19. júní - 19.06.1977, Page 23
„Ég ætla að græða, fer annað
hvort í fjármálabrask eða
tannlækningar.“ — „Ég fer í
eitthvað á viðskiptasviðinu.“ —
„Ég hefi mestan áhuga á eðlis-
fræði og bókmenntum.“ — „Og
ég á náttúrufræði.“
Er þrýstingur á ykkur heima
að fara í langskólanám? Þeir eru
ekki svo vissir um það, en sam-
mála um að nauðsynlegt sé að
læra eitthvað.
Ættu allir að fara í langskóla-
nám? — „Ekki ef áhugann eða
getuna vantar, það er of dýrt fyrir
þjóðfélagið.“
Iþyngir sú hugsun ykkur, að
þið verðið „fyrirvinnur“? —
„Nei, ekki enn a. m. k., en auð-
vitað er það ábyrgð, sem fylgir
því að stofna fjölskyldu.“
Ætla stelpurnar líka í fram-
haldsnám? Flestir halda þeir —
„Annars er þetta kvenfólk svo
áhrifagjarnt, vill eitt í dag og
annað á morgun og ef ein vill
eitthvað, þá vilja hinar það líka.“
Starfsfræðsla var í 3. bekk í vetur,
en nemendur þurfa að velja sér
kjörsvið áður en sest er í 3. bekk.
Þessi fræðsla ætti að koma fyrr í
skólakerfinu t. d. í 12 ára bekk.
Hvað hafið þið helst fyrir
stafni í tómstundum? — „Fyrir
utan þá íþrótt að stríða kvenfólki,
sem verður æst og skortir alla
kímnigáfu, leikum við t. d. borð-
tennis, sumir okkar spila á hljóð-
færi og einn er íslandsmeistari í
júdó í sínum aldursflokki.“
Eru einhverjar skemmtanir?
Þeir segja að bekkjarpartýin
verða æ leiðinlegri með aldrin-
um, þau hafi verið skemmtilegust
við 11 — 12 ára aldurinn, aðallega
er dansað og étið í þeim. Fram
kemur að stelpurnar hafa flestar
verið á dansskólum og kunna alls
konar dansa — „Strákarnir fara
halloka fyrir þeim á böllum og
sumir slá þess vegna um sig með
öðru móti“. — „Annars er þetta
nú ekkert að kunna.“ — „Það er
hlegið að strákum, sem eru í
dansi.“ — „Maður þroskast og
hugurinn beinist inn á aðrar og
menningarlegri brautir.“
Hvaða brautir eru það? Þeir
nefna félagsmál, einn hafði tekið
að sér að vera andmælandi á
málfundi, þegar jafnréttismál
voru á dagskrá. „Það er í fyrsta
lagi erfitt að vera á móti jafnrétti
og svo eru stelpurnar svo við-
kvæmar að þær fara bara að
grenja, þegar maður segir eitt-
hvað í stríðni s. s. að þær ættu að
halda sig í eldhúsinu, verða alveg
brjálaðar.“ — „Það er stór-
skemmandi fyrir lærdóminn að
hafa stelpur í bekknum, þær eru
svo háværar og hugsa alls ekki
um að læra.“ — „Ég þurfti nú að
leysa próf fyrir eina vinkonu
mína.“ — „Sumar eru sam-
viskusamari en strákarnir.“
Eruð þið skotnir í stelpum? —
„Maður rannsakar liðið.“
Hvernig eiga stelpur að vera?
— „Þær verða að hafa eitthvað í
hausnum.“
Ædið þið að giftast og eignast
börn? — Þeir gátu allir hugsað
sér það einhvern tíma seinna,
þegar þeir væru búnir að læra og
byrjaðir að vinna, helst ekki yngri
en 25 ára. Flestir töldu að börn
væru skemmtileg og mest meðan
þau væru litil.
Hverjir teljið þið að hafi alið
ykkur upp? Þessu svöruðu þeir
allir á sama veg, pabbi og
mamma og fóstrurnar í leik-
skólanum.
Hvað gerið þið með foreldrum
ykkar? — „Tefli við pabba, fer
með honum í bíó og tala við hann
um alvöru lífsins. Mamma inn-
rætir mér kristilegt jafn-
réttishugarfar.“ — „Fer með
þeim á skíði. Pabbi lánar mér
stundum peninga, hann gleymir
því oftast, en mamma man hvern
eyri.“ — „Pabbi hjálpar mér með
tungumálin, mamma gefur mér
stundum aura.“ — „Kaupi föt
með mömmu.“
Er fræðsla um kynferðismál í
skólanum? Þeir segja að sýnd hafi
verið kvikmynd og hún hafi verið
of krassandi án þess að vera nein
sérstök fræðslumynd. — „Allt of
mikið talað um kynlíf í
skólanum.“ — „Stelpurnar tala
frekar um kynferðismál, það
heyrðist nú best í skóla-
ferðalaginu.“
Er neysla á tóbaki og áfengi í
ykkar aldurshópi? Þeir halda því
fram að fáir strákanna reyki en
aftur á móti langflestar stelpn-
anna. — „Þetta eru pæjulæti, þó
þær séu reyndar ágætar sumar.“
Nokkrir krakkar byrja með vín
13—14 ára og sumir reyna að
drekka sig inn í klíkur, en að þetta
fari allt eftir heimilunum er ein-
róma álit piltanna fjögurra. —
„Maður lagar sig eftir for-
eldrunum, það er hægt að koma
fullur heim ef foreldrar manns
eru fullir fyrir.“ — „Mín fjöl-
skylda flytti á eyðieyju ef ég kæmi
fullur heim.“ — „Ég gæti hugsað
mér eitthvert laugardagskvöld
heima hjá mér, allir heima að
horfa á sjónvarp, gestir i heim-
sókn, litlu krakkarnir vakandi og
ég kæmi fullur inn — algjört
æði, ég byði ekki í það.“ Senni-
lega mun eitthvað vera um
ímyndunarfyllerí t. d. „Thule-
drykkjumennina“ svokölluðu.
Er áfengisvandamálið eins
mikið og af er látið? Allir sem
einn telja þeir það mikið vanda-
mál.
Hafið þið áhuga fyrir þjóð-
málum? — „Strákar eru meira
vakandi fyrir þjóðmálum heldur
en stelpur.“ — „Á málfundum
eru strákar yfirleitt framsögu-
menn ef þjóðmál eru til umræðu
og fyrst og fremst þeir, sem rífast
um þau.“ — „Stelpurnar rífast
líka, en bara um mál sem snerta
þær persónulega.“
Einn segist vera sósíalisti, ann-
ar er að ígrunda maóisma, en
tveir vilja ekki tjá sig um pólitískar
skoðanir sínar. Allir eru þeir
sammála um að inn i skólana
vanti fræðslu um þjóðmál, efna-