðslu og líknarmálum, en eru ekki prestar með sakra- mentisþjónustu, enda þótt þær prediki oft. Sjálfur vona ég, að ekki sé langt í það, að konur gegni prestsþjón- ustu hér á íslandi i föstum emb- ættum, ég tel það bæði eðlilegt, sjálfsagt og æskilegt. Guðrún Ásmunds- dóttir, leikari: Hefi starfað við fjórar prestskosningar fyrir kvenprest — Skiptir það — að þínu mati máli hvort prestur er karl eða kona? Nei, svo sannarlega ekki. Ég kýs prest hvorki vegna þess að hann er kvenmaður né þrátt fyrir það, heldur miða val mitt fyrst og fremst við það, hvort um góðan predikara er að ræða. Eftir að hafa starfað við fjórar prestkosningar — fyrir kvenprest og tapað jafnoft hef ég komist á þá skoðun, að jafnrétti karla og kvtínna eigi hér mjög langt í land. Þær voru margar samræðurnar sem ég átti á þessu timabili um kvenpresta og ekki kvenpresta: Rökin á móti voru oft þau að presturinn þyrfti að geta tónað svo vel — það gæti eyðilagt jóla- steminguna að heyra konu tóna. Ein kona horfði á mig stórum augum og sagði: ,Já ég viður- kenni, að hún flutti langbestu ræðuna — en ekki gæti ég hugsað mér að láta kvenmann jarða mig eða manninn minn.“ Hvað getur maður sagt við slíkum fordómum? Hvað í ósköpunum hefur þetta með kirkju guðs að gera? Hvar stendur það í biblíunni, að konu skuli fyrirmunað að boða Guðs orð í kirkju hans? Agnes M. Sigurðar- dóttir, guðfræðinemi: Prestskosningar eru karl- mönnum einnig þrándur í Götu Eg held að engum dyljist það, sem hefur komið nálægt prests- kosningum, að þær eru óþverra- fyrirbæri. Ég hef bara einu sinni starfað við kosningaundirbúning og komst þá að raun um hvílík þrekraun þær eru. Þær eru mannskemmandi og það fer lítið fyrir þeim kristilega kærleik, sem einkenna á öll mannleg sam- skipti. Hingað til hefur kona ekki borið sigur úr býtum í kosningu. Samt verður að telja það þó nokkurn sigur fyrir kvenþjóðina að úrslitatölur í Háteigssókn, við síðustu kosningar þar, sýndu, að konan var tekin sem jafningi Framhald á bls. 19. 10

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.